Vikan - 20.10.1977, Side 54
o O O \
V / ^ Q
BLASTURS
VÖKVI
Fyrir dömur og herra.
Lagningarvökvi fyrir hárblást-
ur. Enginn vinsælli á markaön-
um. Hentugur smellutappi.
'nmmeríákaí
Tunguhálsi 11,
Árbæjarhverfi, sími 82700.
Þessi tvö borð, eru einkar einföld og
ekki vafi á því, að laghentir lesendur
Vikunnar geta notfært sér hugmynd-
ina að einföldu og ódýru húsgagni.
Ef við byrjum á því að líta á
aflanga borðið, þá ráðast málin af
því, hve langt það á að vera, og
þarfirnar eru auðvitað misjafnar.
Platan getur verið með enda-
stykkjum, eða ef þið setjið hana
milli veggja nægir að láta plötuna
hvíla á listum, sem skrúfaðir eru í
veggina.
Plötunni er skipt í fjóra hluta:
Vinnupláss, hillu fyrir sjónvarp,
pláss fyrir matborð og geymslu-
rými. En þið finni út hvað ykkur
hentar frekast. Hvert hólf er 80 sm
á myndinni, dýptin er 40 sm og
hæð 74 sm.
Þiðnotiðspónáplöturog límið og
skrúfið stykkin saman, snarið úr
fyrir skrúfunum, og það er
mikilvægt að vinna vel undir
málningu til að fá fallega áferð.
Það má líka hugsa sér að setja
harðplast á borðplötuna, t.d. ef
þið smíðið svona í barnaherberg-
ið, sem virðist raunar tilvalið.
TVÖ BORÐ - EINN SÖKKULL
Kringlótta borðið er 1 metri í
ummál og 7 sm hátt. Eins og það
er sýnt á myndinni, er pláss fyrir
fjóra við það. Ef fleiri eiga að fá
sæti, er einfafðl'ega lögð stærri
plata ofan á það og þá rúmast 10
manns kringum það. Þegar ekki er
verið að nota stóru plötuna má
t.d. hengja hana upp á vegg á
traustan krók. Platan á ekki að
vera neinn kjörgripur, heldur
hentugt borð til að leika sér við og
matast, og því ekkert á móti því að
bora í plötuna gat, til að hengja
upp á.
Þið sjáið, hvernig sökkullinn er
gerður samkvæmt teikningunni
Tvo einfoli
og óþarfi að fjölyrða um framgang
verksins. Þið eigið að skrúfa litlu
plötuna í sökkulinn.
Stóra platan er það þung, að
hana leggið þið lausa ofan á,
þegar hennar er þörf. Þó er ekki Málin fara eftir þörfum. Ef ptatan
verra að líma filtbúta neðan á er á milli veggja, setjiö þið lista í
plötuna, hún rennur þá síður til. veggina og sleppið endastykkjun-
um.
54VIKAN 42. TBL.