Vikan


Vikan - 19.07.1979, Page 38

Vikan - 19.07.1979, Page 38
þegar allir hnútar hafa varíð hnýttir. „Hann ar val kýldur," sagfli dýraleeknirínn og þraKafli A pungnum — „bsafli aistun niflri." . .. og svo sofnar hann. tauti verður við komið. Því er augljóst að eigi að nota hesta til reiðar og sportmennsku þá er gelding nauðsyn. Glæsileiki Höfðingjar til forna notuðu graðhesta til reiðar er þeir riðu til þings eða annarra mannamótai þar sem mikið lá við. Vildu þeir þá að sjálfsögðu sýna sig i sínu fínasta pússi og þá var frýsandi graðhestur á við margar skraut- fjaðrir. Einnig má geta þess að í hestavígum fyrr á öldum var eingöngu notast við graðhesta enda óvinnandi vegur að ætla að etja tveimur geldum góðhestum saman. Þeir myndu bara sleikja og naga hvor annan. Svæsnar aðferðir En allt um það. Nú til dags er farið að gelda hross á vísinda- legan hátt. Um það sjá eingöngu dýralæknar, með sérstök tæki og tól, svæfingar og annað sem tengist mannúð. Það var þó ekki fyrr en á þriðja eða fjórða tug þessarar aldar að hestageldingar komust í hendur sérmenntaðra manna. Áður fyrr voru það svo- kallaðir geldingamenn, yfirleitt bændur, sem sáu um þetta og gerðu það hver með sínu lagi. Þá var ekki verið að hafa fyrir því að svæfa vesalings skepnurnar og aðferðirnar voru ekki alltaf lystaukandi. Ein aðferðin, og sú algeng- asta, fólst í þvi að eistu hestsins voru klipin undan honum með sérstakri töng, geldingatöng. Önnur var að geldingamenn létu sér vaxa oddmjóa nögl á þumal- fingri, svokallaða geldinganögl, og notuðu hana svo til að stinga i gegnum punginn og í gegnum eistun. Tvær stungur og eistun voru ónýt á eftir. Einnig var algengt að eistun væru einfald- lega marin með því að leggja þau á harða undirstöðu og láta siðan þungan stein vaða á þau — þarf ekki að draga árangur- inníefa! Nú er það mannúðin En nú er þetta allt orðið mannúðlegra eins og vera ber og hestar nútímans finna ekki neitt til þegar þeir eru geltir. Dýra- læknirinn mætir einn daginn, Skorifl A punglnn . .. . . . og annafl aistafl dragifl írt. 38 Vikan 29. tbl.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.