Vikan - 13.04.1978, Blaðsíða 22
Verur svífa
í eldhúsi
Kæri draumráðandi.
Viltu ráða þennan draum fyrir mig.
Mér fannst ég vera stödd í eldhúsinu
hjá mér. Fannst m'erþáskuggalegur
maður banka á dymar hjá mér. Var
hann svartklasddur uþþ að hálsi og
með grátt hár. Eg var á báðum áttum,
hvort ég ætti að oþna fyrir honum og
leit í kringum mig, hálf ráðvillt. Sá ég
þá verur (mér fannst þetta vera
guðlegar verur) svífa allt í kringum
mig. Varð ég þá rólegri og hætti við að
oþna fyrir manninum. Sá ég hann
labba í burtu, og létti mér mikið. Svo
varég stödd ísvefnherberginu mínu og
var að hengja uþþ litlar myndir (mér
fannst myndimar í römmunum vera
lifandi). Sagði ég við einn manninn,
sem varáeinnimyndinni: ,,Ertþú
Pétur?’’ ,,Nei, ég er Páll, ’’ svaraði
hann. (Mér fannst myndimar vera af
þostulunum) Eg sá móður mína liggja
í mínu rúmi (hún heitir I.) og sagði
hún við mig: ,,Hengdu upp eins
margar myndir og þú getur. ’' Bróðir
minn lá við hlið hennar í öðru rúmi,
sem sonur minn sefur alltaf í. Allt í
einu fannst mér ég sjá andlit, sem var
svo fagurt og blítt, fannst mér það vera
Jesú. Horfði hann á mig, og það lék
smá bros um varir hans. Þetta var svo
fagurt andlit og blíðlegt. Ekki sagði
hann neitt, en horfði bara á mig. Eg
hrökk uþþ úr svefninum við það, að
mér fannst Jesú snerta mig með fingur-
gómunum, mjög létt, á löngutöng
hægri handar. Eg glaðvaknaði við þessa
snertingu. Með fyrirfram þökk.
S.S.
Þessi draumur er þér fyrirboði alls
góðs. Þín bíður mikil gæfa í fjölskyldu-
málum, og þú átt mikla gleöi í
vændum. Fljótlega gefst þér tækifæri
til að endurnýja gamlan vinskap, og
veröur það þér til mikillar gæfu. Þér
munu hlotnast aukin þægindi, óvænt
og á ánægjulegan hátt. Mikið öryggi
verður á heimili þínu. Þú eignast nýjan
vin, sem mun reynast þér í alla staði
vel, og einnig bíður þín fjárhagslegur
gróði. Þú átt óvenjulega mikla
hamingju í vændum í framtíðinni.
Mig
dreymdi
Frænkan tók barnið
Kæri draumráðandi.
Mig langar til að biðja þig að ráða
þennan draum fyrir mig. Hann er
þannig: Mér fannst ég vera flutt á
sjúkrahús, því að ég var með einhverja
verki í magaríum, og þegar ég kom á
sjúkrahúsið kom x ljós, að ég var ófrísk
og var að því komin að eiga. Svo var
eins og það þurrkuðust út tveir dagar,
og ég man ekki neitt, fyrr en ég
vaknaði í óhreinu herbergi á sjúkra-
húsinu og það var komið inn með
krakkann til mín. Ég spurði, hvort
þetta væri strákur eða stelpa, og var
sagt, að það væri stelpa. Svo fannst
mér frænka mín, sem heitir A., koma
til mín, og sagðist eiga
krakkann og tók hann af mér, og þá
varð ég brjáluð. Þá kom vinkona mxn,
og ég fór til hennar og grét, og svo
fannst mér ég vera að fara heim af
sjúkrahúsinu, og þegar ég kom heim,
þá átti að fara að skíra barn í kirkj-
unni. Égfórþangað, ogþávarþað
krakkinn minn, sem átti að skxra, og
ég brjálaðist og þreif krakkann af
frænku minni og fór með hann heim,
og þá vaknaði ég og var grátandi.
XXI
Fyrsta táknið í þessum draumi bendir
til, að þú sért að reyna að bera ein
byröi, sem þú getur ekki valdið, og
ættir aö leita þér aöstoðar sem fyrst.
Þú færð hjálp frá vinum þínum, þegar á
reynir, og mikil hamingja bíður þín.
Einnig áttu von á óvæntum
gleöifréttum og munt ná skjótum
árangri i öllu, sem þú tekur þér fyrir
hendur. Flamingjuríkt tímabil mun
koma í lífi þínu innan skamms.
Ákærð um
Þjófnað
Kæri draumráðandi.
Mig dreymdi eftirfarandi draum fyrir
stuttu, og mig langar að fá hann
ráðinn. Mér fannst ég vera stödd í
stórri verslun með stúlku, sem ég
þekki. Eg var bara með veskið mitt, en
hún var með stóra tösku. Það var margt
eigulegra muna þama, mikið af alls
konar styttum og g/ingri, og eins
fatnaður inni í versluninni. Fannst rnér
vera verðir aðfylgjast með fólkinu, og
innan um var lögregla líka. Eg var nú
ekki smeyk við þá, því ég var þama
aðeins að skoða, og ætlaði mér ekki
að kauþa neitt, hvaðþá heldurað
taka eitthvað ófrjálsri hendi. Allt í einu
var kallað í mig af lögreglu, fannst
mér, og hún sagðist hafa mig grunaða
um stuld. Hún vildi sjá i veskið mitt,
og ég sýndi lögreglumanninum
töskuna. Hún var þá oþin, og í henni
voru tveir litlir vasar, alveg eins, nema
annar var minni. Þeir voru úr gleri,
hvítir með máluðum rósum. Mig
grunaði strax kunningjakonu mína,
sem var þama með mér, að hún hafi
látið þá í veskið, án þess að ég vissi af
því. Eg skýrði strax frá því og bar það
uþp á hana, en hún sagði ekkert,
hvorki já né nei. Eg bað lögregluna að
trúa mér, ég værisaklaus afþessu, en
hún sagði: ,, Það kemur í Ijós, þegar
við komum niður eftir. ’ ’ Eg var alveg í
öngum mínum út af þessu og ætlaði
mér ekki að hlífa kunningjakonu
minni við þessu. Hún átti að koma líka
með, fannst mér, þar sem hún var með
heilmikið á sér úr versluninni. Þakka
fyrirfram. Bíð með óþreyju eftir svari.
Kalla.
Þú ættir að varast að treysta um of á
þessa kunningjakonu þína, þar sem
hún mun ekki vera öll, þar sem hún
er séð. Þín bíður heiður og upphefð á
næstunni og einnig bætt lífsstaða. Þú
munt þarfnast stuðnings frá vinum
þínum, sem þeir láta þér í té, er þú
lendir í deilum. Þú færð áríðandi þréf
eða símskeyti, sem að öllum líkindum
verður til þess að þú ferð í ferðalag,
fyrr en þig grunar.