Vikan - 13.04.1978, Blaðsíða 12
greiddi í febúar síðustu afborgun af
hraðsaumavél, sem hún œtlar að
vinna við heima, krónur 40 þúsund,
en véhn kostaði 140 þúsund krónur.
Þórður átti bíl hér áður fyrr, en nú
hafa þau engin efni á að eiga bíl.
Guðný þarf ekki að skipta um
strætisvagn, þegar hún fer i vinnu,
en Þórður þarf stundum að skipta
um vagn. Þau hafa með sér nesti í
vinnuna og borða heitan mat á
kvöldin. Þau hafa frystikistu og
kaupa kjöt í skrokkum og oft fisk til
lengri tíma. Guðný drekkur aldrei
mjólk nema út í kaffi, og Þórður
drekkur sjaldan mjólk, en stundum
undanrennu. Þau rækta kartöflur í
smáum stíl og dugar uppskeran
þeim fram til jóla.
Þau leitast við að leggja smávegis
til hliðar af launum sínum til að
mæta óvæntum útgjöldum og
Þórður, sem sér um að borga skatt-
ana, reynir að hafa allt á hreinu í
október, nóvember til að hafa rýmri
fjárráð í desembermánuði.
Guðný saumar allt á sjálfa sig,
börn sín og barnabörn, en freistaðist
um daginn til að kaupa sér kjól, en
slíkan munað hefur hún ekki leyft
sér í mörg ár. Hún saumar allar
buxur á Þórð, þannig að þau spara
stóran pening, hvað snertir útgjöld
vegna fata.
Heimili þeirra er hlýlegt og vist-
legt, og þau skulda ekkert í sam-
bandi við innbú. Þau hafa síma,
sjónvarp og útvarp, og þó þau fari
ákaflega litið á skemmtistaði, þá
hitta þau oft ættingja og vini og
kunna að gleðjast með glöðum. Þau
hafa aldrei farið í sólarlandaferð, en
Þórður kom til Englands og Þýska-
lands, þegar hann var á fiskiskipum.
Guðný fór einu sinni með honum í
siglingu og aðstoðaði hann þá við
matseld.
Það er auðheyrt á þeim, að það er
þeim mikils virði að eiga íbúð, þegar
halla tekur á ævina. Þau hafa hvor-
ugt neitt atvinnuöryggi, ef mikill
samdráttur yrði á vinnumarkaði, og
af þ ví taka þau mið í sinni lífsstefnu.
Guðný og Þórður eru að mínu
mati ákaflega skýrt dæmi um al-
þýðufólk, sem þrátt fyrir óðaverð-
bólgu og hrunadans í peningamálum
heldur sínu striki. Þeim finnst ógn-
vænlegt, hvað allt hækkar, en
meðan þau hafa heilsu og atvinnu,
er allt í lagi. Það er samt augljóst, að
lítið má út af bera hjá þeim, og
kostnaðardæmi þeirra sýnir, að
þrátt fyrir ítrustu sparsemi myndu
laun Þórðar eins varla duga til að
framfleyta eldri hjónum í dag, og
fær hann þó betri laun en almennt
tíðkast með ófaglærða menn í bygg-
ingarvinnu. Má af þessu marka
stöðu óbreytts launþega í dag.
SJ.
Sýnishorn af Heimilisreiknings-
eyðublaði er á bls. 46.
Jónas Kristjánsson:
Ostar, kæfur, b
vínin létt
Flestar bjórkrár í London bjóða upp á plast-
kenndan og vondan mat, eins og bjórkrár
gera yfirleitt. Þeir, sem vilja fá sér snarl,
ættu því fremur að halla sér að vín-
börunum, sem fer ört fjölgandi þar í borg
um þessar mundir.
Matur og drykkur er að visu
dýrari á vínbörum en bjórkrám.
Vínglasið kostar 35-60 pence
og máltíðin um það bil £1,50.
En á móti kemur nærgætnari
meðhöndlun á matnum,
hugnanlegra húsnæði og minni
tóbaksreykur.
Nú hefuri fjórtán tölublöðum
Vikunnar verið lýst sérkenni-
legri hnattferð milli matar-
mustera fjölmargra þjóða í
Westminster-hverfinu i Lon-
don. Þessi hnattferð fólst í
fjórtán veislum á aðeins einni
viku.
Eftir þær orrustur höfum við í
bili ekki lyst á öðru en snarli.
Auk þess er sú budda orðin grá
og guggin, sem í hupphafi var
sælleg og bústin. Við ætlum því
að halla okkur að vínbörunum,
áður en heim er haldið í verð-
bólguna í Kardimommubæ
Norður-Atlantshafsins.
einmitt svo dæmalust vel heima
á þessum stöðum.
,,Cork and Bottle" er vínbar í
leikhúslandi, við 44-46 Cran-
bourn Street milli Leicester
Square og Charing Cross
Road. Vínbarinn er niðri í
kjallara. Þar er m.a. boðið upp
á svepparétt á 48 pence, osta-
salat á 48 pence og hænsna-
lifraarkæfu á 50 pence. Átján
tegundir víns eru seldar á 30-
80 pence glasið.
NOTALEG AFDREP
ÁN TÓBAKSREYKS
Ávínbörum má oft fá kæfur af
margvíslegu tagi, villibráðar-
kæfur, aðrar kjötkæfur, innyfla-
kæfur og fiskikæfur. Þær eru
indælis matur og koma á óvart
þeim, sem af íslenskri reynslu
halda, að kæfa sé eitthvert
afganga-ómeti. Á vínbörum eru
líka yfirleitt ýmis blönduð og
Ijúffeng salöt. Og ekki má
gleyma ostunum, sem eiga
„Winkles" er annar vínbar í
leikhúslandi, við 25 Litchfield
Street milli Charing Cross Road
og St-Martin's Lane. Þetta er
lítil og róleg stofa, þarsem unnt
er að fá flösku af Sauvignon á
£1,85 og af Cotes du Rhone á
£1,95.
„Shirrefs" er vínbar rétt
aftan við Cumberland Hotel,
viö 25 New Quebec Street, sem
er hliðargata út frá Seymour
Street. Þetta er sérlega
notalegt afdrep rétt við skarkala
Cumberland hótels og
Selfridge verslunar. Þar fást
ágæt brauð, kæfur og ostar,
auk léttra vína í glasatali.
„Michael Goulds" er vínbar
við 1 Glentworth Street á horni
Marylebone Road, aðeins 20
metrum frá hinum gæta ítalska
12VIKAN 15. TBL.