Vikan - 13.04.1978, Side 8
samtals á 51.475 kr. í febrúarmán-
uði. Þessi upphæð skiptist á liðina
Kjöt, Fiskur, Drykkiarföng, Brauð
og Kex.
— Ég ét náttúrlega á við þrjá,
sagði Omar. Til dæmis þegar ég er
að vinna niðri í sjónvarpi, þá borða
ég hádegis- og kvöldmat þar, og svo
borða ég enn einu sinni, þegar ég
kem heim eftir kl. 9, ef konan er með
eitthvað gott í matinn. Svo drekk ég
geysilega mikið, aðallega gos, bæði í
vinnunni, og svo er ég fjórum sinn-
um í viki; í fótbolta, og þá klárar
maður eina flösku strax eftir
æfingu, aðra, þegar maður kemur
heim, og þá þriðju undir svefninn.
Það dugir ekki minna.
Helga sagði, að matarreikningur-
inn hefði ekki komið sér á óvart, en
hún hefði ekki áttað sig á því fyrr,
hve hreinlætis- og snyrtivörur væru
stór liður í innkaupunum. Okkur
finnst þetta reyndar ekki há tala,
því mikið hlýtur að þurfa að þvo á
svo stóru heimili.
Þessi stóra fjölskylda býr í 135
fermetra 5 herbergja raðhúsi á Háa-
leitisbraut 55, sem er vitanlega orðið
alltof lítið húsnæði fyrir þennan
fjölda. Þau hjónin hafa smám saman
verið að stækka við sig allan sinn
búskap, en alltaf verið svona tveim-
ur börnum á eftir, eins og Ómar
komst að orði. En þeim finnst svo
margt annað skemmtilegra hægt að
gera heldur en að byggja, svo að lík-
lega breyta þau ekki til í bráð.
Helga og Ómar reka tvo bíla,
Simca ’77 og Blazer '72, og er sá
síðarnefndi talsvert eyðslusamur. —
Ég skulda hann lika allan, sagði
Ómar, ogætla að selja hann, áður en
ég eignast hann.
Bensínkostnaður í febrúar varð
samtals 35.585 kr., og þarf engan
að undra þá tölu, þvi þau hjónin
þurfa mikið að nota bíla. Strætis-
vagna og leigubíla notar fjölskyldan
hins vegar sáralítið.
Blöð og bækur er stór liður hjá
Ómar og fjölskyldu, enda kaupa þau
fjögur dagblöð, Vikuna og reiðinnar
ósköp af bílablöðum og öðrum út-
lendum blöðum. Leikhús og bíó er
hins vegar ekki stór liður, það eru
aðallega bíópeningar barnanna, því
Ómar og Helga geta sjaldan gefið
sér tíma til að sækja leikhús eða
kvikmyndahús. í skemmtanir var
að öðru leyti engu eytt í þessum
mánuði, að vísu fóru hjónin tvisvar
á árshátíð, hjá leikurum og hjá
starfsfólki sjónvarps, en þær
skemmtanir greiddi Ómar með þvi
að koma samkomugestum í gott
skap, eins og honum einum er lagið.
Og ekki fóru peningarnir í vin eða
tóbak í þessum mánuði sem endra-
nær, fjölskyldan er öll í bindindi á
slíka hluti. Og elstu börnin eru farin
að stunda íþróttir af kappi.
Fatnaðarliðurinn hlýtur alltaf að
vera nokkuð hár hjá svo barnmargri
fjölskyldu. Helga sagði þó, að börn-
in væru mjög nægjusöm á þessu
sviði, en það er fljótt að koma, þó
ekki sé keypt nema það allra nauð-
synlegasta. Helga fékk sér einn kjól
í febrúar, en að öðru leyti er þarna
um að ræða sokka, sokkabuxur,
nærföt og gallabuxur á börnin.
Undir liðinn Annað varð vitan-
lega að flokka æði margt, eins og til
dæmis framköllun mynda á kr.
14.200, en slík útgjöld geta orðið
stór liður hjá mörgum fjölskyldum.
Þá má einnig nefna leikskólagjald.
sem er 20 þúsund á mánuði fyrir
tvær yngstu stúlkurnar, glugga-
tjöld á 7.900, eldavélarhellu á 6.100,
skjalatösku handa húsbóndanum á
11.700, klippingu, vasapeninga, af-
mælisgjöf o.fl. o.fl.
Útgjöld þessarar fjölskyldu urðu
samtals nálægt hálfri milijón þenn-
an mánuðinn, án þess að nokkru
væri eytt í það, sem nú til dags er
talið óhóf, eins og við höfum nú
reynt að sýna fram á með þessum
útskýringum. Við þökkum Helgu og
Ómari og börnunum þeirra sjö kær-
lega fyrir aðstoðina. K.H.
-----------------------------------------------------------S
Litljósmyndir h.f.
Laugavegi 26 Verzlanahöllin
Reykjavík sími: 2 65 28
v_______________________________.—/
8VIKAN 15. TBL.