Vikan


Vikan - 01.09.1977, Síða 16

Vikan - 01.09.1977, Síða 16
og ég tel aö okkur hafi bara gengið mjög vel. Viö höfum aldrei lent í neinu, sem við höfum ekki getað losað okkur fremur auðveldlega út úr aftur! Finnst þér þú hafa breyst persónulega eftir að þú byrjaðir í þessu starfi? — Já, ég tel þetta starf mjög þroskandi, og það gerir mann yfir- vegaðan. Ég tek hlutunum allt öðruvísi eftir að ég byrjaði í þessu starfi, og hef fengið allt annað mat á lífinu. Maður verður vitni að svo mörgu misjöfnu og gerir sér þessvegna grein fyrir, hvaö maður hefur það í raun og veru gott. „Er ekki eins sterk og r karlmennirnir...’ ’ Eflaust hafa margir rekið upp stór augu, ef þeir hafa ekið gamla Hafnar- fjarðarveginn einn fagran sumardag fyrir stuttu. Þar mátti sjá bráðfallega, unga stúlku, íklædda ,,vinnugalla" með skóflu í hönd. — Þessi stúlka heitir Heiða Stefánsdóttir, og vinnur hjá borginni. Þennan dag var hún að grafa fyrir vatnsrörum, nánar tiltekið átti að leggja vatnsrörin neðar. Heiða er 16 ára gömul, og er í þessu starfi yfirsumarið, en hún fer í menntaskóla í vetur. Er sérstök ástæða fyrir því að þú valdir þér þetta starf? Nei, ég er bara það ung, að það kom ekkert nema bæjarvinna til greina hjá mér, svo ég sótti um og hlaut þetta. Hvað gerirðu aðallega? Ég vinn mest við alls konar ,,gröft," en einnig við undirþúning fyrir steypuvinnu. Svo hnalla ég líka niður gagnstéttarhellur. — Hvernig eru karlmennirnir gagn- vart þér? — Alveg ágætir! Að vísu mæti ég örlítilli gagnrýni frá þeim, því ég er ekki eins sterk og þeir! En okkur semur ágætlega. — Hvernig fannst vinum þínum að þú færir í þetta? — Stelpunum fannst þetta ekkert sérstakt, en það kemur mikið á suma stráka, þegar ég segist vinna á götunni! Hvernig tóku vinir þínir því er þú gerðist lögregla? — Þeim finnst þetta bara ósköp eðlilegur hlutur, og í beinu framhaldi af fyrri spurningu, má geta þess, að þeim finnst ég hafa breyst til batnaðar, eingöngu vegna þess hversu miklu ánægðari ég er, eftir að ég byrjaði í þessu starfi. Hefurðu orðið fyrir líkamlegum árásum í starfinu ? — Nei, ekki enn! Að vísu hafa hárreytingar verið nokkuð vinsælar, en það hefur enn ekki verið setið fyrir mér á einhverju götuhorninu — enda yrði jafnvel tekið ærlega á móti! — Telur þú að hver sem er, valdi þessu starfi? — Nei, það geri ég ekki. Þetta er starf, sem krefst umhugsunar. Það er ekki hægt að hlaupa í og úr lögreglu- starfinu. Varanlegur áhugi verður að vera fyrir hendi, og ég tel að fólk þurfi að vera komið vel yfir tvítugt, til að geta tekið ákvörðun um, hvort það í rauninni treystir sér til að vinna við þetta. Það er margt sem fylgir þessu starfi, og viðkomandi þarf að vera þess fullviss, að hann geti mætt því öllu, og tekið því með ró og skynsemi. Ég hef að leiðarljósi að flana ekki að neinu, og taka öllu með jafnaðargeði. 16VIKAN 35. TBL.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.