Vikan - 20.10.1977, Qupperneq 35
Um þessar mundir eyöa bretar miklu
fjármagni í tilraunir til að vinna orku úr
haföldum. Ef íii vill verður það „hoppandi
öndin," sem leysir kjarnorkuverin af hólmi
„Hoppandi öndin," „flotinn" og „bjórdósin"
eru meðal þeirra uppfinninga, sem um þessar
mundir ber hæst hjá þeim, sem vinna að því að
reyna að nýta þá orku, sem [ haföldum felast.
„ANDASTELIÐ
FYLGIR
ÖLDUHREYFINGUNNI
RAFALL
Reynt er að vinna orku úr öldunum gegnum
ýmsar gerðir flothylkja, sem komið er fyrir í
keðju spölkorn frá landi. Bak við flothylkin
kyrrist sjórinn og gárast naumast.
Líklega eru mestar vonir bundnar við „hoppandi
öndina." Sú uppfinning fæddist raunar fyrir
tilviljun. Breskur vísindamaður spurði tölvu,
hvernig flothylkið ætti að lita út, og svarið var
nákvæm mynd af önd! Nú eru uppi ráðagerðir
um að leggja keðjur af ,,öndum" úti fyrir strönd
Englands. Og þegar olían og kolin eru gengin til
þurrðar, á ,,öndin" að koma til skjalanna.
„FLOTINN"
VATNSAFLSHLEKKIR
.BJÓRDÓSIN"
HVERFLAR
,,Flotinn" er einnig ensk uppfinning. Hér er raunar um að ræða flekakeðju, og orkan er
unnin úr öldunum með vatnsaflshlekkjum milli flekanna. „Bjórdósin" er japönsk
uppfinning. Hólkurinn er opinn að neðan. Þegar öldur skella á hólknum, fer vatnssúlan
inni í honum á hreyfingu og knýr hverfla, sem þar eru.
Ölduaflið hefur stóran kost öldurnar eru
mestar á veturna, þegar orkuþörfin er einmitt
most. En það verður einnig að vera til staðar olía,
kol eða sólarafl til að mæta þeim dögum, þegar
gerir lygnan sjó.
er margt órannsakað i sambandi við
nýtingu ölduafls og varla búist við, að stórfelldar
tilraunir hafi skilað árangri fyrr en eftir u.þ.b. tíu
ár. En kannski verður „hoppandi öndin" farin að
flytja heimilunum orku um næstu aldamót.
Texti: Anders Palm Teikn.: Sune Envail
Bretar hafa gnægð ölduafls við strendur sínar,
einkum úti fyrir norðvesturströndum Englands
og Skotlands, en einnig út af Cornwall-skagan-
um. Fræðilega séð ætti 100 mílna löng keðja af
,,öndum" að geta fullnægt helmingi af orkuþörf
landsins.
Leysir
„andaflotinn”
orkuvandann