Vikan - 01.09.1977, Page 45
4 SKUGGA
%/ÓNSINS
Allt i einu kom múlasni í ljós til
hliðar við veginn. Hann bar eldi-
viðarbagga og fyrir aftan hann gekk
maður. Hann starði á bílinn og
siðan á mennina á mótorhjólunum,
sem fjarlægðust óðum. Hann skók
reiðilega hnefann á eftir þeim.
Regina leit til baka um leið og
þau fóru fyrir næsta horn.
Múldýrið og eigandi þess voru
þegar komin hálfa leið upp brattan
troðning.
,,Hann verður kominn þangað á
undan okkur,” sagði Edward.
Það minnti Regfnu á, að enn hafði
hún ekki hugmynd um, hver
áfangastaður þeirra var. Edward
hafði ætlað að fara að segja henni
það, þegar fyrri mótorhjólamðurinn
birtist.
,,Hvert erum við að fara?”
,,Þú sérð það rétt bráðum. Þetta
er lítil fjallaborg, eiginlega frekar
þorp, en umlukt borgarmúrum og
með tilheyrandi kastala. Staðurinn
heitir Roccaleone. Klettur ljóns-
ins.”
,,Það er merki á hjálmunum
þeirra," sagði hún og röddin skalf.
,.Ég held að það sé ljónshöfuð.”
,,Hvað sagðirðu?’ spurði Edward
hvasst.
,,Ég sá það greinilega, þegar
maðurinn fór fram úr okkur. Ég er
v.iss um að það var ljón.”
Þessi taugaspenna er farin að setja
mörk sín á hann, hugsaði hún. Hún
gat aðeins séð vinstri hlið andlits
hans, þá hlið, sem bar ör frá
gagnauga og niður á höku. Núna
var örið hvítt í brúnu andliti hans.
Hún veltiþví fyrir sér, hvernig hann
hefði fengið slíkt ör.
Þau tóku næstu beygju hægt og
varlega. Framundan lá vegurinn
beinn og auður. Og fyrir ofan þau á
háum fjallgarði blasti við Rocca-
leone, ringulreið fjölda húsaþaka
umlukin voldugum borgarmúrum,
sem á var fjöldinn allur af virkjum
og turnum.
,,Hérna er það," sagði Edward og
lyfti vinstri hendinni til að lagfæra
sólskyggnið.
Athygli Regínu beindist að
glampanum, sem kom frá innsiglis-
hringnum hans. Hún hafði oft séð
þennan hring, en núna tók hún
andköf. Merkið var hið sama, —
Ijónshöfuð.
Hún sat þögul og ráðvillt, meðan
þau óku áfram upp brekkuna.
Kastalinn gnæfði yfir þeim, nokkr-
um hundruðum feta ofar, grátt
steinbákn, þar sem fáeinar harð-
gerðar jurtir uxu i veggjasprung-
um. Sólin skein i gegnum gluggana,
sem voru orðnir rúðulausir.
,,Hvað, kastalinn er bara í
rústum,” hrópaði hún allt í einu.
Hún var alveg óviðbúin högginu,
sem hún fékk, þegar Edward
stöðvaði skyndilega bilinn.
Hún rétti úr sér og leit
hræðslulega i kringum sig, hélt
fyrst að mennirnir á mótorhjólunum
væru komnir aftur, án þess að hún
hefði heyrt i þeim. En þeir sáust
hvergi. Edward var farinn út úr
bílnum og stóð og starði upp á
turnana fyrir ofan þau.
,,Hvað er að?”
Það leið stutt stund áður en
Edward svaraði. Hann stóð graf-
kyrr og starði reiðilega uppeftir.
..Þetta er rétt hjó þér,” sagði hann
loks fjarlægri röddu.
Hann fór aftur inn í bilinn og ók
hægt áfram. Meðfram veginum var
nú fólk á ferli, gangandi vegfarend-
ur, sem horfðu forvitnislega á
bilinn, einstaka hjólreiðamaður og
beyglaður, gamall vörubíll. Þau
fóru fram úr múlasna með hlass,
eigandinn tölti á eftir.
„Þetta er sá sami, sem við sáum
áðan,” hrópaði Regína og Edward
leit á hann sem snöggvast.
,,Ég sagði þér að hann myndi
verða á undan okkur uppeftir. Það
er styttra að fara troðninginn
heldur en veginn.”
