Vikan - 01.09.1977, Blaðsíða 12
Aukið frjálsræði konunnar, utan og
innan heimilis, erflestum ánægjuefni.
Ekki er langt síðan menn höfðu á því
mjög ákveðnar skoðanir hvað væri
karlmannsverk og hvað væri
kvenmannsverk, en nú er spurt hvað er
það sem konan getur ekki? Vikan ræðir
við nokkrar ungar stúlkur, sem hafa
lagt inn á athafnasvið karlmannsins,
og forvitnast um hagi þeirra og
skoðanir. Framhald á þessum viðtölum
verður í næstu Viku.
Konur í
„karlmannastörfum’
,,Fannst
strætisvagnarnir
ógnvekjandi, ’
Frá, frá — kona við stýrið!! Algeng
setning hjá karlmönnum, sem sjá
kvenmann koma akandi á fólksbifreið.
En hvað segja þeir, þegar kona kemur
akandi á strætisvagni? — Hjá S.V.R.
starfa nú nokkrir kvenkynsbílstjórar,
og er Guðný María Guðmundsdóttir
ein þeirra. Við spjölluðum við
Guðnýju, þar sem hún sat hin víga-
legasta við stýrið í leið 3, og spurðum
hana fyrst, hvers vegna hún hafi valið
sér þetta starf, en Guðný hefur ekið
hjá S.V.R. si. þrjú sumur.
Upphafið var nú það, að mig
langaði til að taka meirapróf, en lét
aldrei verða af því. Ég var við nám í
M.T. og þar var meiraprófið ein
valgreina, svo þaö ýtti á mig að taka
það. Við sáum sjálf um að koma okkur
í prófið, en fengum svo punkta fyrir í
skólanum.
Hvers vegna langaði þig að taka
meirapróf?
— Ég taldi hagnýtt aö hafa þaö, en
hafði nú vörubílaakstur í huga þá. Mér
fannst strætisvagnar eitthvað svo
ógnvekjandi, og kom í rauninni ekki til
hugar að fara að aka slíku farartæki!
S.V.R. hafði haft stúlku í starfi
12 VIKAN 35. TBL.