Vikan - 06.07.1978, Qupperneq 46
Sitt lítið
af hverju
Heilbrigð skynsemi
Tveir Skotar voru að ræða
um þjóðfélagsumbætur.
Annar sagði:
Ef þú ættir tvo hatta,
mundir þú þá gefa mér annan?
— Já, svaraði hinn.
— En ef þú ættir tvo báta?
— Afveg hiklaust.
— Og ef þú ættir tvær
eiginkonur?
— Ég mundi ekki hugsa mig
um tvisvar.
— En tvær skyrtur?
— Nei.
— Af hverju ekki?
— Ég á ekki nema einn hatt,
einn bát og eina eiginkonu —
en ég á tvær skyrtur!
fer að ná af mér málningunni
aftur, svaraði stúlkan.
Guð veit allt!
NOKKRIR vinir Nóbels-
skáldsins Hemingways voru að
skemmta sér i New York. Þeir
söknuðu skáldsins úr hópnum
og ákváðu að senda honum
kort. Þeir vissu hins vegar ekki,
hvar hann var niður kominn
og skrifuðu því á kortið:
77/ Ernests Hemingway, Guð
veit hvar.
Hálfum mánuði síðar kom
svohljóðandi svar frá Ítalíu:
Guð vissi hvar! Hemingway.
Fyrirtæki á uppleið
HÁLFSJÖTUGUR bankastjóri
kvæntist 18 ára blómarós.
— Þetta finnst mér heldur
óskynsamlegt, sagði einn vina
hans við hann. — Hefði ekki
verið nær að halla sér að eldri
konu?
— Margra ára starfsreynsla
min hefur kennt mér. að það sé
betra að fjárfesta í fyrirtækjum
á uppleið heldur en þeim, sem
eru að drabbast niður, ansaði
bankastjórinn.
Lítið fyrir listina
ENSKUR tómstundamálari
hafði flækst með málaragræjur
sinar upp í fjöll í Sviss. Þar
rakst hann á stúlku, sem sat
yfir geitum.
— Stórkostlegt, hrópaði
málarinn. — Landslagið,
geiturnar og þú! Ég skal borga
þér tíu sterlingspund, ef þú
leyfir mér að mála þig.
— Nei, það líst mér ekki á,
ansaði smalastúlkan.
— Jæja þá, tuttugu sterlings-
pund!
— Það eru ekki
peningarnir, sem ég er að
hugsa um, heldur hvernig ég
Óhrædd, en
einmana
Hún litur svo sem ekki
ríkmannlega út, þrátt fyrir allar
milljónirnar og umsvifin, sem
hún erfði eftir föður sinn,
Onassis skipakóng. Christina
Onassis er enginn veifiskati, og
hún fer óhrædd í gönguferðir
um stígana í Boulogneskógi í
París með pekinghundinn sinn.
Og því skyldi hún vera hrædd?
Hún hefur staðið sig vel við
stjórn skipafélags föður síns og
þegar sýnt, að hún hefur í fullu
tré við frænda sinn, Niarchos
skipakóng. En hún er einmana.
Hún á tvö misheppnuð'
hjónabönd að baki, og eftir að
hafa misst bróður sinn og báða
foreldra er eini félagi hennar
litli pekinghundurinn, sem
fylgir henni á gönguferðum.
Hún hefur þó játað, að hún
kysi heldur félagsskap eigin
barns heldur en hundsins.
Christina Onassis er glöggt
dæmi þess, að ekki verður allt
keypt fyrir peninga.
Á eyðieyju,
kropni
eða köku!
Hefur ykkur nokkurn tima
dreymt um að leggjast til
svefns á lagköku, eyðieyju —
eða jafnvel kvensmannskroppi?
Það kynni að fara svo, að sá
draumur mætti rætast, því
þýska fyrirtækið Salger KG
hefur tekið sig til og hannað
þessi óvenjulegu rúm, sem við
sjáum á meðfylgjandi myndum.
Og það hefur fleira spennandi
upp á að bjóða, ef vera kynni,
að menn langaði ákaft til að
blunda í eldspýtnastokki,
kappakstursbíl eða flugvélasæti.
En að sjálfsögðu kostar það sitt
að uppfylla slíka drauma. Þar
úti kostar stykkið frá 300-800
þúsund kr. og varla yrði það
ódýrara hingað komið. Vikan
hefur hins vegar ekki frétt af
neinum innflytjanda, sem
áhuga hefur á málinu.
46VIKAN 27. TBL.