Vikan


Vikan - 01.09.1977, Blaðsíða 14

Vikan - 01.09.1977, Blaðsíða 14
stórum amerískum köggum, og reka þeir þá upp stór augu margir hverjir — en hafa nú gaman að! ,,AH —PlA" ,, Fylla, mæla olíu, athuga loftið, gerðu bara alltl!" — I hverju felst starf þitt aðallega? — Það er mest að setja bensín á bílana, mæla olíu, athuga loftið í dekkjunum, setja á gas og athuga vatnið. ,,Ekki hætt mér ut 1 raksturinn, ’ Á rakarastofu Sigurðar Ólafssonar í Pósthússtræti, vinnur Agnes Jóns- dóttir. Agnes er lærð hárgreiðslukona, og því lék okkur hugur á að vita, hvers vegna hún ynni á rakarastofu, en ekki hárgreiðslustofu, sem hún hefur þó menntað sig til. — Ég er hér aðallega til að auka þekkinguna. Mig langaði að þreyta aðeins til og hér læri ég t.d. vélklippingu, sem er ekki kennd í hárgreiðslunáminu. — Er mikill munur á að vinna á rakarastofu og hárgreiðslustofu? — Á rakarastofunni kynnist maður fleira fólki. Það er algengt á hárgreiðslustofum, að sömu konurnar komi til sömu stúlkunnar í greiðslu, og því ekki nema eðlilegt að maður kynnist fáum. Hér eru þeir líka harðari við að loka á réttum tíma, en á hárgreiðslustofunni þurfti maöur oft að vera að til kl. 7, eða klukkutíma lengur en vinnutíminn gerir ráð fyrir, einfaldlega vegna þess, að það er ekki hægt að skipa manneskju að fara út af stofunni, hálfgreiddri eða kannski með blautt hár! Þá varð maður bara að gjöra svo vel aö Ijúka sínu verki! — Eru námsgreinarnar líkar? — Já, þær eru að líkjast æ meir nema eins og ég sagði áðan, þá er vélklipping ekki kennd í hárgreiðsl- unni. i hverju felst starfið aðallega hér á rakarastofunni? Það er auðvitað fyrst og fremst klipping, en mikið um blástur og einnig setjum við permanent í hár. Rakstur hefur hins vegar farið minnkandi. Ég tel að ungir rakarar hafi misst mikið niður ,,raksturskunn- — Hvernig gengur samvinnan við karlmennina hér? — Mjög vel. Þeir taka mig alveg sem jafningja, og ef eitthvað kemur upp, þá ýta þeir á eftir mér og segja mér að standa fyrir mínu máli við viðkomandi. Þeir herða mig upp heldur en hitt. — Hvernig tóku vinir þínir því að þú færir að vinna á bensínstöð? áttuna" með tilkomu góöra rafmagns- rakvéla. — Rakar þú sjálf? - Nei, ég hef hreinlega ekki hætt mér út í það, enn sem komið er! Að vísu rakaði ég einu sinni, en það var líka algjörlega á ábyrgð viðskipta- vinarins! — Slapp hann ómeiddur?! — Já, hann hlaut að vísu nokkrar skrámur, en ekkert alvarlegt gerðist! — Hefurðu orðið vör við að hik komi á karlmennina, þegar þeir sjá þig koma með skærin á lofti? — Nei, þeir eru mjög alúðlegir, og mér finnst þeir taka mikið tillit til mín, — Ja, það voru helst strákarnir sem urðu hissa — stelpunum fannst þetta ekkert merkilegt. — Gætirðu hugsað þér að vera í þessu starfi áfram? — Nei, það held ég varla. Að minnsta kosti ekki ár eftir ár.! en ég álít nú samt ekki að það sé vegna þess að ég sé kvenmaður! Þeir eru bara einhvern veginn mun alúðlegri. Að vísu hafa sumir spurt — í gríni - hvort þetta sé nú örugglega óhætt, þegar ég birtist! — Er mikið um að konur komi á rakarstofur? — Já, þaðermunmeiraumþað en ég hafði gert mér í hugarlund. Þær koma mikið hingað í hárþvott og blástur. — Ætlarðu að vera hér áfram? — Já, mig langar að komast almennilega inn í þetta, og því verð ég hér a.m.k. um sinn. 14VIKAN 35. TBL.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.