Vikan


Vikan - 01.09.1977, Síða 54

Vikan - 01.09.1977, Síða 54
Só/stunga Vissir þú að í bíl, sem lagt hefur verið í sólarátt, getur hiti orðið ca. 70 gráður og meira. Á þessu sést að mjög hættulegt getur verið að skilja t.d. smábörn eftir í bíl, sem lagt hefur verið á þennan hátt, þau gætu átt á hættu að fá sólsting. Sóstingur eða einkenni hans koma fram á þann hátt að svimi, þorsti, höfuðverkur, hiti, í stuttu máli vanlíðan, jafnvel meðvit- undarleysi sækir að. Hafi þetta átt sér stað, þá kælið andlit og hnakka ásamt úlnliðum með rennandi klútum. Allrabest er ef sjúklingurinn getur setið og haldið höndunum undir rennandi ískaldri vatnsbunu. Sé tilfellið mjög slæmt, þá kallið á sjúkrabíl og reynið á meðan blástur- aðferðina, sé hennar þörf. B/á/eitar varir Bláleitar varir eru vandamál margra, jafnvel sama hve mikill varalitur er borinn á varirnar, blái liturinn kemur í gegn. Úr þessu má bæta með því að nota gulan varalit áður en þú lætur þann rauða á varirnar. Hjartatilfelli Það getur verið stórhættulegt í sól og hita, að drífa sig allt í einu í allskonar íþróttir í einum hvelli, sérstaklega séuð þið allsendis óvön mikilli áreynslu og hreyf- ingu. Farið hægt af stað meðan líkaminn er að venjast. Farið þið of hratt af stað með slíkt gætuð þið jafnvel átt hjartatilfelli á hættu. i öllum bænum kallið strax á sjúkrabíl ef minnsti grunur leikur á sliku tilfelli. Á meðan beðið er getið þið reynt að láta sjúklinginn sitja uppi við á meðan þið leysið um allt, sem þrengir að. Sé sjúklingurinn meðvitundarlaus þá leggið hann niður og sjáið um að höfuðið beygjist aftur. Ef þið haldið, að blástursaðferðin komi að gagni þá reynið hana. Beinbrot Hafi einhver brotið nandlegginn, þá keyrðu með viðkomandi strax af stað á slysavarðsstofuna. En hafi fótur brotnað þá kallið á sjúkrabílinn. Það getur verið hættulegt að flytja fótbrotinn sjúkling. siysum, onoppum hættuástandi og hvernig köllum við á hjálp? Þetta eru ekki eins haldgóðar upplýsingar hér, eins og þú færð, ef þú lærir hjálp í viðlögum en eigi að síður gætu þessar upplýsingar komið að gagni. Þú ættir að rífa þessar síður úr blaðinu hengja þær upp á vegg á góðum stað, þar sem allir geta lesið ráðin, sem gefin eru. Auðvitað er best að þú þarfnist þeirra aldrei — en komi til þess samt sem áður, þá er ekki verra að hafa þau og líka með það í huga að spara ef til vill dýrmætar mínútur. 54VIKAN 35. TBL. „Hobbyóhapp" Við eigum það gjarna til að hella okkur út í allskonar hobbyvinnu. Því miður endar sú vinna oft meðskrámum, snúnum fótum og jafnvel opnum sárum. Látið vera með að reyna að ,,lappa upp á," farið heldur til læknis. Og þegar um djúp sár er að ræða, er rétt að muna að hætta getur verið á stífkrampa. Hreinsið sárið með vatni og sápu og skolið með 3% brintoverilte. Þá fyrst skal pensla með joði og gjarna leggja kompressu yfir sárið. Þegar eitthvað hættu/egt kemur fyrir Sumarið er á enda, en margir landar eiga eftir að halda suður á bóginn þannig að ráðlegging- arnar hér á opnunni varðandi sólina geti komið sér vel. Við erum glöð og ánægð og ætlum að taka lífinu með ró — en í frítímum geta óhöpp- in átt sér stað eins og svo oft vill verða og hvað þá? Hvernig bregðumst við við

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.