Vikan - 19.04.1979, Blaðsíða 29
Gráðaostur er sterkur og bragðast vel sem
lokaþáttur í góðri máltíð. Myglan í honum
er skaðlaus. En það sama verður ekki sagt
um alla myglu. Varið ykkur til dæmis á
myglaðri saft eða mygluðum ávöxtum.
EKKI ER
ÖLL MYGLA
SKAÐLAUS
myglan getur hafa skotið rótum
út um alla flösku eða krukku.
Það er heldur engin lausn að
sjóða upp sultu eða saft, þar sem
myglueitrið eyðist ekki við það.
Það er ekki nein aðferð þekkt til
að eyða eitrinu öðruvísi en að
eyðileggja matinn um leið.
Heimatilbúið myglar fyrr
Heimatilbúin sulta og saft
myglar fyrr en verksmiðjufram-
leidd. Það er vegna þess, að
rotvarnarefni eru síður notuð
við niðursuðu heima fyrir.
Sykur varnar þvi, að mygla
nái að myndast. En hvað eiga þá
þeir að gera, sem vilja ekki
sætar sultur og saft? Þeim er
ráðlagt að notfæra sér
rotvarnarefni, sem fáanleg eru,
en um leið bent á að fara
nákvæmlega eftir leiðbeiningum
á umbúðunum. Sumir hafa
verið á móti slíkum efnum, en
ekki er vitað um neinar hliðar-
verkanir, ef farið er vel eftir
leiðbeiningum, þar sem aftur á
móti er nú ljóst, að myglueitur
getur verið krabbameins-
valdandi.
Sé um mygluð ber að ræða,
nægir að henda þeim skemmdu,
en í lagi að nota þau, sem virðast
þurr og þétt í sér. Myglu í
ávöxtum á að skera rækilega í
burtu, og sé ávöxturinn laus í sér
og vatnslegur, ber að henda
honum öllum.
Innfluttar vörur geta verið
myglaðar
Mygla þrífst best i raka. Við
hér á norðurhveli jarðar eigum
þvi við lítil vandamál að stríða í
þessum efnum miðað við heitari
löndin. En vörur frá heitari
löndum geta hugsanlega borið
með sér myglu. Það kom t.d. i
ljós eftir víðtækar rannsóknir í
Svíþjóð, að innfluttar hnetur,
svokallaðar parahnetur, voru oft
myglaðar. Við nánari
rannsóknir fannst í þeim myglu-
eitrið aflatoxin, sem fyrr er
getið. Þessar niðurstöður vöktu
mikla athygli, og árið 1974 voru
sett lög um eftirlit með þessum
innflutningi, sem hafði þau
áhrif, að nú er þessu vandamáli
rutt úr vegi, hvað Svíana varðar.
En ekkert vandamál hefur
aðeins eina hlið. Dökka hliðin á
hnetumálinu er sú, að þær
þjóðir, sem rækta og flytja út
hnetur, eru yfirleitt fátækar, og
landsmenn hreinlega neyðast til
þess að borða sjálfir þær hnetur,
sem þeir geta ekki selt til
útflutnings. Þetta fólk er svo í
þokkabót oftast með lélega
mótstöðu gegn þeirri óhollustu,
sem það neyðist til að láta ofan í
sig.
Hættulegra en blý?
Hættan, sem mygla í mat
getur haft í för með sér, er nú
viðurkennd víða um lönd. í
Bandaríkjunum eru víðtækar
matvælarannsóknir, sem miða
að því að draga úr sjúkdómum,
sem geta orsakast af fæðu-
neyslu. Þar hafa rannsóknir á
myglueitri nú verið teknar fram
yfir rannsóknir á kvikasilfri,
blýi og kadmium.
Höf: Carina Lundgren, Rád & Rön.
Þýð.:K.H.
Birt í samráði við Neytendasamtökin.
16. tbl. Vikan 29