Vikan


Vikan - 13.09.1978, Page 49

Vikan - 13.09.1978, Page 49
Isabel hallaði sér ánægð afturábak, og horfði á gamla, fima fingurna vinna. Sokkurinn var lítill. „Handa Angusi," sagði Jessie-Anne. „Ég frétti um Floru og Ross." sagði lsabel. „Er það, já?” Jessie-Anne hætti að prjóna og leit á hana, og eitt andartak voru augu hennar hvöss og köld. blá sem heimskautais. „Ég efast um, að það sem þú heyrðir hafi verið nokkuð nálægt sannleikan- um.” „Ég líka,” sagði Isabel. „Hvers vegna segirðu mér ekki, hvað kom fyrir.” Þær stöðru andartak hvor á aðra, og langt i burtu vall spði í timalausum eyði- löndum fenja og mýra. Þá glömpuðu augu Jessie-Anne, og hún flissaði. „Já, ég hafði á réttu að standa,” sagði hún. „Ég vissi, að þú myndir skilja þetta." „Það er heilmargt fleira, sem ég þarf að skilja. Margt, sem ég held að enginn annar en þú getir skýrt út fyrir mér. Ef þú vilt þá gera það.” Jessie-Anne einbeitti sér að prjóna- skapnum um stund. „Gerðu það,” sagði Isabel. „Ég verð að vita það.” Þá lagði hún prjónlesið I kjöltu sér og horfði út um gluggann á meðan hún tal- aði. „Það hefur verið sagt svo margt rangt um fólk eins og okkur Floru.” Glamp- andi blá augu hennar hvíldu andartak á lsabel. „Því við Flora erum líkari en þú heldur," sagði hún. „Rétt eins og það er til fólk, sem hefur frábæra sjón eða óvenju næma heyrn, þá eru aðrir, sem hafa annars konar sjón og heyrn. „I gamla daga kölluðu þeir, sem ótt- uðust okkur, okkur nornir, og margar okkar þjáðust mikið. „Nú eru nornir ekki lengur brenndar, og reyndar eru fæstir, sem trúa því, að þær séu til. En þeir, sem trúa því, segja að við séum skyggnar eða eitthvað I þá áttina. En jafnvel þaðerekki rétt.” Hún þagnaði og prjónaði nokkrar lykkjur. og þegar Isabel hvatti hana til að halda áfram, sagði hún —: „Þetta er eins og munurinn á öndum og fiskum. Flestir synda á yfirborðinu • eins og endur, en við syndum í djúpun- um undir yfirborðinu, sjáum og heyrum fleira og skynjum hluti með húðinni, svo að segja. Við sjáum allt mynstrið, en ekki bara hluta þess. Skilurðu mig?” Isabel kinkaði þögul kolli. Orð gömlu konunnar komu henni ekki á óvart, og reyndar hljómuðu strengir skilnings i huga hennar, þegar hún hlustaði. „Það eru margir líkir okkur á vissan hátt," hélt Jessie-Anne áfram. „Málarar, skáld, hljómlistarmenn. Það voru ann- ars alltaf hljómlistarmenn i fjölskyldu þinni. MacArthurarnir voru sekkjar- pipuleikarar MacDonald-ættarinnar mann fram af manni, og sumir þeirra voru líka söngvarar og skáld. Fjölskylda Floru voru gullsmiðir og þvilikt, sem gerðu fallega muni úr dýr- um steinum og glerungi. Forfeður minir voru söngvaskáld, og gættu hetjukvæðanna miklu og sagn- anna. Vissirðu, að ein einfaldasta sagan, Lir- börnin þrjú, er tvo klukkutíma I flutn- ingi? Jæja, þannig er það nú samt. og sögurnar voru kenndar munnlega og aldrei skráðar á blað. Sögur um líf og dauða og eilifð, og þær segja frá mynstr- inu fyrir þá, sem hafa eyru til að hlusta með. Frá því að skilja mynstrið, er ekki langur spölur til þess að vefa fáeina þræði I það sjálfur, og þeir okkar eru til, sem geta það. Flora hafði þennan hæfileika, og það hef ég líka. En sjáðu til — Flora var hættuleg.” Enn þagnaði Jessie-Anne, og Isabel þurfti aftur að biðja hana að halda áfram. „Hún var I eðli sinu afbrýðisöm og beisk, og hún reyndi að breyta mynstr- inu sjálfri sér I vil, og hún gerði hvað, sem var til að fá það, sem hana langaði I. Ross notaði hún svo aftur.” Hæðnisbros fór um andlit hennar. „Flora var ákveðin í því, að Torquil giftist ekki Mary-Catherine, auðvitað vegna þess, að hún vildi sjálf fá hann. Því fékk hún Ross til að eltast við hana og láta hana ekki i friði, I þeirri von að Torquil yrði afbrýðissamur og sliti sam- bandinu. Torquil tók auðvitað ekki neitt eftir neinu, þvi hann er fullur trúnaðar- trausts, og Ross bætti um betur. Hann króaði Mary-Catherine af i skóginum bak við húsið hennar eitt kvöldið og nauðgaði henni —Jessie- Anne leit upp, þegar Isabel tók andköf af hryllingi, og augu hennar voru full samúðar. „Já, það er hræðilegt ofbeldisverk — að breyta því, sem getur verið svo fagurt, I glæp. Það er það versta, það versta — ” Rödd gömlu konunnar breyttist I taut, og hún starði á prjónana slna eins og ÁVALLT í FARARBRODDI TEIKNIPENNA E' Fr it§)tring isograph® Allar nánari upplýsingar: PENNAVIÐGERÐIN Inqólfsstræti 2, sími 13271 Viðurkenndir úrvals pennar fyrir atvinnumenn, kennararog námsfólk. Rotring teiknipennar og teikniáhöld fást í þægilegum einingum fyrir skóla og teiknistofur. Tvöföld þétting í hettunni tryggir, að eigin- leikar (Rotring Isograph) eru ávallt hinir sömu, jafnvel þótt hann hafi ekki verið notaður lengi. 37. TBL.VIKAN 49

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.