Vikan - 05.01.1978, Side 10
VINARBRÉF FRÁ H.P.
VINKONU
Elsku Póstur, vinur minn!
Ég þakka þér innilega fyrir
svarið við bréfi mínu í 40. tbl. 39
árg. Ég hresstistsko íbragði, þegar
ég las það svar, af því að einmitt
þá var ég í mikilli ástarsorg. Ég
grét og grét alla tíma og gleymdi
meira að segja H.P., og þá er sko
mikið sagt. Það er nefnilega alltaf
þannig, að loksins þegar ég verð
ástfangin, þá er það af manni,
sem er giftur og á jafnvel barn, og
ég verð sko að gjöra svo vel að
gleyma honum. Annars varð ég
sko yfir mig hissa á svarinu þínu til
mín. Sko, fyrstu tvö bréfin, sem
ég skrifaði þér birtir þú bara ekki,
það þriðja birtir þú, af því ég bað
þig svo innilega um að gera það,
en nú er svo komið, að ég má bara
alls ekki hætta að skrifa þér.
Drottinn minn dýri! Þetta endar
með ósköpum. Annars finnst mér
reglulega gaman að skrifa þér. Þú
ert svo góður við mig. Nú verður
þú að spyrja Helga Pé. fyrir mig,
hvort það komi ekki út plata með
tónleikunum í Austurbæjarbíói, þú
vflist ,,Ríó hittir fólk." Ef svo
verður, þá hlakka ég alveg
óskaplega mikið til, og ég ætla sko
að kaupa þá plötu. Veistu það, að
ég gat ekki samið neitt Ijóð handa
þér núna, bara einfaldlega vegna
þess að ég hef ekki haft tíma til
þess. Ég hef alveg svakalega
mikið að gera alltaf núna, og þess
vegna er líka orðið svo langt síðan-
ég skrifaði þér síðast. Ég vil líka,
sem betur fer, alltaf hafa nóg að
gera, af því annars færi ég bara að
hugsa um alla strákana, sem ég
er skotin í, og færi þá kannski að
gráta og... sleppum því. Hérna,
megrunarkúrinn minn gengur eins
og vanalega, mér tekst bara að
halda mér í sömu kílóunum, en
það er alla vega betra en að
þyngjast. Finnst þér ekki! Ég er nú
orðin svo spennt að vita, hvað
vinur okkar á DB sagði yfir hinu,
þú veist, að ég held ég verði að
kveðja þig.
Bless, bless.
H.P. vinkona
Sæ/ vinkona! Ég fæ a/drei leið á að
heyra frá þér! Það er gaman að
heyra, að þú hefur mikið að gera
og situr ekki og grætur út af
einhverjum strákum! Þeir eru
yfirieitt ekki þess virði! (jú, kannski
sumir....!!) En bessuð reyndu nú
að finna þér einhvern ógiftan, þá
hefurðu a. m. k. von um, að
eitthvað gangi, hitt er svo
ske/filega vonlaust. Hvað áttu við
með, að ég hafi ekki birt fyrstu tvö
bréfin frá þér? Ég heid ég hafi birt
ÖH þín bréf, enda ekki nema
sjálfsagt, þar sem þú ert ein af
þessum kurteisu, sem setja nafn
sitt og heimiiisfang undir bréfin.
Veistu hverju ég tók eftir? Þú
skrifar bara góða íslensku. Þetta
er í fyrsta skipti í aiiiangan tíma,
held ég, sem ég sé í bréfi tii mín
Sápa og shampó í
sama dropa.
Doppeldusch
í steypibaðið
J.S. Helgason sf sími 37450
PÓSTIRIW
,,ÉG hiakka tii," — en ekki MÉfí
eða MiG hiakkar tii. Piatan ,,fííó
hittir fó/k er löngu komin út, en ef
þú átt við plötu, sem hefur verið
tekin upp á hljómleikunum sjá/f-
um, þá er ekki von á neinni slíkri,
þar sem þessir tónleikar voru ekki
teknir upp. Helgi sagði mér ekkert
um hvernig honum fannst send-
ingin frá þér... — Myndin, sem þú
sendir mér, er sko ekkert lik mér,
góða mín, þetta er mynd af Helga
Pé!!! Haltu bara áfram með
megrunarkúrinn, ég er alveg viss
um, að þetta fer að ganga hjá þér.
