Vikan - 31.08.1978, Side 14
Tímabær nýjung
Á þessum teikningum sjást fjórar
mismunandi gerðir stólsins, en hægt
er að setja hann saman á marga aðra
vegu eftir þörfum. Númer eitt á
myndinni er sérstaklega ætlaður
fólki, sem á við gikt að striða, á erfitt
um gang eða bágt með að halda
jafnvægi. Stóllinn er þess vegna á
hjólum, sem eru búin hemlum. Núm-
er tvö er handa fólki með stirða
miaðmaliði. Númer þrjú er mjög lág-
ur og ætlaður lágvöxnu fólki,
og fjórða gerðin er hönnuð með tilliti
til þeirra, sem þjást af lömunarveiki.
Sérhönnuð
húsgögn handa
öldruðum
og fötluðum
Öllþurfum við húsgögn. Venjulega er miðað við „meðal-
manninn ”, þegar húsgögn eru búin til. En flestir eru að
einhverju leyti frábrugðnir þessum meðalmálum, sem
miðað er við, þótt venjulega sœtti fólk sig við húsgögn,
þótt þau séu í rauninni ekki eins og þau cettu að vera.
Þetta verður hins vegar oft mikið vandamál, þegar í hlut
á aldrað fólk eða fatlað, eða fólk með líkamsbyggingu,
sem á einhvern hátt erfrábrugðin því venjulega.
Djúpu, lágu og mjúku hæg-
indastólarnir og sófarnir, sem
eru á flestum heimilum, eru t.d.
mjög óhentug húsgögn fyrir
aldraða. Flest höfum við veitt
því athygli, að fólk sem farið er
að eldast og stirðna, forðast yfir-
leitt að setjast í slíka stóla og kýs
þá fremur að sitja á hörðum
borðstofustólum, af því að þeir
eru þó i réttari hæð, þótt þeir
séu ekki hentugir til langrar
setu. Og sé ekki um annað að
velja en að setjast í djúpa, lága
sófann, á gamla fólkið oft mjög
erfitt með að rísa á fætur.
Þetta er atriði, sem því miður
hefur viljað gleymast í sambandi
við vistheimili aldraðra á íslandi.
Kannski hefur afsökunin
verið sú, að erfitt hefur verið að
fá húsgögn við hæfi aldraðra hér
á landi.
En nú gildir sú afsökun ekki
lengur, því að nú er hægt að fá
húsgögn, sem eru sérstaklega
hönnuð handa öldruðum og
fötluðum í samráði við hjúkrun-
arfólk. Þessi húsgögn fást i versl-
uninni EPAL við Laugalæk í
Reykjavík. Þar er um að ræða
stóla og borð af ýmsum gerðum.
Sérstaka athygli vekur þó hinn
sérhannaði hægindastóll og er
erfitt að ímynda sér hentugri
stól handa fólki, sem farið er að
eldast eða á við einhverja fötlun
að stríða.
Þennan stól er hægt að fá í
mörgum mismunandi gerðum
eftir því hverjar þarfirnar eru.
Til dæmis má velja um sjö mis-
munandi gerðir af setum í stól-
inn, fjórar gerðir af bökum,
tvenns konar hnakkapúða og
margt fleira. Setu og bak er svo
hægt að stilla á marga vegu.
Sjálfa stólgrindina má fá í ýms-
um hæðum eftir fótlengd.
Bólstrun er öll með „rúnnuð-
um” hornum til þess að forðast
þrýsting á æðar og taugar. Auð-
velt er að þrífa stólinn og taka
má áklæðið af setu og baki.
Áklæðið fæst í um hundrað mis-
munandi litum. Þá má nefna, að
hægt er að fá hjól undir stólinn.
Til er einnig sérstakur fótskemill
meðstólnum.
Verslunin hefur sérstakt
reynslusett, þannig að hver og
einn getur „mátað” hvaða stól-
gerð hæfir honum eða henni
best.
Þessi húsgögn eru dönsk og
hafa verið prófuð og viðurkennd
af danska húsgagnaeftirlitinu,
en allt eftirlit með gæðum fram-
leiðslu er sem kunnugt er óvíða
eða hvergi strangara en í Dan-
mörku.
Húsgögn af þessu tagi eru
þegar í notkun á dvalarheimil-
inu Höfða á Akranesi.
En þau henta ekki aðeins á
slíkum stofnunum, því að varla
er hægt að fá betri gjöf handa
fólki, sem farið er að reskjast og
stirðna en einmitt svona stól.
14VIKAN 35. TBL.