Vikan - 13.09.1978, Blaðsíða 30
H
Vestur-þýska
fyrirtækið AEG-
Telefunken hefur
hannað mjög
gagniegt hjáipar-
tæki fyrir ökuþóra
framtíðarinnar.
Radar, sem mun
án efa koma í veg
fyrir margs konar
umferðaróhöpp.
Bifreiðin þýtur áfram á 100 km hraða á klukkustund. Athygli ökumannsins
sljóvgast smám saman á tilbreytingarlausum akstrinum, en skyndilega sker
vœlandi tónn í gegnum vélarhljóðið. ökumanninum tekst naumlega að víkja
fyrir gangandi vegfaranda á vegarbrúninni.
Vestur-þýskir vísindamenn hafa hannað bílradar, sem varar ökumenn við, ef
hætta er á ferðum. Með því móti má koma í veg fyrir margs konar umferðar-
óhöpp. í hríð og dimmviðri greinir radarinn menn, bíla og aðrar hindranir, sem
kunna að vera á veginum.
RADARSENDIR
^./radarmóttakari
RADARGEISLI
SJÓNMÁL RADARS: 120 METRAR
m
•:•:•:•:•
Radarinn greinist í tvo aðskilda hluta, sendi og mót-
takara, sem eru staðsettir framan á bifreiðinni. Rad-
arinn greinir 120 metra fram fyrir bifreiðina og stærð
radarmyndarinnar er 4,4x6 metrar. Radarinn þykir
fleiri kostum búinn en aðrír myndvarpar. Til dæmis
hefur veðurfar ekki áhrif á hæfni hans, því hann sér í
gegnum regn og dimmviðrí.
Radargeislarnir eru sendir beint fram fyrir bílinn og
truflast ekki af aðskotahlutum utan vegarins.
m
:íí:¥:
FJARLÆGÐ MILLI ÖKUTÆKJA
•ÍÍS
%¥í:
:•:•:•:•:•
*
■smm
WmM
•••AW.'.V.W
• •••••••••:••
Bílradarinn er ótrúlega nytsamur. Ef ökumaðurínn
sofnar undir stýrí og bíllinn tekur að rása á veginum,
setur radarinn hljóðmerki í gang til þess að vekja
ökumanninn.
Kadarinn veldur þvi tíka, að bílar aka með hæfilegu
millibili. Stjórn þessa búnaðar er háð tölvu, og ef
hún bilar gef ur hún f rá sér sérstakan aðvörunarsón.
Snjór og ís geta hindrað radargeislana á leið sinni.
Þess vegna er öruggast að búa sendi og móttakara
sérstökum rafhitunarbúnaði, svo þeir bræði af sér
allan is og snjó. _ .. . . „ .
Texti: Anders Palm
Teikn.: Sune Envall
•v.v.
•ííííííííííííí