Vikan


Vikan - 01.09.1977, Síða 4

Vikan - 01.09.1977, Síða 4
Belmondo er ekki laglegur. Aölað- andi — jú, en ekki laglegur. Þegar ég hitti hann fyrst í Róm, var það ást. Ég flutti til Parísar með honum og við bjuggum saman í átta ár. ,,Við giftumst ekki, þótt við værum i rauninni gift að öllu leyti, nema á skjólum. Hann sýndi mér heima, sem ég hélt að væru ekki til. Ég eyddi mestu af tíma mínum með Jean-Paul og lék aðeins í fjórum kvikmyndum á þessum átta árum, svo ég gæti farið með honum hvert sem hann fór. Það var það eina, sem ég vildi. Að hafa Jean-Paul var mér nóg." Ef talið berst að börnum, segir Ursula, sem á engin börn: ,,Ég eignaðist engin börn með Jean- Paul, því ég var á ferð og flugi um allan heim til að vera með honum. Þegar ég eignast barn, vil ég að allar aðstæður séu fullkomnar. Nú á ég heimili í Róm og hef komið mér fyrir þar, en ég á ekki mann og get þar af leiðandi ekki eignast börn." Ursula talar líka um siðferðis- legar skyldur ástarinnar: „Þegar ég er með einhverjum og er ástfangin, er ég ekki með öðrum mönnum. Það samræmist ekki lögmáli ástarinnar og það yrði ekki ánægjulegt vegna þess að það er ekki heilsteypt samband. Fyrir mér er aðeins einn maður í einu, og þegar því sambandi er lokið, elska ég hann enn. Já, ég veit að það er kannski ekki einmitt rétta orðið — en hvaða orð annað er hægt að nota um að elska vin sinn? John og Jean-Paul eru enn vinir mínir, vegna þess að þeir eru enn hluti af mér. Sá hluti hverfur ekki þó að slitni upp úr hjónabandi eða ástar- sambandi." Næstur á eftir Belmondo var Fabio Testi, sem er fimm árum yngri en hún. Ursula lýsir aðdrátt- arafli leikarans á þennan hátt: „Hann horfði ekki fyrst á brjóst mín og fætur, og það líkaði mér. Samband okkar stóð í tvö ár, og einnig þar var hin mikla ástríða og algleymingur — en ég batt enda á það. (Svo virðist, sem Ursula hafi ekki þolað lengur afbrýðisemi Fabios) ,,Sá orðrómur er alltaf á lofti, að ég sé ástfangin," segir hún og andvarpar, eða að ég sé leynilega gift. Hvorugt er satt. Margir karlmenn hafa beðið mín, en ég hef neitað. Það er ekki erfitt að segja „Nei." Karlmenn eru veiði- menn og það er eðlilegt. Þeir elta, elta og elta. En það er mjög sjáldgæft að þeir nauðgi konum — það eru þá undantekningar, svo sá möguleiki að neita, og meina það, er alltaf fyrir hendi. Ég er fertug og ég veit vel að bráðlega mun aldurinn setja mörk sín á útlit mitt." En fram til þessa hefur Ursulu Andress tekist að komast hjá öllum ellimörkum — og hún veit það. „Þegar ég hátta mig, kýs ég að gera það í birtu, ekki í myrkri, en það er það sem konur gera, þegar húðin er farin að slappast á lærunum og þær vilja ekki láta eiginmenn sína sjá það. Fyrsta erfiða aldursskeið konu er um tvítugt, þegar hún breytist úr barni í konu. Þrítugsaldurinn er ekki erfiður, en það er fertugsaldurinn aftur á móti, og ég held að ég þarfnist manns til þess að hjálpa mér í gegnum þau ár. En ég kýs að vera ein, þar til ég finn einhvern, sem getur veitt mér sanna ást og algeyming." Ursula hefur sín eigin lög um heiðarleika í ástum. „Ég tæki ekki mann frá konu, sem ég þekkti" segir hún. Spyrjið hið alþjóðlega kyntákn hvort hún trúi því að ástarlíf hennar hafi í rauninni fært henni hamingju — og hvort hin opinberu ástarsambönd hennar hafi verið virði þeirra skugga og sorga, sem á eftir fylgdu — og hún svarar af einlægni: „Ég iðrast einskis úr ástarlífi mínu. Ég hluti af öllu, sem ég hef gert og mönnunum, sem ég hef verið með." Síðan kveður hún brosandi og heldurtil vinnu sinnar, glæsileg og falleg persóna, en ein á báti. £ffiAMEL MAIl-IN ClRTIHCAÍf EMClOSf0 CHOCOUTE \ MINT _____ LÍNUFÓLK og aðrir sem vilja megra sig NOTIÐ NÝJA PILLSBURY MEGRUNARKEXIÐ Four 275 Calorie Meals 8 Bars J EINNIG FYRIRLIGGJANDI: Gerfisykur í sykurformi og SWEET 10 sakkarín dropar, í stórum flöskum. Pantanir aðeins teknar í síma 19102 og 23582 tPínubúÖin — Heyrðu elskan, eigum við ekki að fara í göngutúr — og taktu tékkheftið með þér! 4 VIKAN 35. TBL.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.