Vikan - 05.01.1978, Side 9
✓
— Þetta er skipstjórinn, sem
talar... Við skulum syngja
„Hafið bláa hafið..."
— Við erum heppnir. Þeir eru
siðmenntaðir.
— Það hefur lækkað í verði!
ÞRJÁR KONUR LÝSA OPINSKÁTT
. LÍFI SÍNU MEÐ BAKKUSI
Alkóhólismi — drykkjusýki. „Ólæknandi, stigvaxandi og stigversnandi sjúkdómur," segja þeir, sem vit
hafa á. Það er aðeins örstutt síðan fólk fór að viðurkenna alkóhólisma sem sjúkdóm hér á landi. Því miður
verðum við þó að horfast í augu við þá staðreynd, að það eru ekki nærri allir, sem gera það, og þeir eru enn
margir, sem líta á þetta sem ræfildóm viðkomandi manneskju. Á siðasta ári hafði Vikan viðtal við þrjá
karlmenn, sem eiga við þennan sjúkdóm að glíma, en í næsta blaði er röðin komin að konunum.
Sjúkdómurinn er vitanlega sá sami hjá báðum kynjum, en aðstæður eru oft aðrar, og til dæmis kemur
drykkjusýki mæðra oftast meira við börnin og heimilið, en þegar um föðurinn er að ræða. Einnig er rætt við
Stefán Jóhannsson félagsráðunaut á vistheimilinu á Vífilsstööum, og ung stúlka segir frá reynslu sinni og
móður sinnar, sem var drykkjusjúklingur, en hefur nú fengið hjálp. í næsta blaði verður einnig önnur
greinin í greinaflokknum um veitingastaði í London, og verður þá lýst heimsókn á franska staðinn le Chef.
Birt verður myndaopna úr Ijósmyndasamkeppni Vikunnar og Dagblaðsins, við fjöllum um skíðabúninga og
skíðaútbúnað, snyrtingu og sitthvað fleira.
VIKAN. Útgefandi: Hilmir hf. Ritstjóri: Kristín Halldórsdóttir. Blaðamenn: Aðalsteinn Ásb. Sigurðsson,
Anna Kristine Magnúsdóttir, Sigurjón Jóhannsson. Útlitsteiknari: Þorbergur Kristinsson. Ljósmyndari:
Jim Smart. Auglýsingastjóri: Ingvar Sveinsson. Ritstjórn og auglýsingar í Síðumúla 12. Simar
35320—35323. Afgreiðsla og dreifing í Þverholti 11. Sími 36720. Pósthólf 533. Verð í lausasölu kr. 400.
Áskriftarverð kr. 1500 pr. mánuð, kr. 4500 fyrir 13 tölublöð ársfjórðungslega, eða kr. 8460 fyrir 26 tölubl.
hálfsárslega. Áskriftarverð greiðist fyrirfram. Gjalddagar: Nóvember, febrúar, maí, ágúst.
I NÆSTU lflKU
1. TBL.VIKAN 9