Vikan


Vikan - 01.09.1977, Side 48

Vikan - 01.09.1977, Side 48
SMÁSAGA EFTIR GEORG GOODCHILD Ti /r cLean taldi frábært minni sitt mikilvægast af með- fæddum hæfileikum sínum. Hann var revndar varla nema í meðallagi, hvað snerti nafn og vöxt fólks, en andlitum gleymdi hann aldrei. Þessi hæfileiki gat bæði verið til ills og góðs. því að á ferðum sínum um London var hann stöðugt minntur á liðna atburði. Slíkt átti sér einmitt stað dag nokkurn að vorlagi. Regnið streymdi niður, og hann fór inn á veitingahús. Hvortveggja var, að hann leitaði skjóls og vildi drepa tímann í fimmtán mínútur, en hann átti mikilvægan fund fyrir höndum. Hann setti regnhlífina sína i körfu frammi í anddyrinu og gekk inn í veitingasalinn og bað um könnu af tei. Þegar hann var á leið út aftur og ætlaði að grípa regnhlífina, sá hann, hvar hávaxinn maður var kominn með gripinn i hendurnar. — Fyrirgefið, sagði hann. — En þetta er vist regnhlifin mín. Maðurinn snéri sér við, og samstundis varð McLean hugsað til liðinna atburða í stóru húsi í Kensington með stórum gluggum, sem snéru út að fallegum garði. — Ég hefi víst tekið misgrip, sagði maðurinn. — Éfe held, að þér hafið ekki verið með neina regnhlíf, Lorimer, sagði McLean. George Lorimer varð flóttalegur til augnanna, hann retti McLean regnhlífina. Hann hafði líka gott minni varðandi útlit manna. — Einkennilegt, að við skulum hittast á þennan hátt, sagði hann. — Ég var heppinn að hitta yður, annars hefði ég glatað regnhlífinni minni! sagði McLean háðskur. — Svona mistök geta alltaf átt sér stað, allavega virðist einhver hafa gripið mína regnhlif. Hvað er eiginlega langt síðan, lögreglufor- ingi? — Tíu ár. — Svo langt? Ég hefi verið mjög ungur. — Já, það voruð þér. Það var eiginlega synd að stinga yður inn. — Ég er ekki bitur, eg átti það skilið. Jæja, það virðist vera hætt að rigna, ég verð að hlaupa. George Lorimer lyfti hendinni i kveðju- skyni og ruddi sér braut gegnum manngrúann á gangstéttinni. Mc- Lean var ergilegur yfir því að geta ekki séð, hvað yrði af honum, en hann mátti ekki missa af fundinum. Þegar hann fór út um dyrnar, gekk hann beint í flasið á ungum lögreglumanni, sem starfaði í hans deild. — Walters, sagði hann. — Sjáðu manninn þarna í brúna frakkanum, hann er að fara yfir götuna. Eltu hann og gættu að hvert hann heldur. Ég verð kominn á skrifstof- una eftir klukkustund, þú gefur mér skýrslu þá. ALTERS leit snöggt til mannsins, sem McLean benti honum á og hraðaði sér á eftir honum. Hálfri annarri stundu síðar var hann sestur inn á skrifstofu McLeans. — Hann hitti stúlku í Trocadero, sagði hann. — Huggulega stúlku, rauðhærða og bláeygða. Þau rædd- ust við í nokkrar minútur, og síðan fór hann í Barrett Street í fyrirtæki, sem heitir „Enterpriser Limited”. Ég dokaði við fyrir utan, en hann kom ekki aftur út. Ég fór því inn á eftir honum og sá til hans gegnum glerhurð. Það lítur út fyrir, að hann sé eigandi þessa fyrirtækis — hvað sem það nú er. — Enterprises Limited, sagði McLean. — Það getur verið hvað sem er. Brook, vertu svo vænn að fletta upp á því í símaskránni. — Brook yfirlögregluþjónn fletti skránni. — Enterprise Club — Enterprise Cafeteria — Enterprise glugga- hreinsun. Nei her er það ekki skráð, sagði hann. — Það stendur kannski undir nafni George, gættu að George Lorimer. Brook fletti skránni aftur, en sagði, að engan væri að finna með því nafni með þetta heimilisfang. — George Lorimer, sagði hann. — Mér finnst ég kannast við nafnið. Var ekki maður með því nafni bendlaður við Lane-málið? Nei, heyrðu, það var ekki það. — Ég skal spara þér heilabrotin, sagði McLean, — George Lorimer var bendlaður við hlutabréfamis- ferli, og við handtókum hann í mjög fallegu húsi í.. — Kensington! hrópaði Brook. — Myndarlegur náungi, en fjandi frakkur. — Stendur heima. Hann hefur ekkert breyst, í dag stóð ég hann að verki, þegar hann ætlaði að stinga af með regnhlífina mína. Ef hann rekur fyrirtæki, grunar mig að eitthvað grugguggt sé þar á seyði. ÆSTA dag fór McLean í heimsókn í Enterprises Lim- ited. Hann kom inn í afgreiðslu, þar sem ungur maður sat á bak við borð, og á glerhurð á bak við hann stóð „Forstjóri”. Aðspurður hvort forstjórinn væri viðlátinn, svaraði ungi maðurinn því til, að hann skyldi athuga málið og bað um nafn McLeans. — Segðu honum bara, að það sé gamall vinur að spyrja eftir honum, sagði McLean. Ungi maðurinn var sriar í snúningum og kom strax til baka og bað hann að gjöra svo vel. Eftir augnablik var McLean í skrifstofu Lorimers Ung og aðlaðandi stúlka verður á vegi verkfrœðings frá Suður-Afríku, sem dvelur í leyfi í London.Kynni þeirra leiða ýmis óþægindi af sér fyrir verkfræðinginn, en McLean kemur á vettvang og hjálpar upp á sakimar. 48VIKAN 35. TBL.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.