Vikan - 01.09.1977, Blaðsíða 55
Sídumula 15, Sími 33070
gjarn
Varnirgegn
drukknun
Farið aldrei alein í sund.
Syndið ekki lengra út, en þið
getið botnað.
Stingið ykkur ekki, ef þið þekkið
ekki staðinn vel.
Syndið ekki eftir aðalmáltíð
dagsins.
Syndið ekki ef þið eruð óvenju-
lega þreytt.
Hrindið aldrei neinum ofan í og
kaffærið ekki aðra.
Verið ekki of lengi á sundi.
Hrópið aldrei á hjálp að gamni
ykkar, aðeins ef hætta er á
ferðum.
Sjáir þú óhappið eiga sér stað,
skaltu halda rónni, kalla á hjálp
— reyna blástursaðferðina strax.
„ Ferðamagi"
Á fyrstu dögum ferðarinnar,
erlendis, er ráðlegra að gæta sín
í matarræði meðan maginn er að
venjast matnum, sem oft er
meira kryddaður og öðru vísi
matreiddur en við eigum að
venjast heima. Margt ferðafólk
hefur orðið fyrir slæmri reynslu
af þessu tagi sem hreinlega
hefur eyðilagt fyrir því ferðina.
Svo gætið ykkar, sérstaklega
fyrstu dagana.
Næsti sími
Neyðarvakt
Næsti Spíta/i
Næturvakt /ækna
Dýralæknir
Apótek
Gastæki
Tjöld, tjaldvagnar, sumarbústað-
ur — á flestum þessum stöðum
er notað gas. Að vísu er auðvelt
að eiga við gas en dauðhættu-
legt komist eldur að. Gas án
öryggisventils springur við mik-
inn hita. Komi upp smáeldur í
tjaldinu, vagninum eða bústaðn-
um, mundu þá að koma gas-
flöskunum út úr húsi. Náist það
ekki þá komdu fjölskyldunni út á
stundinni. Það er betra að láta
tryggingar bæta dauða hluti en
að eiga á hættu brunasár.
Áfengi
Víst ráðleggjum við að drekka
mikið í sólarhitanum — þó ekki
of mikið áfengi. Líkaminn getur
ekki þolað of mikið af því.
Orsökin er að áfengi eykur
brennslu líkamans og það sama
gerir bæði sólbaðið og sundið og
að auki líkamlegt atgervi. Með
öðrum orðum þessi samsetning
getur valdið tvöfaldri brennslu
og það er hættulegt.
Gætið ykkar á
só/inni
Það er aldrei of oft varað við
sólinni. Við viljum gleypa hana í
okkur, og kannski ekki óeðlilegt,
þar sem við sjáum hana allt of
sjaldan. Byrjið hægt, helst með
höfuðfat á höfði. Þegar um er að
ræða smábörn, má alls ekki
gleyma höfuðfati. Það er ekki
um mörg ráð að velja ef þú hefir
orðið fyrir sólbruna. „Talkum,"
sumir ráðleggja kartöflumjöl, og
mjúk bómullarblússa á einna
best við þau óþægindi sem
orðið geta af sólbruna. Ef þú
kastar upp og líður illa, eftir
langan sólbaðsdag, hefir sól-
brunnið, þá er vissara að leita
læknis.
Sadolin
til
trae
^lin
h °o ud.nd»r'
rn
1
nvia
35. TBL VIKAN 55