Vikan - 25.11.1976, Page 33
„Það er skrítið,” sagði ég og
hallaði mér upp að ævafornum
steinveggnum bak við mig. „Ég er
svo vön að hugsa um þig sem
íþróttamann, að ég var búin að
gleyma að þú hefðir aðra vinnu.”
„Jú, jú, ég hef aðra vinnu,”
sagði Bryn, og ég furðaði mig á þvi,
hvað hann virtist taugaóstyrkur
allt í einu. Ég fór að taka saman
matarpakkana og i fyrsta skipti
þennan dag vissi ég ekki hvað ég
átti að segja. En í því fann ég fyrstu
regndropana falla á andlit mér, og
ég leit upp og sá að himinninn
var orðinn alþakinn svörtum regn-
skýjum, án þess að við hefðum
tekið eftir því.
Við flýttum okkur að taka saman
dótið okkar og svipuðumst um eftir
skjóli.
„Eigum við að koma aftur niður í
bíl?” spurði Bryn.
„Nei, nei, þetta er áreiðanlega
bara smáskúr,” sagði ég, „við
hljótum að geta fundið skjól hér
einhvers staðar. Við fundum þurran
blett undir einum veggnum og þar
kyssti Bryn mig almennilega í
fyrsta skipti, og á meðan streymdi
milt vorregnið niður andlitið á
mér.
„Ég hélt að ég gæti gleymt þér,”
sagði Bryn lágt, „en ég gat það
ekki, Carol. Þess vegna er ég hér
núna. Það er bara eitt, sem ég þarf
að segja þér...” En áður en hann
komst lengra, heyrðum við óm af
röddum hinum megin við vegginn.
Við vorum greinilega ekki ein um að
leita skjóls þarna. „Fjárinn,” sagði
Bryn, en ég var fegin, að fólkið
hinum megin við vegginn hafði
komið einmitt á þessu augnabliki.
Ég vissi ekki hvað það var, sem
Bryn ætlaði að segja mér. en eftir
svipnum að dæma, var það ekkert
sem mig langaði að heyra. Það yrði
nógur timi fyrir það seinna. Núna
langaði mig bara að slappa af og
njóta þess að vera með Bryn, og
sjá um, að hann nyti þess að vera
með mér, — nógu vel til þess að
hann langaði til að heimsækja mig
aftur.
„Komdu,” sagði ég. „Ég ætla að
sýna þér inn i kastalann.” Og þegar
við paufuðumst áfram lengra inn í
rústirnar, ákvað ég að reyna að
leiða samtalið frá öllu þvi, sem gæti
spillt þessum dýrlega degi.
En núna, þegar ég sat með dag-
blaðið fyrir framan mig og las, að
Bryn væri að gifta sig í dag, leið ég
hræðilegar sálarkvalir. Svo að það
varþetta, sem hann ætlaði að segja
mér! Það var ekki að furða, þótt
hann væri kindarlegur á svipinn, og
ekki skrítið, að hann skyldi segja,
þegar hann fór, að hann gæti ekki
hitt mig aftur alveg ó næstunni!
Hvað hafði maðurinn eiginlega
hugsað sér? Að stinga konuna sína
af og stelast til að vera með mér
smátíma? Eða sjá um, að ég hitti
hann aldrei aftur?
„Ég er upptekinn um næstu
helgi,” sagði hann, þegar hann
stoppaði fyrir utan Royal um
kvöldið. „En ég hringi í þig strax
og ég sé einhverja smugu.”
Þá, einu sinni enn, kom undarleg
þögn, og mér fannst, að hann væri
að reyna að segja mér eitthvað. En
einmitt þá kom Shirley í hóteldyrn-
ar og benti mér að koma.
„Jæja, ég þarf víst að fara,”
sagði ég, og Bryn andvarpaði.
„Já. Þakka þér fyrir yndislegan
dag, Carol. Éggleymi ekki...”
Þegar ég var orðin ein í herberg-
inu minu, ómuðu orð hans í huga
mér. En núna höfðu þau fengið nýja
og verri merkingu.
Ég gleymi ekki...! hugsaði ég og
furðaði mig á ósvífni hans, auk þess
sem ég var hræðilega sár og von-
svikin, allir mínir draumar voru
orðnir að engu. En þegar ég hafði
jafnað mig á mestu geðshræring-
unni, fann ég, að þótt ég væri bæði
sár og hneyksluð yfir því, að Bryn
skyldi hafa svikið bæði mig og
konuna sína', þráði ég hann enn jafn
heitt. Hann er ekki þess virði að
hugsa um hann, hugsaði ég með
mér, en samt verkjaði mig af löngun
til að sjá hann. Allan daginn var ég
að hugsa um hann og reyna að
imynda mér hvað hann væri að gera
þá stundina. Um eittleytið var ég
algerlega niðurbrotin. Ef trúa mátti
dagblaðinu var Bryn þegar kominn
í hjónabandið. Ég myndi aldrei tala
við hann aftur. En mér fannst allt
lifið vera í rúst, og ég var viss um,
að ég myndi aldrei treysta karl-
manni aftur á ævi minni. Um þrjú-
leytið var ég farin að nötra og
skjálfa, og mér fannst, að ég hlyti
að vera með háan hita.
„Ætlarðu út i kvöld?” spurði
mamma, þegar ég var að taka fram
af borðinu með henni. „Ég hélt, að
þú vildir fara eitthvað út, úr því að
þú átt nú frí á laugardagskvöldi.”
„Nei, ég ætla að fara i bað og fara
snemma að sofa,” sagði ég og
forðaðist að líta á Jimmy, þvi að ég
gerði mér ljóst, að hann vissi meira
um tilfinningar minar en ég kærði
mig um. Jæja, kannski vissi hann
ekki mikið um ást og þess háttar, en
hann hafði vonað að ég gæti hjálpað
honum til að hitta hetjuna sina. Því
hafði hann fylgst betur með þegar
ég fór út með Bryn, heldur en yngri
bræður gera yfirleitt. Núna virtist
hann skilja, að sá möguleiki, var
ekki lengur fyrir hendi, og hann leit
út fyrir að vera næstum jafn
vonsvikinn og ég sjálf.
Dyrabjöllunni var hringt, og
mamma kallaði á Jimmy: „Viltu
fara til dyra, Jimmy minn.” Hann
fór tautandi fram á gang. Eftir
örskamma stund kom hann aftur.
„Það er maður að spyrja eftir
þér,” sagði hann við mig.
„Maður? Að spyrja um mig?”
endurtók ég undrandi og fór fram
með diskaþurrkuna i höndunum.
Þegar ég sá, hver stóð í dyrunum,
fór ég að skjálfa í hnjáliðunum.
„Bryn!” hrópaði ég. „Hvað ert
þú að gera hér?”
„Ég reyndí að hringja í þig á
Royal, en þeir sögðu mér, að þú
værir í fríi í dag,” sagði hann. „Svo
að ég ók hingað til að finna þig. Ég
varð að hitta þig, Carol”
„Enþú giftir þig í dag,” sagði ég
bjálfalega. „Hvað ertu þá að gera
hér, Bryn?"
„Get ég fengið að t.ala við þig,
Carol?” spurði hann.
Blóm og gjafavörur
í miklu úrvali
Skreytum viö öll tækifæri
Blómabúöin DÖGG
Álfheimar6 sími33978
Reykjavíkurveg 60 sími 53848
l _______________
48. TBL. VIKAN 33