Vikan - 13.09.1978, Side 43
Þrjár líkkistur
Komdu sœll. kœrí draumráðandi.
Ég óska aö þú getir ráðiö þennan
furðudraum fyrir mig. Mig dreymdi
draum, sem er svona: Ég og tvær
aðrar stelpur vorum aðfela okkur fyrii
öðrum krökkum. Við fórum inn í
stórt, gamalt hús, frekar draugalegt.
Við skoðuðum húsið og vorum staddar
inni í einu herberginu, þegar við sáum
krakkana koma. Inni í herberginu voru
þrjár líkkistur, einn skápur og eitt borð
með höfuðkúpu á. Ég var eitthvað að
skoða hana, en við urðum að fela
okkur fyrir hinum krökkunum, svo við
ákváðum að fara ofan í líkkisturnar.
Kistan, sem ég fór ofan í var Ijósgræn
úr vatnsþéttu efni, með tveimur renni-
lásum. Ég settist ofan I hana, og var
að leggjast niður, þegar égfann eitt-
hvað hart undir höfðinu á mér. Þá tók
ég aðra höfuðkúpu og svo lagði ég
hana barafrá mér. Svo vaknaði ég.
Ég vona að þú birtir þennan líkkistu-
draum, kæri draumráðandi.
ÓB.
Þessi draumur er þér fyrirboði slæmra
frétta, sem þú munt fá bráðlega, og
valda þér miklum vonbrigðum. Þú
munt þó fá hjálp góðra vina á erfiðleika-
stundum,og allt fer betur en útlit verður
fyrir í fyrstu. Hauskúpurnar eru viðvör-
unarmerki til þín um að vera við öllu bú-
in, og treysta ekki um of á loforð, sem
þér verða gefin í sambandi við fjármál
eða atvinnu.
Mynd af stúlku í
nafnskírteininu
Kœri draumráðandi!
Mig langar ákaflega til að biðja þig
að ráða eftirfarandi drauma. 1. Mér
fannst ég vera á gangi og það var
rigningarúði. Mér fannst ég vera orðin
blaut og köld þegar ég kom að stórri
steinbrú. Þar sá ég tvær vinkonur
mínar í Jjarlægð, svo ég gekk til þeirra.
Þar sem mér fannst ég ekki þekkja mig
um I þessum borgarhluta, bað ég þær
um að fá að koma með I heimsókn til
stráks, sem ég kalla X, en þœr voru á
leið til hans. Þegar ég hajði beðið um
þetta brást önnur illa við, og reyndi að
hrinda mér í burtu, en égeltisamt.
Næst fannst mér ég standa í forstof-
unni hjá stráknum, og þar hefndi ég
mín á vinkonunni, og lamdi hana
Mig
dreymdi
þannig að hún ældi á gólfið. Þegar ég
hafði gert þetta fannst mér strákurinn
stara I augun á mér, hálf ásakandi. Við
það varð ég hálf skömmustuleg, og fór
fram á klósettið og ældi þar í vaskinn.
Eftir þetta var ég hálf aum, en þá tók
ég eftir að lítill brúnn hvolpur var í
körfu á gólfinu. Hann horfði vinalegum
augum á mig, svo ég tók hann upp og
þá sleikti hann mig. Annar draumunnn:
Mér fannst ég sofa á dýnu í herbergi,
sem líktist skólastofu. Hægra megin
við mig I hinu horni herbergisins
fannst mér sofa önnur stelpa, sem ég
þekkti ekki. Ég var með lykil í bandi
um hálsinn, og mér fannst endilega að
strákur (X) myndi koma og taka hann,
en þegar hann kom, tók hann utan um
hálsinn á mér og mér fannst ég vera
að kafna þegar ég vaknaði. Þriðji
draumurinn: Mér fannst ég, vinkona
mín og strákur, sem ég kalla Y., vera
saman, þegar vinkona mín bað hann
um að fá að sjá nafnskírteinið hans.
Mér til mikillar undrunar sá ég að
hann haföi mynd af mér í nafnskírtein-
inu. Fjórði draumurinn: Ég var að
kaupa mér trefd. Eftir nokkurra daga
leit fann ég einn röndóttan, brúnan og
appelsínugulan að lit. Ég mátaði trefil-
inn, og mér fannst hann mjög mjúkur
og þœgilegur. Þá tók ég eftir að þetta
var alveg eins trefúl og Y. á. Þegar ég
komst að þvírfannst mér ég verða að
skila honum aftur, en þegar ég mátaði
aðratrefla, var aðeins einn (brúnyrj-
óttur), sem kom tilgreina, ogþegarég
mátaði hann var hann of stuttur.
Draumurinn endaði á þá leið, að ég
varð að fara með fyrri trejilinn heim
aftur. Jæja, nú held ég að romsan sé
komin, og ég bið þig vinsamlega að
birta alla vega hluta, ef þú getur ekki
birt allt.
Snúlla.
Fyrsti draumurinn er þér fyrir öllu
góðu. Regn í draumi er yfirleitt fyrirboði
gæfu í ástarmálum. Þú munt eiga
miklum vinsældum að fagna meðal vina
þinna og færð innan tíðar gesti, sem
flytja þér góðar fréttir. Þin bíður mikil
hamingja, en hætt er við að þú bíðir
efnahagslegt tjón, sem þér mun þó ekki
verða mikill skaði af. Annar draumur-
inn er viðvörunartákn til þín. Þú þarft
að fara gætilega, og hætt er við að
lasleiki steðji að þér, tjón eða slæmar
fréttir. Þér hlotnast auður, sem er
ávöxtur hagstæðra viðskipta, en þú
verður að fara að öllu með gát. Þriðji
draumurinn boðar þér mikla gæfu og
barneign. Fjórði draumurinn er einnig
viðvörunardraumur. Viss persóna er að
reyna að fá höggstað á þér, og verðurðu
að gæta vel að þér til að ekki fari illa
fyrir þér. Litirnir á treflunum eru fyrir
mótlæti, sem þú mætir.
Pakkl ofan
úr sveit
Kæri draumráðandi!
Mig dreymdi að ég fengi skeyti, og I
því stóð að ég ætti að koma í ákveðið
hús á vissum tima. Ég varð hálf skelk-
uð, en fór samt, því ég var svo for-
vitin. Þegar ég kom að húsinu, var það
að hruni komið og heldur Ijótt á að
líta. Ég ætlaði að fara inn, en þá sá ég
pakka á tröppunum, sem var merktur
mér. Ég opnaði umslagið, sem var
ofan á honum, og þá var þessi pakki
frá vinkonu minni, sem ég hef ekki séð
í mörg ár, og er búsett úti á landi. Ég
varð mjög hissa á því að hún vœri að
senda mér pakka, en þegar ég tók utan
af honum var þar bara tómur kassi.
Hvað heldurðu að þetta tákni?
Með fyrirfram þakklætifyrir birt-
inguna.
KK.
Þessi draumur er þér fyrirboði góðra
framtíðar. Þú þarft að taka ákvörðun
innan skamms varðandi starf þitt, og
þarft þar að treysta eingöngu á sjálfa
þig, og láta öll heilræði lönd og leið.
37. TBL.VIKAN 43