Vikan - 31.08.1978, Blaðsíða 33
Það var laugardagur, og hún lagði af
stað til sjúkrahússins með fangið fullt af
vikublöðum. 1 fordyrinu brosti hún sínu
blíðasta brosti til dyravarðarins og gekk
að lyftunni. Hún var í gulri regnkápu,
vandlega snyrt og hárið greitt af kost-
gæfni. Hún reyndi að vera svip-
brigðalaus og forðaðist að hugsa um,
hvað hún ætti að gera, ef hún skyndilega
stæði augliti til auglitis við Axel. Hún
tók lyftuna upp á aðra hæð, og gekk inn
eftir ganginum, gægðist varlega inn um
þær dyr, sem stóðu opnar, í veikri von
um að sjá hann. Auðvitað væri það eins
og að hitta á óskastund, ef hún rækist á
hann. Hún hrökk i kút og hálfhrópaði
upp yfir sig, þegar hönd var lögð á öxl
hennar.
— Ertu að leita að mér? spurði Axel.
— Nei, það er ég ekki, sagði hún
flaumósa. Almáttugur, hann er
dýrðlegur, hugsaði hún. Hún roðnaði og
óttaðist, að hann gæti lesið hugsanir
hennar. Svo sagði hún kuldalega. — Ég
kom með nokkur vikublöð. Það geri ég
oft.
— Einkennilegt, að ég skuli aldrei hafa
rekist á þig áður, sagði hann hálf
stríðnislega.
— Mjög einkennilegt, sagði hún yfir-
lætislega. — Það er varla að ég þekki þig
aftur. Þú varst ekki svona framhleypinn,
þegar við hittumst.
Hann hallaði sér upp að veggnum og
sagði: — Þá var ég gestur hjá yfirmanni
mínum og dóttur hans. í dag er ég svo
heppinn að rekast á unga stúlku, sem
kannski væri hægt að plata með sér út.
— Við tækifæri, sagði hún hæðnis-
lega.
— Hvernig stendur á í kvöld? spurði
hann og lét sem ekkert væri.
Hún var fyrst að hugsa um að gera sig
merkilega og láta sem hún væri þegar
búin að ráðstafa kvöldinu, en eftir smá
hik, sagði hún: — Því ekki það. Það vill
svotil, að ég erekki...
Hann greip fram í fyrir henni, eins og
hann hefði ekki eitt augnablik verið í
vafa um svarið. —Ég er búinn á vakt
klukkan sjö. Ég sæki þig klukkan átta.
En þú skalt ekki búast við miklu. Ég er
enginn milli.
Hann snérist hart á hæli og skildi
hana eftir sjóðandi af reiði og niður-
lægingu.
AU fóru á lítinn viðkunnanlegan
veitingastað. Súsan borðaði án þess að
tala nokkuð um, hvernig réttirnir
smökkuðust. Hún hvorki sá eða heyrði
neinn nema hann. Axel vissi ósköp vel,
að hann leit vel út og leit á það bæði sem
kost og löst. Súsan talaði mikið, það
losaði um spennuna, sem skapaðist milli
þeirra.
Þegar þau stóðu upp frá borðum seint
um síðir, sagði Axel: — Komdu með
mér heim, við getum hitað okkur
saffisopa. Súsan svaraði snöggt: — Nei,
við getum alveg eins fengið okkur kaffi
heima hjá mér. Hún var hrædd um að
gera einhverja vitleysu í augnabliks
hrifningarvímu, hún treysti sér ekki til
að fara heim með honum.
— Er faðir þinn heima? spyrði hann
eilítið vandræðalegur á svipinn. — Ef
svo er, kæri ég mig ekki um að hitta
hann um þetta leyti ...
Hún leit á klukkuna. — Klukkan er
hálftólf. Þá er pabbi sofandi. Er þér
Ijóst, að við höfum setið hér í þrjá og
hálfan tíma?
Síðar um nóttina kvaddi hann hana
með snöggum kossi á varimar. Hann
hefði allt eins getað látið sér nægja að
kyssa hana á kinnina. Hún var koinin á
fremsta hlunn með að hrópa á eftir
honum og spyrja, hvenær þau sæjust
næst, en stillti sig. Axel settist inn í
bílinn, leit til hennar og sagði stuttlega:
—Ég hringi.
Hún veifaði, lét aftur útihurðina og
hallaði sér upp að henni með lokuð
augun. Hún elskaði hann, hann hafði
til að bera allt, sem góðan mann má
prýða, góðar gáfur, kímnigáfu, myndar-
legt útlit. Hann hafði allt.
En hann hringdi ekki til hennar.
FlMM langir dagar og nætur liðu,
og þá stóðst hún ekki lengur mátið. Hún
fletti upp í símaskránni og fann síma-
númerið. Hún var með lemjandi hjart-
slátt og höndin titraði, þegar hún valdi
lúmerið. Það var ekki svarað. Klukkan
var hálfsjö að kvöldi. Hún hringdi
annað slagið allt kvöldið. Faðir hennar
varð undrandi á óróleikanum, sem þess-
tm sífelldu símhringingum fylgdi og
spurði hvefsinn, hvað gengi á. Hún ans-
iði ekki, lokaði dyrunum að stofunni og
gekk i síðasta sinn að símanum til að
'tringja. Þá loksins heyrðist þreytuleg
rödd hans svara: — Halló. Þetta kom
tenni svo á óvart, að hún ætlaði ekki að
koma upp orði.
Hún reyndi að svara eins eðlilega og
hún gat: — Það er bara ég. Ég ætlaði
bara aö þakka fyrir síðast.
— Blessuð, bara þú! Hann var ekki
eins þreytulegur í röddinni núna, henni
heyrðist hann hálfhlæjandi. — Hvaf
ertu að gera?
