Vikan - 20.10.1977, Síða 16
Erin Fleming minnist Grouchos
Marx með söknuði og sagði eftir
lát hans: ,,Þetta var mjög vilja-
sterkur maður. Hann er ekki dáinn
í alvöru. Ef ég þekki hann rétt,
mun hann aðeins fá sér góðan
blund og hvíla sig næstu aldirn-
ar."
Þótt Groucho sé dáinn, munu
skrýtlur hans lifa. Skömmu fyrir
andláltið var honum sagt, að
maður væri kominn að spyrja eftir
honum.
— Hver er það?
— Hann sagði ekki til nafns, en
hann er með yfirskegg.
— Segðu honum, að mér nægi
mitt skegg, svaraði Groucho.
Eitt sinn spurði alríkislögreglan
(FBI) Groucho að því, hvort það
væri rétt, að hann hefði sagt
opinberlega, að hann óskaði þess,
að Nixon yrði myrtur. Þá svaraði
hann: ,,Ég neita öllu, því ég lýg
alltaf og allt, sem ég neita, er
lýgi"
,,Ég myndi aldrei gerast með-
limur í klúbbi, sem féllist á að gera
mig að meðlim," sagði hann líka
eitt sinn.
Fræg er sagan af Groucho og
frú Claire Boothe Luce, eiginkonu
hins valdamikla forstjóra Life-
ritsins. Eisenhower hafði nýlega
skipað hana sendiherra Bandaríkj-
anna í Rómaborg, er Groucho
lenti með henni í fínni veislu í Los
Angeles. i lok samkvæmisins varð
Ijóst, að þar sem frú Luce hafði
komið ein, þurfti hún að
fá herrafylgd heim — en hún
dvaldist hjá vinum sínum
í Bel Air hverfinu. Groucho
bauðst til að aka henni heim —
því, að því er hann sjálfur sagöi,
hafði hann séð á frúnni, að hún
hafði strax séð á meðfæddri
riddaramennsku hans, hve hann
skar sig úr skrílnum, sem var til
Síðustu 6 æfiárin var Groucho í
vinfengi við Erin F/eming, sem
gerði hann ungan í annað sinn,
eftir því sem vinir hans segja.
staðar. Groucho hafði ekki
minnstu hugmynd um í hvaða
hluta stórborgarinnar Bel Air-
hverfið var. En fremur en viður-
kenna það fyrir hinum fagra og
tigna förunaut, ákvað hann á láta
lukkuna ráða. I dögun lagðist
dimm Kyrrahafsþoka yfir borgina,
og Groucho, sem ók hring eftir
hring, tók eftir því, að frúin fór
smám saman að verða óróleg.
Loks áræddi hún að spyrja:
16VIKAN 42. TBL.