Vikan - 27.09.1979, Blaðsíða 18
BB eins og hún írtur út í dag,
brosandi, falleg
og ekkineerriþvi dauð úr öllum æöum.
Aldur hennar er leyridarmál.
Hana dreymdi
um að verða
sýningarstú/ka —
Nú er
hún
goð-
sögn
Brigitte Bardot aldist upp hjá dæmi-
gerðri franskri miðstéttarfjölskyldu og átti
ósköp venjulega æsku. En stúlkan sú
hugsaði stórt og stefndi hátt, hún ætlaði
að verða sýningarstúlka og Ijósmynda-
fyrirsæta. Svo hitti hún ungan mann.
Roger Vadim hét sá og hann virtist hafa
einhverja möguleika á því að koma henni
á framfæri þar sem hann starfaði sem
blaðamaður við franska vikuritið PARIS
MATCH, sem um þessar mundir á 30 ára
afmæli (VIKAN er 41 árs), og það varð
til þess að hún komst á forsíðu þess blaðs.
Roger Vadim, sem þá var enn óþekktur,
og BB felldu hugi saman og gengu í það
heilaga. Fjórum árum siðar, eða 1956,
steig BB svo sín fyrstu spor til frægðar er
hún birtist í kvikmynd eiginmanns síns,
reyndar fyrstu mynd hans: Og svo
skapaði Guð konuna. Hún heillaði allt
Frakkland á svipstundu, þessi ljóshærða
stúlka sem ætlaði að ná enn lengra og til
þess beitti hún nokkuð frumlegum
aðferðum. Hún fór að safna elskhugum
og eru flestir þeirra nú þegar skráðir í
sögu franska lýðveldisins og hinir sem
eftir eru eiga sjálfsagt eftir að hafna þar
einnig.
Þegar menn komust að þvi að hún var
i slagtogi með franska leikaranum Jean
18 Vikan 39-tbl.