Vikan


Vikan - 13.04.1978, Page 20

Vikan - 13.04.1978, Page 20
ykkur liggur mikið á,” sagði Erskine. „Okkur liggur í rauninni ekkert á,” sagði Giles glaðlega. „Við hættum ekki að leita fyrr en við finnum eitthvað, sem við erum fullkomlega ánægð með. Sem stendur eigum við hús í Dillmouth — á suðurströndinni.” Erskine gekk í burtu frá teborð- inu. Hann náði í sígarettuöskju á borði við gluggann. „Dillmouth,” sagði frú Erskine. Rödd hennar gaf ekkert til kynna. Augu hennar hvildu á hnakka eiginmannsins. „Yndislegur staður,” sagði Giles. „Kannist þið við hann?” Það varð stutt þögn, en síðan sagði frú Erskine með sama sviplausa raddblænum, „Við dvöldum þar í nokkrar vikur eitt sumar — það var fyrir mörgum, mörgum árum. Við voru ekkert sérstaklega hrifin — okkur fannst þetta of mollulegur staður.” „Já,” sagði Gwenda. „Það er einmitt það, sem okkur finnst. Giles og ég kysum heldur að hafa andrúmsloftið hressilegra.” Erskine kom með sígarettur. Hann bauð Gwendu. „Það er svo sem nógu hresandi hér um slóðir,” sagði hann og það var einhver harka í rödd hans. Gwenda leit á hann um leið og hann kveikti í sígarettunni fyrir hana. „Manstu sæmilega vel eftir Dillmouth?” spurði hún sakleysis- lega. Hann klemmdi varirnar saman eins og, að því er hún áleit, að hann fyndi snögglega til sársauka. En rödd hans var ofur eðlileg, þegar hann svaraði, „Alveg sæmilega, held ég. Við bjuggum — bíðum nú hæg — á Royal George — nei, Royal Clarence hótelinu.” „0 já, það er fallega gamla hótelið. Húsið okkar er þar rétt hjá. Hillside heitir það núna, en var áður kallað St. — St. Mary, var það ekki, Giles?” „St. Catherine,” sagði Giles. í þetta skipti var greinilegt, að honum var brugðið. Erskine snerist snögglega á hæli og bollinn skalf í höndum frú Erskine. „Ykkur langar ef til vill að líta á garðinn,” sagði hún skyndilega. „0 jó, það væri gaman.” Þau gengu út í gegnum franska gluggann. Þetta var vel snyrtur og vel skipulagður garður, með breið- um blómabeðum og hellulögðum gangstígum. Gwendu skildist, að það væri aðallega Erskine sjálfur, sem sæi um garðinn. Þegar hann sagði henni frá rósunum og matjurtunum, þá birti yfir sorg- mæddu andliti hans. Það var greinilegt, að hann hafði mikinn áhuga á garðrækt. Þegar þau voru loks búin að kveðja og óku í burtu, spurði Giles hikandi, „Léstu hann — léstu hann detta.?” Gwenda kinkaði kolli. „Við fjólubeðið.” Hún leit á hönd sína og snéri giftingarhringnum eins og annars hugar. „En ef þú finnur hann nú aldrei aftur?” „Þetta var ekki trúlofunarhring- urinn. Ég hefði ekki þorað að hætta á að sjá hann aldrei aftur.” „Það er ég feginn að heyra.” „Mér þykir svo vænt um þann hring. Manstu hvað þú sagðir, þegar þú dróst hann á fingur mér? Þú sagðir að ég fengi grænan smaragð, vegna þess að ég væri brögðótt lítil kisa með græn augu.” „Ég erviss um,”sagði Giles,” að sumir af eldri kynslóðinni, eins og til dæmis ungfrú Marple, yrðu forviða, ef þeir vissu hvað við notum sem gæluorð okkar á milli.” „Hvað skyldi hún vera að gera þettaaeriéa fyrirþig Aðstoða við að orða auglýsingu þína, ef þú óskar. Svara í síma fyrir þig. Veiti fyrirspyrjendum upplýsingar um það sem þú auglýsir og tek við tilboðum sem berast. Njóttu góðrar þjónustu ókeypis. Opið til kl. 10 í kvöld. BIABIÐ Dagblaðið, smáauglýsingaþjónusta. Afgreiðsla Þverholti 11, sími 27022 20VIKAN 15. TBL.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.