Vikan - 13.04.1978, Síða 6
Sídumúla 15, Sími33070
gjarn
Pampers
PAHHIRSBLEIUR MEÐ
ÁEÖSTUM PLASTIKBUXUM
Undramjúkt efni PAMPERS hvílir
næst hörundinu, en rakinn dreifist í
pappírslög sem taka mikla vœtu.
Ytrabyrði er úr plasti. Rúm og ytri-
buxur eru því ávallt þurr. PAMPERS
eru sem tilsniðnar fyrir barnið og
gefa mikið frelsi til hreyfinga.
Límbönd á hliðum gera ásetningu
einfalda.
““g&meriafe* :
HmÐKC
Fjórarfjölskyldur he
Fyrir þremur árum gerði Vikan svolitla könnun á
því, hvað fólk eyðir mánaðarlega í mat og annað,
sem til nauðþurfta telst. Þrjár fjölskyldur héldu
búreikninga fyrir Vikuna i febrúarmánuði árið
1975 og niðurstöðurnar vöktu mikla athygli, því
þetta er nokkuð, sem öllum kemur við.
Areiðanlega er það svo á mjög mörgum heimilum,
að fólk veit gróflega, hver eru heildarútgjöld
fjölskyldunnar frá einum mánuði til annars, en
gerir sér aðeins óljósa grein fyrir því, hvernig
þessi útgjöld skiptast. Þetta er vitanlega ekki
staðhæft með neinni hneykslun, því það er
sannarlega ekki Utið verk á þessum hraðfleygu
verðbólgutimum að hafa nákvæmar reiður á
útgjöldum.
Við sjáum matarreikninginn stíga um nokkur
þúsund mánaðarlega og bölvum hœkkununum
ósköp máttleysislega, og það er erfitt að meta,
hvort það var kjötliðurinn eða ávaxtaliðurinn,
sem hækkaði mest, eða hvort það var eitthvað
enn annað. Eina leiðin til að komast að því er að
færa nákvæmt bókhald á borð við það, sem fjórar
fjölskyldur hafa nú gert fyrir Vikuna. Þær gerðu
okkur þann greiða að halda búreikninga ifebrúar-
mánuði og bóka alla sina eyðslu sundurliðaða.
Þessar fjórar fjölskyldur eru ákaflega ólíkt
samansettar og hafa ólíkar aðstæður, svo að
flestir lesendur ættu að geta borið sig saman við
einhverja þeirra. Og vonandi verður þetta tiltæki
okkar til að hvetja fleiri til að gera slikt hið
sama. Það veitir ekki af að hressa upp á verðskyn
Islendinga, sem er því miður orðið afar sljótt, sem
kannski er vonlegt. Og vilji menn spyrna við
fótum og reyna að haga útgjöldum heimilanna
skynsamlega, er fyrsta skrefið að gera sér fulla
grein fyrir, í hvað peningarnir fara.
Við birtum einnig útfyllingarformið, sem
fjölskyldurnar notuðu við búreikningana, og geta
lesendur þá notað það við færslu útgjalda á eigin
heimilum. Neðanmáls á útfyllingarforminu má
sjá, hvernig flokkað er undir hina ýmsu liði. Og
verði þetta tiltæki Vikunnar einhverjum til gagns
við að átta sig á útgjöldum sínum og hvernig
hugsanlega megi úr þeim draga, þá er
tilganginum náð.
b ^adolin
traa og jorn
3%y-piastiTio!KiS>
í£S£K*O0Ud
•rn