Vikan - 01.09.1977, Side 3
Ásamt James Dean 1945.
,,Jimmy varð ástfanginn af mér—
en Brando varaöi mig viö hon-
Asamt John Derek 1955
..ég var ennþá barn, en John
kenndi mér aö fullorönast. "
Ásamt Fabio Testi 1976.
,,Hann horföi ekki fyrst á brjóst
mín og faetur og það líkaði mér.
Ursula Andress er ein áhrifa-
mesta kona í kvikmyndum nútím-
ans. Hún steig upp úr sjónum í
fyrstu James Bond myndinni,
,,Dr. No," íklædd bikini baðfötum
hníf og litlu öðru, og sló strax í
gegn.
Síðan þá hefur hún leikið í
kvikmyndum um allan heim — að
þeim tíma undanskildum, sem
hún hefur verið ástfangin. „Þegar
ég er ástfangin hef ég öðru að
sinna'' segir hún brosandi.
Þessa dagana er Ursula þó við
vinnu sína — því hún er ekki
ástfangin. Að minnsta kosti ekki í
bili.
Tveggja ára ástarsambandi
hennar og ítalska leikarans, FabTo
Testi, lauk á heldur óskemmtileg-
an hátt, og um hana hefur Testi
sagt: ,,Ég kann ekki við fólk, sem
er of ákaft."
Það er ástæðan fyrir því, að
Ursula ákvað að taka að sér aðal-
hlutverkið í kvikmyndinni „Behind
the Iron Mask," sem er gerð eftir
hinni kunnu sögu Dumas ,,The
Man in the Iron Mask," en þeirri
kvikmyndatöku átti að Ijúka nú í
sumar.
Þegar Ursula er ekki í vinnu, býr
hún alein í íbúð í Róm.
Nýlega ræddi hún um mennina í
lífi sínu — og vandræðin sem
fylgja í kjölfar þess að verða
ástfanginn.
Fertug að aldri er hún eins fögur
og hún hefur ávallt verið, með sítt,
Ijóst hár og skínandi, blá augu.
Svipur hennar er ákveðinn og
vöxturinn ótrúlega fallegur enn
þann dag í dag. Hún lítur út fyrir
að vera a. m.k. tíu árum yngri en
aldurinn segir til um.
Ursula segir, með örlitlu brosi,
að karlmenn hafi alltaf átt stóran
þátt i lífi hennar. Hún segir, að
fyrsti maðurinn, sem hafði áhrif á
hana, hafi verið faðir hennar.
,,Hann kenndi mér það, sem
var nauðsynlegt til að hjálpa mér
að halda velli í kvikmyndaheimin-
um, sem er grimmur og fram-
andi," segir hún. ,,Án þess
lærdóms veit ég ekki hvað orðið
hefði um mig. Ég hefði fallið
saman."
,,Ég bjó í Sviss, með foreldrum
mínum og sex systkinum, þar til
ég varð 17 ára. Ég kom heim úr
skólanum á kvöldin og hafði
ekkert fyrir stafni.
Ég fékk alls ekki leyfi til að fara
út. Þegar ég var 18 ára fór ég til
Hollywood og þar kynntist ég
leikaranum John Derek. Ég var
ennþá barn, en John kenndi mér
að fullorðnast.
Ég giftist honum og við vorum
gift í átta ár. Það, sem ég vildi, var
að lifa lífinu og elska. Og ást er
ekki aðeins að elska vini sína,
hundinn sinn eða köttinn. Hún
verður að vera algleymingur eða
heit ástríða — annars er það ekki
sönn ást. Venjulegt ástarævintýri,
sem varir í eina nótt, einn dag, eða
um eina helgi — það er nokkuð
sem hægt er að gleyma svo til
strax. Að elska er að vera með
einhverjum."
Áður en Ursula fór til
Hollywood í fyrsta sinn var Marlon
Brando góður vinur hennar á
italíu. — ,,Ég hitti hann fyrst í
Róm og þegar ég kom til
Hollywood gætti hann mín,
leiðbeindi mér og verndaði mig." V
,,Einn þeirra manna, sem
Marlon varaði mig við var James
Dean, leikarinn ungi, sem margir
álitu spegilmynd af Brando.
Jimmy Dean varð ástfanginn af
mér, en Brando sagði við mig:
„Varaðu þig á mótorhjólinu
hans." Jimmy var einlægur aðdá-
andi hvers kyns kappaksturs, og
að lokum fór svo, að bíllinn hans
varð honum að bana."
Ursula heldur áfram: ,,Á þeim
tíma voru tveir menn, sem vildu
giftast mér. James Dean var
annar, John Derek hinn. Ég
elskaði John Derek, en hann var
þegar giftur. Það var auðvelt að
vera ásfangin af Jimmy, en það
var ekki auðvelt að giftast honum.
Ég vildi bíða þar til John yrði frjáls.
Einn morgun hringdi Jimmy og
bað mig að koma með sér að
reynslukeyra bílinn sinn, sem
hann átti að keppa í síðar um
daginn. Ég sagðist ekki vilja fara.
Hann gekk á eftir mér, en ég lét
mig ekki. Ég veit ekki hvers vegna
en mig langaði ekki til að fara. Ef
þetta hefði verið einhvern annan
dag, hefði ég eflaust farið.
£> Að lokum leiddist honum þetta
þras og fékk viðgerðarmanninn
sinn með sér í minn stað. Þennan
dag lenti bíllinn í árekstri og
Jimmy fórst. Viðgerðarmaðurinn
slapp með skrekkinn."
„Hvað ætli hefði gerst, ef ég
hefði verið í bílnum? Ætli hann
hefði samt sem áður látist? Ég
hugsa oft um það, en veit ekki
svarið."
Eftir að Ursula og John Derek
slitu samvistum fór hún aftur til
Evrópu. „Eftir að ástríðum og
algleymingi ástarinnar er lokið,
tekur við hrein kvöl" játar hún.
„Ég græt og er einmana, ótrúlega
einmana. En ef aðeins EINN dagur
ástarsambandsins hefur verið
góður, er það þess virði."
Um það, hvers konar menn hafi
mest áhrif á hana, segir þessi
yndislega kvikmyndastjarna: „Ég
tek ekki þann fyrsta, sem býðst.
Þegar ég hitti mann í fyrsta
skipti, þarf að vera fyrir hendi
aðdráttarafl, líkamleg þörf. En til
að elska mann, elska hann í
rauninni, þarf mun meira. Og þá
er það ekki aðeins spurning um
fallegt útlit. Laglegir karlmenn eru
hégómlegir og vilja láta á sér bera.
Ég fer meira eftir persónuleika en
útliti. Ást er ekki það sama og
líkamlegt aðdráttarafl. Jean-Paul
35. TBL.VIKAN 3