Vikan


Vikan - 01.09.1977, Side 21

Vikan - 01.09.1977, Side 21
dollara í verðlaun þeim, sem getur afhent okkur morfíndæluna. Skip- stjórinn má láta þetta boð út ganga meðal allra farþega.” „Haldið þér virkilega, að þér hafið eitthvað upp úr því, Larkin? Nei, þér getið ekkert sannað fyrir mér!” „Þess þarf ég heldur ekki,” svaraði Larkin. „Það ætla ég Bioki lækni. Komið, Outtle. Við skulum tala við hann.” Cuttle umlaði eitthvað fullur efagimi, en sneri handfanginu og umlaði aftur — en nú fullur gremju. Hann sneri handfanginu fyrst til þessarar áttar, síðan hinnar. Fyrst til reynslu, síðan ofsareiður. Dyrnar voru læstar — að utanverðu. 8. KAFLI. Cuttle snuðraði í kring og hélt vasaljósinu rétt við nefið á Larkin. „Hver andsk.....er nú á seyði,” öskraði hann. Larkin deplaði augunum. „Heyrið þér?” Cuttle hlustaði. Það var hægt að heyra óljóst fótatak, sem fjarlægð- ist óðum. „Hver skrambinn getur þetta verið?” spurði Cuttle. ,, Ég er ekki ley nilögreglumaður, ’ ’ sagði Larkin stríðnislega. „Ja hver getur þetta verið?” I stað þess að svara reyndi Cuttle að opna dyrnar með hjálp handa sinna, fóta og vasalugtar. Jafnframt gengu fram af munni hans hinar hroðalegustu ógnanir, ef þeim yrði ekki hleypt út hið fyrsta. Það liðu um það bil fimm mínútur áðuren háseti einn, sem heyrt hafði bramboltið, opnaði. Hann sagði eitthvað á japönsku. „Hvað er hann að segja?” spurði Larkin. „Hef ekki hugmynd um það,” svaraði Cuttle og glápti undrandi á lykilinn, sem stóð í skránni að utanverðu. , .Eigum við ekki að smella okkur í að hitta lækninn, herra leynilög- reglumaður,” stakk Larkin upp á. Þremur mínútum síðar stóðu þeir í borðsalnum og börðu að dyrum hjá skipslækninum. Er þeir hafðu tvisvar barið, opnuðust dyr bak við þá og George Willowby rak höfuðið út um gættina. „Jæja, það eruð þér. Eruð þér að leita að Bioki lækni. Hann hlýtur að vera inni, því að Hood var að koma frá honum fyrir andartaki.” Cuttle reyndi enn einu sinni að berja, en þar sem enginn svaraði, réðst hann i að opna þær. Jú, svo sannarlega var dr. Bioki þar inni. Hann sat í stólnum við skrifborðið, laut fram og studdi höndunum á hnén. Og í bakinu á honum stóð skaftlangur, austurlenskur hnífur! „Hver þremillinn!” sagði Cuttle og greip undir hökuna á lækninum til þess að lyfta slöppu höfðinu upp frá brjósti hans. Hinn hraustlegi litblær dr. Biokis hafði nú vikið fyrir vaxgulum | ÍSLENZKAR BÆKUR DANSKAR BÆKUR OGBLÖÐ | NORSKAR BÆKUR ISÆNSKAR BÆKUfí, ÞÝZKAR BÆKUR OG BLÖÐ _________ | SPÆNSKAR BÆKUR ENSKAROGli .......i ameriskaFíækurJ | ÍTALSKAR BÆKUR ÚTVEGUM ALLAR FÁANLEGAR BÆKUR SÍMAR 14281 13133 11936 Bókaverzlun SNÆBJARNAR Hafnarstræti FRANSKAR BÆKUR OG BLÖÐ Bókaverzlun SNÆBJARNAR Hafnarstræti 35. TBL. VIKAN21

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.