Atveg datt mér í hug, að þetta
værir þú á Ríó-hljómleikunum —
geislandi af gleði! (og þú ert
ekkert stærri eða feitari en aðrir).
Jæja vina, ég óska þér bara
gleðilegs nýs árs, og vona, að v'ð
getum birt bréf frá þér á árinu
1978!
VINKONAN BRÁST
Elsku Póstur!
Svo er mál með vexti og
vaxtavöxtum, að ég var búin að
vera á föstu með strák nokkuð
lengi, eða svona þrjár vikur. Hann
var búinn að reyna við mig lengi,
en ég var ekkert hrifin af honum.
En svo vorum við einu sinni
saman, og þá fannst mér ofsa gott
að vera með honum, og við vorum
alltaf saman eftir það. Svo hætti
hann allt í einu með mér, og ég
vissi ekki neitt, og svo hitti ég
hann og spurði, hvað væri að, og
hann sagði bara, að við skyldum
vera vinir og allt væri í lagi. Mér
fannst það náttúrulega ekkert allt í
lagi, því nú var ég orðin ofsalega
hrifin af honum. Ég var ferlega leið
og fannst ekkert gaman með
krökkunum lengur, og svo bað ég
vinkonu mína að reyna að komast
að því, hvað hefði gerst og hvort
hann vildi ekki lengur neitt með
mig hafa. Hún var alltaf að kjafta
viðhann og sagðist ætla að komast
að honum með lagni, og ég var
alltaf að spyrja hana, en hún gat
aldrei sagt mér neitt. Svo í
gærkvöldi, komst ég að því, að nú
eru þau á föstu og búin að vera
það lengi, eða allan tímann, sem
ég hélt, að hún væri að reyna að
veiða hann fyrir mig. Mér finnst
þetta ferlega ómerkilegt af henni,
en ég get ekkert sagt. Heldurðu,
að hann vilji eitthvað með mig
hafa? Hvað á ég að gera til að ná í
hann aftur, og hvað á ég að gera
við vinkonu mína? Hjálpaðu mér nú
elsku Póstur.
Þín Abba.
A/lt er i heiminum hverfu/t, segir
máltækið, og það á svo sannar-
lega við um unglingaástir. Þú getur
bókað, að það eru fleiri fiskar I
sjónum og engin ástæða til gráta
þennan. Finndu þér /íka nýja
vinkonu. Þessi er heldur ómerki/eg
og bara gott fyrir þig að vera laus
við hana. Hertu upp hugann,
Abba mín, og líttu í kringum þig
eftir nýjum félögum. Heimurinn er
fullur af skemmtilegu fólki!
AF HVERJU?
Kæri Póstur!
Ég hef aldrei skrifað þér áður og
vona, að bréfasafnarinn þinn sé
ekki soltinn núna. Mig langar að
spyrja þig nokkurra spurninga.
1. Af hverju eru ekki fleiri
skemmtistaðir fyrir 13 ára og upp í
16 ára aldur? Hvaða skylda er að
ganga í skóla? 3. Af hverju mega
krakkar ekki fara til útlanda eins
og fullorðnir? 4. Af hverju mega
krakkar ekki vera út til tíu fyrir
löggunni? 5. Eiga Ijónsstelpa og
nautsstrákur saman? Með fyrir-
fram þökk
Ein leið
Ég er alveg sammála þér, að það
eru allof fáir skemmtistaðir fyrir
þennan aldur, og við verðum bara
að vona, að úr því verði bætt sem
fyrst. Það er ósköp ieiðinlegt að
híma i biðröð fyrir utan þennan
eina skemmtistað og eiga ekki i
önnur hús að venda. Þú ert
skyldug að vera i skóla til 14 ára
aldurs (eftir 2. bekk gagnfræða-
skóla). Krakkar hafa ekkert að
gera til útlanda aleinir. Þið kunnið
sjaldnast tungumál þeirrar þjóðar,
sem þið fariö til, og eruð því svo til
ósjálfbjarga þar, efeitthvað kemur
fyrir. Krakkar mega vera út til
klukkan tíu á kvöldin frá 12-15 ára
10VIKAN 1. TBL.