Maðurinn starði á þau, þegar þau
óku framhjá, og Edward veifaði til
hans hálfbrosandi.
Regina horfði forvitin til baka og
sá að maðurinn sló i afturenda
dýrsins og hraðaði sér ó eftir.
Þau voru hér um bil komin að
borgarhliðinu. Þau óku fram hjá
nokkrum nýtískulegum húsum,
sem voru fyrir utan borgarmúrana,
fallega staðsett milli brattra
grænna vinekra.
Þau komu að einhverju, spm
líktist hóteli. Guð má vita fyrir
hvern það er ætlað, hér á þessum
afskekkta stað, hugsaði Regina.
Þar við hliðina var bilaverkstæði,
og síðan ófram lá leiðin upp
brBttann, siðasta spölinn að boga-
dregnu hliðinu, sem lá inn í borgina.
Gegnum hliðið eygði Regína mjóa
aðalgötuna, sem lá áfram uppeftir
í átt að kastalanum, sem gnæfði
eins og varðturn yfir borgina.
Þau fór framhjá bílaverkstæðinu.
Þar voru nokkrir bílar fyrir utan, en
ekkert fólk sjáanlegt. Áfram óku
þau upp brekkuna og inn í
Roccaleone. Á aðra hlið gnæfðu
hinir fornu virkisveggir.
Allt í einu var kyrrð dagsins rofin
af ópi, — hvellu, skerandi og
greinilegu.
Eins og ósjólfrátt leit Edward
upp, eitt augnablik beindi hann
atþygiinni af veginum framundan,
svn hann sá ekki mótorhjólin tvö,
sem komu æðandi á móti þeim út
frá skugganum við hliðið, fyrr en
þau voru komin alveg að honum.
Hajm neyddist til að sveigja til
hliðar og bíllinn rann áfram og inn i
sterkbyggðan steinvegginn.
í stutta stund gaf hvorugt frá sér
hljóð. ..Regína. meiddirðu þig?”
..Nei.”
,-.Þú ættir að geta opnað dyrnar
þin megin. Ég verð að klifra yfir og
fara út þín megin. Mín hurð er
föst.”
Hún opnaði hurðina og staulaðist
★
Það er saknæmt athæfi í
Bretlandi að „eyðileggja
pútnahús með ólátum."
33. baróninn frá Kinsdale á
írlandi, hafði þann heiður
lögum samkvæmt, að mega
halda hatti sínum kyrrum á
höfðinu í viðurvist hinnar
konunglegu fjölskyldu.
í sýningarhöll í Harrogate,
Englandi, var byggð mikil súla,
sem átti að benda mönnum á
að auka öryggi í umferð og
fyrirbyggja slys. Súlan hrundi.
★
Ef allir kínverjar tæku sig til
og hossuðu sér í sætum sínum
samtímis, þá mundu þeir verða
til þess að svo stór
flóðbylgja myndaðist að hún
mundi gersamlega drekkja
Bandaríkjunum.
Fíllinn er eina dýrið, sem
hefur fjögur hné.
★
Skakki turninn í Písa var
„vigtaður" af opinberum aðil-
um árið 1908 og mældist þá
14.486 tonn. Sextíu og fimm
árum síðar, þegar þungi hans
var mældur aftur, hafði turninn
rýrnað niður í 14.200 tonn.
Enginn í breska sjónvarpinu
virtist vita hvernig hægt væri
að losna við nokkrar lifandi
blóðsugur, sem höfðu verið
notaðar [ einum sjónvarps-
þættinum. Að síðustu var
ákveðið að skilja þær bara eftir
í skál og fela hreinsunarmann-
inum að losa sig við þær. Það
var háttsettur dagskrárstjóri,
sem varð fyrstur til að nota
klósettið daginn eftir. Það var
kallað á sjúkrabifreið til að flytja
hann á slysavarðstofuna án
tafar. Blóðsugunum hafði bara
verið dembt í klósettskálina.
Býflugur þurfa að ferðast
140.000 mílur til að framleiða
eitt pund af hunangi, og til
þess að fylla eina matskeið
þurfa þær að lenda á 5000
blómum.
Vörubílstjóri nokkur giftist
fjórum konum á sjö ára ferli
sínum sem fjölkvænismaður.
Þrjár þeirra hétu Irena.
35. TBL VIKAN 45