Vikan - 13.04.1978, Blaðsíða 13
veitingahúsi „Tonino's", sem
áður hefur verið lýst í þessum
greinaflokki. Þetta er enn einn
litli, rólegi og notalegi vín-
barinn.
SKYGGNT, ÞEFAÐ
OGBRAGÐAÐ
Við erum fjögur saman og
ætlum að æfa okkur í vín-
smakki á Michael Goulds. Við
keyptum fimm glös af hvítvíni,
eitt af sérhverri tegund, sem
þarna var á boðstólum. Við
gættum vel, að, hvaða tegund
var í hvaða glasi og röðuðum
glösunum áborðið.
Eitt vínið var úr Loiredalnum
franska, annað var Muscadet
frá mynni þessa sama dals,
þriðja var Blanc de Blancs frá
kampavínshéraðinu, fjórða var
Niersteinar frá Rheimhessen I
Þýskalandi, og hið fimmta var
Moselvín.
Við skyggndum glösin.
Muscadet var matt, Niersteiner
hálfgullið, Loire og Blanc de
Blancs gullið og Mosel mjög
gullið.
Við þefuðum af víninu.
Daufust var lyktin af Muscadet.
Lyktin af Niersteiner var vatns-
leg. Mest ilmaði Loire.
Loks brögðuðum við á vínun-
um. Loire reyndist bragðsterkt
og gott. Muscadet reyndist
miðlungi gott og þurrt. Blanc
de Blancs reyndist óvenjulegt á
bragðið og þurrt. Niersteiner
reyndist hafa hæfilegt vínberja-
bragð. Og loks reyndist Mosel
hafa gífurlegt vínberjabragð.
Við gáfum Niersteinar fyrstu
einkunn, Mosel aðra einkunn
og Loire þriðju einkunn.
ÞJÁLFUÐ TILFINNING
FYRIR VÍNI
Þegar sérfræðingarnir drekka
vín, nota þeir sama glasið
margir saman. Við ætlum því,
að okkur leyfist hið sama.
Kostnaðurinn við slíkt smakk á
vínbar í London verður því ekki
nema rúmlega glas á mann,
innan við 50 pence.
Þetta er skemmtileg æfing í
að greina í sundur vín og átta
sig á eiginleikum þeirra í lit,
ilman og bragði. Með þessu
þjálfa menn tilfinningu sína
fyrir víni og vínmennt. Smám
saman hallast menn að litlu
magni af léttum og vel gerðum
vínum, fremur en miklu magni
af sterkum grodda.
Samanburður í vínsmakki
getur verið með ýmsu móti.
Menn geta borið saman vín frá
mismunandi stöðum, sem öll
eru úr sömu tegund vínberja.
Menn geta borið saman vín,
sem öll eru úr sama vínhéraði.
Menn geta boriö saman vín
ýmissa ára frá einum og sama
búgarðinum. Menn geta borið
saman mismunandi vín, sem
framleidd eru með sömu
aöferö. Og menn geta borið
saman vín, sem eru með
ákveðnu millibili á gæðastigum
sérfræðinganna.
Þegar fólk smakkar vín
verður það að gæta að þrennu.
i fyrsta lagi má þaö ekki reykja,
því að tóbak eyðir þefnæmi og
er mesti óvinur vínnaútnar. i
öðru lagi má það ekki nota
ilmvötn, því að þau fara jafnilla
með þefnæmið. Og í þriðja lagi
er því sérstaklega beint til
íslendinga, að vínsmakk er
algerlega óskylt fylliríi. Drykkju-
skapur er einmitt andstæða vín-
nautnar.
EFTIRMÁLI EÐA
NÝR FORMÁLI?
Hin mikla fjölgun vinbara í
London er einkar ánægjuleg
þróun. Með þeim hefur sú
ágæta borg öðlast einn eitt
aðdráttaraflið ofan á öll hin
fyrri.
Með þessum eftirmála um
vínbari í London og hvernig
megi umgangast þá, lýkur
flokki fimmtán greina um
matar- og vínmenntir í London.
Meö þeim á að vera full-
sannað, að London er meira en
verslanir og leikhús og vondur
matur.
Hanttferðinni i fótspor
Phileas Fogg er lokið. Við
unnum veðmálið með fjórtán
veislum á sjö dögum og
höfðum þar á ofan þol til þess
eftirmála, sem hér hefur veriö
sagt frá.
En þar með hefur ekki allt
verið sagt, sem unnt er að segja
um mat og vín, svo að. enn
verður tekið upp hliðstætt
spjall í næsta tölublaði
Vikunnar.
Ég þakka samfylgdina um
Westminster í London og vona,
að þið eigið enn einhvern
gjaldeyri til verslunar.
Jónas Kristjánsson
15. TBL. VIKAN 13