Vikan


Vikan - 01.09.1977, Side 15

Vikan - 01.09.1977, Side 15
Kvenlögreglur hafa nú verið starf- andi hér á landi s.l. fjögur ár. Vikan náði tali af einni kvenlögreglu, Björgu Jóhannesdóttur, en hún hefur gegnt þessu starfi undanfarin 3 ár og starfar nú hjá rannsóknardeild lögreglunnar í Reykjavík. Blm. vissi, að Björg hefur lokið námi frá Verslunarskóla Íslands, og því lék hugur á að vita, hvers vegna hún hefði valið sér þetta starf, en ekki starf tengt menntun hennar.......... — Ég hef alltaf haft áhuga á lögreglustarfinu, allt frá barnæsku. Svo þegar kom til tals að stofna kven- lögregludeild hér, sótti ég um, en var of sein í það skiptið, svo ég fór ekki fyrr en ári síðar. Þó ég hafi farið í Verslunarskólann, kunni ég aldrei beint við mig í skrifstofustörfum, og vildi því breyta til. Ég taldi lögreglu- starfið líflegt, fjölbreytt og spennandi, sem það og er. Við sóttum tvö námskeið hjá Lögregluskóla ríkisins og lukum prófi þaðan, en á milli þeirra vorum við í þjálfun í hinum ýmsu deildum, svo það var margt sem lærðist. — Áttirðu von á að þetta starf yrði eins umtalað og raun ber vitni? — Já, ég gerði mér fulla grein fyrir því í upphafi, að þetta yrði umdeilt. Fyrst þegar við birtumst á götunum í einkennisbúningnum, var fólk mjög undrandi. Mikið var um að bílrúðum væri rennt niður og flautað og öskrað á okkur. - Kom þetta illa við þig ? - Nei, alls ekki. Mér fannst þetta allt í lagi, en mér finnst einkennilegt að undrunin virðist alltaf vera jafn mikil, þó að kvenlögregla hafi verið starfandi hér í 4 ár. — Hvernig var ykkur tekið af karlkyns lögregluþjónunum? — Þeir tóku því bara vel að fá konur í stéttina — alla vega vona ég það! Að vísu virtust þeir vilja hlífa okkur í fyrstu — en það rann svo út í sandinn! Samvinnan milli okkar er mjög góð, og ég tel að lögregluþjónar í dag sé mjög góður og samstilltur hópur. — Er starfið eins og þú hafðir gert þér í hugarlund, áður en þú byrjaðir? — Já, að mestu leyti. Þó eru alltaf einhverjir hlutir, sem koma á óvart, eins og t.d. hversu mikið er um að fólk hringi til lögreglunnar vegna málefna, sem í rauninni eru lögreglunni algjörlega óviðkomandi, s.s. persónu- legar deilur. Það er eins og sumu fólki sé fróun í að hringja í lögregluna út af öllu! En það er alltaf eitthvað nýtt sem lærist, og mér finnst starfið ekki síður áhugavert nú en þegar ég var að byrja í þessu. — Hvað finnst þér verst í þessu starfi? — Mér finnst verst að koma á staði, þar sem börn hafa lent í slysum eða blandast inn í heimilisóeirðir. Við erum aðeins hlutlaus aðili og reynum að gera okkar besta, vinna, vernda og veita þá aðstoð sem mögulegt er. — Við þurfum oft að brynja okkur og hleypa ekki tilfinningunum að. Oft er það svo, að maður sér ekki fyrr en eftir á, hversu alvarlegir hlutirnir hafa verið, það er eins og maður geri sér ekki almennilega grein fyrir þessu meðan hlutirnir eru að gerast. — Bitnar starfið ekki mikið á þér í einkalífi þínu? — Jú, það er heldur hvimleitt hve fáir virðast kunna sig hérhÞað er eins og fólk skilji ekki, að lögregluþjónar eru bara manneskjur eins og aðrir, og við þurfum okkar frítíma. Við getum ekki verið lögregluþjónar 24 tíma sólarhringsins allan ársins hring! — Verðurðu fyrir mikilli áreitni, t.d. á dansleikjum? — Já, en ég hef ekki orðið fyrir neinum persónulegum árásum í þeim tilvikum! Það er helst, að fólk vill endilega segja ,,löggusögur,'' og þá er ætlast til að ég taki afstöðu í málinu. Ég varast að hleypa röflandi fólki að mér á skemmtistöðum, enda hef ég fengið það orð á mig að vera merkileg, því ég set bara upp minn ,,vissa svip"! Hefurðu mætt einhverjum erfið- leikum í starfinu, vegna þess að þú ert kvenmaður? — Nei, alls ekki. Við vorum t.d. tvær starfandi saman á bíl á tímabili, „Lögregluþjónar þurfa líka sinn frítíma!” 35. TBL.VIKAN 15

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.