Vikan - 21.02.1980, Blaðsíða 39
æ.í,':
5 " 1
*
: : . ' :
: : :
Leikföng, sem eru eins og matur á aö líta, eru sérstaklega varhugaverð.
Lítið t.d. á hálsbandiö, sem er eins og ávextir, og litlu brauðin. Þetta er úr
mjúku plasti, skrautlegt á lit og því sérlega girnilegt. Bollastcllið, snuðið
og pelinn eru líka of lítil og járnþeytarinn til vinstri er stórhættulegur.
Börn geta auðveldlega rifið þeytarann sundur, stungiö sig í augun eða
potað vírnum í innstungu. Svona leikföng ætti ekkert barn að hafa í sínum
búleikjum.
Strokleður cru oft framleidd I likingu við sælgætisbita eða ávöxt. Sérstök
sætindalykt fyllir vitin þegar þau eru borin upp að andlitinu og freistar
óvitans. Rottan er t.d. eins og marsipan að sjá og angar sætt — en þetta
er þá bara strokleður. Sama er um hin strokleðrin á myndinni. Þau eru öll
varasöm þar sem börn eru.
Börn, sem eru undir þriggja ára, ættu ekki að fá í hendur brúður eða dýr
sem fyllt eru með kurluðum svampi. Ef börnin troða slíku í munninn er
voðinn vis. Höfuðið á brúðunni hér á myndinni var hægt að losa af með
einu handtaki og tróðið vall út.
Smáleikföng (eða leikföng samsett úr smáhlutum sem auðvcldlega detta
sundur) sem komast inn í þessi form hér á myndinni, ætti ekki að kaupa
handa börnum undir þriggja ára. í Sviþjóð og Bandaríkjunum er
framleiðendum skylt að merkja á umbúðir leikfanga, ef þau innihalda smá-
hluti sem börnum stafar hætta af.
8. tbl. Vikan 39