Vikan - 27.09.1979, Blaðsíða 37
Tilbúinn matur i örbylgjuofna frá Sóma hf.
Á heimili nútímamannsins
eru allir að flýta sér. Fjölskyldu-
meðlimir eru ýmist á leið í
vinnu, skóla, félagsstarfsemi eða
íþróttir og svo mætti lengi telja.
Konur, sem ekki vinna utan
heimilis, verða sífellt færri og því
er vélvæðing heimilanna að
verða eitt þýðingarmesta
hagsmunamál fjölskyldunnar.
Þvottavélar, þurrkarar og
uppþvottavélar hafa sparað
mörgum ótaldar vinnustundir
en eldun matarins hefur hingað
til reynst fremur tímafrek og
litið verið um nýjungar á því
sviði. Nú hefur þó aðeins glæðst
framundan hvað þetta varðar
með tilkomu örbylgjuofna.
Þessir ofnar hafa unnið sér
fastan sess á matsölustöðum, en
fremur lítið verið um að þeir
væru notaðir í heimahúsum.
Neytendakönnun Vikunnar
átti fremur bágt með að trúa
lýsingum seljenda á undratæki
þessu og því var ákveðið að
Vikumenn fengju að lita
tæknina eigin augum hér á rit-
stjórn. Fyrirtækið Georg
Ámundason og co, Suðurlands-
VÁN
VIKAN Á
NEYTENDA-
MARKAÐI
braut 10 í Reykjavík, er söluaðili
fyrir hina bandarísku Amana
örbylgjuofna hér á landi og
buðu þeir ritstjóminni í stórveislu
á dögunum. Orbylgjuofn var
umsvifalaust borinn inn í
eldunarhorn ritstjórnarinnar og
slegið upp veislu á örfáum
mínútum. Að sjálfsögðu var
þaulvanur matreiðslumaður
með í för, Bjarni Sveinsson frá
fyrirtækinu Sóma hf. í
Kópavogi, en þar er framleiddur
tilbúinn matur í þessa ofna.
í ofnana má setja næstum allt
milli himins og jarðar (í flokki
matvæla) og margir réttir geta
farið inn í ofninn í einu á sama
diskinum. Já, vel að merkja,
diskar eru engin nauðsyn, eld-
húsrúllan getur í flestum
tilvikum komið í stað diska!
Þannig er um að ræða tíma-
sparnað hvað uppþvottinn
snertir að auki. Enga stund
tekur að elda eina máltíð í
slíkum ofni, ef til vill ekki nema
fimm til tíu mínútur fyrir al-
gengustu miðdegis- eða kvöld-
máltíð.
Orka Ofninn er mjög
auðfluttur og gengur í samband
við hvaða jarðtengda innstungu
sem er. Örbylgjuofnar eyða
minna rafmagni en venjulegir
ofnar.
Geislun Sáralítil hætta er á
geislun frá ofninum, miklu
minni en af setu fyrir framan
sjónvarpstæki.
39. tbl. VIKan 37