Vikan - 13.04.1978, Side 16
Ættarmót Vatnsfirð
Þann 16. mars
síðastliðinn komu
niðjar sr. Páls Ólafs-
sonar prófasts og
Arndísar Pétursdóttur
Eggerz saman, ásamt
fjölskyldum sínum í
Atthagasal Hótel Sögu.
Veislustjóri var
Theódór Ólafsson, og
mættu þarna um 85
manns, og rabbaði
frændfólkið saman yfir
kaffibolla og kökum,
eins og þegar gamlir
húskarlar litu inn á
bóndabæina i ,,den
tid”. Séra Páll og kona
hans fluttu að Vatns-
firði í ísafjarðardjúpi
um aldamótin, þar áður
var hann prestur að
Prestbakka iflútafirði,
og þar fæddust öll börn
þeirra, 13 að tölu, en 11
þeirra komust upp.
Einnig ólst upp hjá
þeim sonardóttir þeirra,
Ragna Pétursdóttir.
Börn þeirra voru: Elin-
borg, Guðrún, Ólafur,
Pétur, Sigriður,
Böðvar, Stefán, Páll,
Jakobína, Sigurður og
Sigþrúður.
Aðeins eitt þeirra
systkina er á lífi,
Böðvar Pálsson,
fyrrum kaupfélags-
stjóri. Hann er nú 89
ára og mjög ern og
hress og var hann að
sjálfsögðu heiðurs-
gestur kvöldsins.
H.S.
Dætur Ólafs Pálssonar, t.v. Arndís, Sigurrós og Ásthildur.
Heiðursgesturinn Böðvar Pálsson, ásamt dótturbörnum sínum, Bolla
Héðinssyni og Sigríði Héðinsdóttur.
PálL Sigurðsson forstjóri Samábyrgðar, kona hans Júliana Sigurðard. og
Pétur Sigurðsson.
Ragna Sigurðardóttir og maður hennar Aðalsteinn Guðjóhnsen rafmagns
stióri.