Vikan


Vikan - 01.09.1977, Blaðsíða 11

Vikan - 01.09.1977, Blaðsíða 11
TILLÖGUR UM EFNI I BLAÐIÐ ÁGÆTI Póstur! Ég ætla að byrja á að þakka þér fyrir ágætt efni blaðsins og finnst mér það fara sífellt batnandi. Einn mesti kostur þess er, hve fjölþætl það er og hve það nær til mikils fjölda fólks þ.e. það nær til næstum allra aldurshópa og til beggja kynja. Og fyrir alla muni, haldið áfram að birta sakamála- sögurnar, sem eru alveg ágætar. En ég hef hérna eina tillögu fram1 að færa, sem ég veit að margir taka undir. Hér á íslandi hafa margar sportgreinar nýverið litið dagsins Ijós, og má þar nefna svifdrekaflug, fallhlífarstökk og svifflug, sem að vísu er ekki eins nýtilkomið. Væri ekki þjóðráð að kynna þessar íþróttir nánar, t.d. tala við félaga í klúbbunum og. fylgjast með æfingu hjá þeim, birta myndir og útskýra þetta nánar. Ég veit að margir bíða spenntir. Með fyrirfram þakklæti. Áhugamanneskja Góð tillaga! — það er einmitt nýbúið að ræða um það á ritstjórn Vikunnar, að fara að gera eitthvað i þessa áttina, og því ætti ekki að iiða á löngu þar til þér verður að ósk þinni. — Bíddu bara ró/eg! Þakka þér svo hlýleg orð i garö b/aðsins.... v TÝNDI HEIMILISFÖNGUM PENNAVINANNA Á ÍSLANDI Vikunni hefur borist bréf frá írskri stú/ku, þar sem hún óskar eftir pennavinum, en hefur fteira að segja og því birtum viö bréfið hér: Kæra Vika! Því miður get ég ekki skrifað á íslensku — en mig langar að eignast pennavini á íslandi og tvær góðar vinkonur mínar þar, HREFNA OG SISSIYA (á sennil. að vera Sesselía) létu mig fá heimilisfang þitt, en ég er búin að týna heimilisföngum þeirra og þar sem mig langar að senda þeim svolítið, langar mig að biðja þær að skrifa mér fljótt og senda mér aftur heimilisföngin. — Einnig langar mig að biðja þig að birta eftirfarandi upplýsingar um sjálfa mig í pennavinadálki: 20 ára gömul stúlka, vinn úti, en er jafn- framt í háskóla. Áhugamál eru m.a. lestur, hjólreiðar, sund, tónlist, hestamennska, göngu- ferðir úti í sveit, dýr, eldamennska (ég er grænmetisæta), prjóna- skapur og bakpokaferðalög. Ég hef mjög mikinn áhuga á islandi og langar að skrifast á við fólk úr öllum stéttum, sem hefur gaman af bréfaskriftum. Kærar þakkir. Máire Nic Canna, 25 Ascal Na Sóeimhe, Bail An Teampaill, Baile Atha Cliath 14, Ireland. Pennavinlr Ágústa D. Guðmundsdóttir, Höfðavegi 38, Vestmannaeyjum, óskar eftir pennavinum á aldrinum 14-15 ára. Hún er sjálf 14 ára. Áhugamál eru poppmúsik, dans og íþróttir. Miss Joy Marchant, 46 G/enda/e Street, Barton Hill, Bristol, BS5 9SG, England, óskar eftir penna- vinum á íslandi. Joy er 29 ára gömul og áhugamál hennar eru bréfaskriftir, frímerkja- og póst- kortasöfnun og ferðalög. Mrs. Kathy Dowe/I, 78 Seaford Road, Broadfield, Crawley, Suss- ex RH /19HT, Eng/andi, óskar eftir íslenskum pennavinum. Kathy er fædd 1941 og áhugamál hennar eru bréfaskriftir, póstkorta- og frí- merkjasöfnun, sund, tónlist og söfnun á lyklahringjum. Sigríður Söebech, Haukanesi 12, 210 Garðabæ, óskar eftir penna- vinum á aldrinum 9-13 ára. Áhugamál margvísleg. Sigríður óskar eftir að mynd fylgi fyrsta bréfi, ef hægt er. Svarar öllum bréfum. Guðrún Svava Bjarnadóttir, Hraunbæ 134, Reykjavík, óskar eftir pennavinum á aldrinum 12-13 ára. Mynd fylgi fyrsta bréfi, ef hægt er. E/fa Björk Vigfúsdóttir, Þver- brekku 3, Kópavogi, óskar eftir bréfaskiptum við stráka á aldrinum 13-15 ára. Er sjálf að verða 13 ára. Áhugamál eru hestar, popptónlist, ferðalög, strákar og sumar greinar íþrótta. Borghildur J. Kristjánsdóttir, Lyngbrekku 5, 200 Kópavogi, óskar eftir að skrifast á við stráka á aldrinum 14-15 ára. Áhugamál eru hestar, ferðalög, popptónlist, böll, ferðalög og íþróttir. Marina Mak, Woh Hup Restoran, 57 JLN Bukit Bintang, Kuala Lumpur 06-25, W- Malaysia, óskar eftir pennavinum á islandi, aldur skiptir ekki máli. Hún svarar öllum bréfum. Vinsælustu og bestu þríhjólin. Varahlutaþjónusta. Opfflin Spítalastig 8, sími 14661, pósthólf 671. 35. TBL.VIKAN 11
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.