Vikan


Vikan - 13.09.1978, Qupperneq 27

Vikan - 13.09.1978, Qupperneq 27
A NÍUNDA TÍMANUM Einn af vinsælustu þáttum útvarpsins er nú Á níunda tímanum, en hann hóf göngu sína á síðasta vori. Stjórnendur þáttarins eru Hjálmar Árnason og Guðmundur Árni Stefánsson, en þeir stjórnuðu reyndar líka útvarpsþættinum Frá ýmsum hliðum, sem var í svipuðum dúr og Á niunda tímanum. Samstarf þeirra félaga hófst þegar Hjálmar var kennari í Flensborgarskólanum, en Guðmundur Árni var þá nemandi hans. „Það þurfti að veita honum svolítið aðhald og mátti eiginlega ekki sleppa af honum hendi, því þá var voðinn vís,” segir Hjálm- ar. Guðmundur Árni stundar nú nám í þjóðfélagsfræðum og Hjálmar kennir i Sandgerði. Á níunda tímanum byggist upp á föstum atriðum t.d. leynigesti, vinsældajistanum Topp fimm, og ýmsu fræðandi éfni. Viku- lega berast þættinum u.þ.b. eitt hundrað bréf, en eftir einstaka þætti hafa þau þó orðið á þriðja hundrað. „Bréfin eru tengi- liður okkar við fólkið,” segir Guðmundur. „Við fáum hrós, skammir og tillögur um efni í þáttinn, og reynum að taka tillit til þess.” í þættinum er reynt að koma sem víðast við. Sérstaka athygli vakti kynfræðsla, sem veitt var í nokkrum þáttum, og viðbrögð hlustenda sýndu glögglega, að slíkri fræðslu er mjög ábótavant hérlendis. Þættinum berst líka alltaf talsvert efni utanað, t.d. ljóð, sögur og jafnvel spólur með tónlist og skemmtiefni. Enda hafa þeir félagar eignast marga kunningja víðsvegar um landið, sem þeir hafa þó aldrei séð. Þá má ekki gleyma hinum unga og dularfulla rithöfundi, sem nefnir sig Djáknann á Myrká. Hann hefur sent þættinum efni um langt skeið, en enginn veit hver hann er. Allar upplýsingar um Djáknann eru því vel þegnar. Það er ekki ákveðið hvort þættinum verður fram haldið á vetri komanda, en Hjálmar og Guðmundur Árni segjast reiðu- búnir til þess að halda honum gangandi og finna ekki til starfsleiða. „Annars er alltaf verið að reyna að koma af stað einhverjum metingi á milli okkar,” segir Guðmundur, „og það hefur stundum tekist. Við viljum líka taka það fram, að við erum báðir miklir FH-ingar, þótt það brjóti í bága við hlutleysi útvarpsins. Guðmundur er nefnilega þessi skotharði númer sex, enda mikið fyrir sexið,” stingur Hjálmar að okkur að lokum, og við tökum það gott og gilt. AS Guðmundur 37. TBL.VIKAN 27

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.