— Ekkert sérstakt, svaraði hún.
— Ekki ég heldur. Ég er nýkominn
heim og nenni ekki að steikja egg, hvað
þá annað. Gætir .þú ekki hugsað þér að
búa til mat handa þreyttum manni?
— Það er nú líklega, Súsan gat ekki
leynt gleði sinni.
Ibúðin hans var lítil og búin
einföldum, en þægilegum húsmunum.
Súsan fannst hún notaleg. Hún hófst
strax handa cg reiddi fram notalegan
málsverð í litla eldhúsinu hans. Meðan
hann borðaði, drakk hún kaffi.
Hann þakkaði henni fyrir matinn
með léttum kossi á kinnina og lagðist út
af í sófanum. Hann teygði úr sér og rétti
fram höndina. — Komdu, saði hann, —
Legðu þig við hliðina á mér. Hún kink-
aði kolli, en hikaði samt litla stund.
Svona, ég skal ekki vera nærgöngull,
það er bara notalegra að liggja saman og
spjalla. Ég skal svo aka þér heim
fljótlega.
Það var langt liðið á nóttu, þegar
hann ók henni heim. Þegar hún fór út úr
bílnum, klappaði hann henni mjúklega á
vangann og hvislaði: —Ég hringi. Hún
þorði ekki að spyrja hvenær.
Dagarnir liðu, og hann hringdi ekki.
Loks braut hún odd af oflæti sínu og
hringdi. Hann varð glaður og bauð
henni með sér út að borða eftir þrjá
daga.
Samband þeirra byggðist á hennar
frumkvæði. Hún varð alltaf að taka
fyrsta skrefið. Hún var oft örvingluð yfir
aðgerðarleysi hans, en hreifst æ meira af
honum og var þakklát fyrir þær stundir,
sem þau gátu eytt saman.
En eftir þvi sem tíminn leið fór
ástandið að verða alvarlegt. Hún tók
nærri sér, að hann skyldi aldrei svo
mikið sem hringja og heyra, hvernig
henni liði. Hún horaðist og varð
spennt á taugum. En hún þorði ekki að
spyrja hann, hvers vegna hún þyrfti
alltaf að eiga frumkvæðið. Nú naut
hann greinilega samverustunda þeirra.
ElTT kvöldið talaði hún þó út. Þau
lágu i sófanum hans og mösuðu.
— Það er hlægilegt að neita að fara í
rúmið með mér og liggja svona kvöld
eftir kvöld upp í sófa hjá mér, sagði Axel
ergilegur. — Það er sannarlega pínlegt,
skal ég segja þér. Ef þú vilt ekki vera
stúlkan mín, skaltu bara segja til og
halda þér frá mér.
— Þú vildir sjálfur hafa þetta svona,
sagði hún í mótmælaskyni og varð strax
reið. — Þú veist mæta vel mína skoðun
á slíkum málum.
Hann var bliðlegri I rómnum og
svaraði því til, að hann hefði alltal
vonað, að hún skipti um skoðun.
Súsan fann, að nú var rétta augna-
blikið að tala út um samband þeirra. —
Ég segi nei, vegna þess að um leið og ég
fer héðan út frá þér, ertu búinn að
gleyma mér. Þú hringir aldrei, þú
ómakar þig aldrei mín vegna, það er
stolt mitt, að ég hefi ekki fært þér allt á
silfurfati.
— Góða Súsan, þú veist, að ég vinn oft
20 tíma á sólarhring.
— Reyndu ekki að afska þig, sagði hún
snúðugt. —Ég þekki þessar sögur um
vinnuálag ungra lækna og léleg laun. Þó
eru til ungir læknar, sem hafa gefið sér
tima til að giftast og eignast börn, svo að
eitthvert einkalíf ætti að vera mögulegt.
Það tekur enga stund að hringja eitt
símtal, þó ekki væri annað.
Hún stóð upp af sófanum og gekk
fram að dyrunum. Hvað hefi ég gert,
hugsaði hún örvæntingarfull. Nú hefi ég
eyðilagt allt.
— Ég fer heim, sagði hún þvingað. —
þú veist, að ég elska þig, en það eru
takmörk fyrir öllu. Við verðum að
slíta sambandi okkar. Ég hringi ekki til
þín aftur, og þú hittir mig ekki aftur.
Alla vega verður þú að eiga sjálfur frum-
kvæðið ef svo á að vera. Rödd hennar
var hás og skræk af geðshræringu.
Hann stóð upp og gekk til hennar og
lokaði munni hennar með kossi. —
Hlustaðu nú á mig, Susan. Ég verð að
sinna starfi mínu, ég skal fúslega
viðurkenna, að ég er metnaðargjarn og
starfið situr í fyrirrúmi. Mér er
ómögulegt að vera þér það, sem þú
krefst og átt skilið. Ég hefi reynt svona
fast samband áður — með annarri
fallegri stúlku — en það endaði með
ósköpum. Hún gat alls ekki skilið, af
hverju ég kom of seint í veislurnar
hennar, gat ekki skilið að ég varð að
sinna sjúklingi hvenær sem var
sólarhrings. Hún skildi mig ekki, — ég
skildi hana ekki. Eins yrði með okkur,
þú þolir ekki, að ég taki starfið framyfir
þig-
Hún var með grástafmn í kverkunum
og talaði hægt og með erfiðismunum. -
Ég skil. Það, sem þú vilt, er stúlka, sem
þú getur skemmt þér með einu sinni í
viku, stúlka, sem hoppar upp i rúm með
þér, þegar þér svo þóknast, stúlka, sem
er reiðubúin að hlýða hverri minnstu
bendingu frá þér. Ég aftur á móti kýs
mann, sem ég elska og endurgeldur ást
35. TBL. VIKAN 33