Vikan - 17.04.1980, Page 27
Mest um fólk
Vestfirðir:
Erfiðar
sam-
göngur
Ljósm.: JIM SMAR T
— Við eiguin sennilega í harðari
baráttu við veðrið hér en á flestum
öðrum stöðum á landinu, sagði Reynir
Adólfsson. umdæmisstjóri Flugleiða á
Vestfjörðum, er blaðamenn hittu hann
að máli á flugvellinum á lsafirði.
— Sumaráætlunin gengur að vísu
mjög vel en á tímabilinu apríl maí má
búast við öllu. Aðstæður eru t.d.
þannig að i sunnan- og suð-austanátt
gerir ófært um leið og eitthvað' hreyfir
vind. Og hér breytast veður svo skjótt að
stundum gerir tneira að segja ófært á
meðan vélin stansar á vellinum til að
taka farþega. Við reynum líka að fara
mjög nákvæmlega eftir öllum öryggis-
reglum, t.d. hvað þyngd vélarinnar
snertir, og verðum þvi kannski að taka
skyndiákvörðun um fækkun farþega, oft
úr 48 niður í 36-34.
— Vélarnar verða líka að vera lentar
45 minútum fyrir myrkur sem sníður
okkur auðvitað þröngan stakk um
háveturinn, þegar dagsbirtan er kannski
ekki nema 4-5 timar á sólarhring. Þess
vegna er betri Ijósaútbúnaður mikið
nauðsynjamál fyrir þennan völl.
— Ýmislegt annað hefur líka komið
til tals til að bæta úr þessum samgöngu-
erfiðleikum, eins og t.d. að byggja vara-
völl á Holti í Önundarfirði og gera göng
í gegnum Breiðadalsheiði svo að þangað
sé bílfært að vetrarlagi. Við höfum
stundum gripið til þess ráðs að nota
Þingeyrarflugvöl! þegar ófært er á Isa-
fjörð en þangað er óþægilega langur
akstur.
— 1 sumar stendur til að við opnum
hér kaffiteríu en hingað til höfum við
aðeins getað boðið farþegum upp á
gosdrykki og sælgæti. Og það ætti
óneitanlega að létta þeim biðina þegar
náttúruöflin gripa harkalega inn i
áætlunina okkai. JÞ
I þetta skipti varfl þriggja tima
seinkun A brottför svo Flugleiflir
buflu upp A gos og sælgæti. Vifl
afgreiflslu A þvi voru þær GrAta
Jónsdóttir og Ingibjörg KristjAns-
dóttir Asamt honum Hilmari litia Þór.
Farþegar A leifl til höfuflborgarinnar.
Amór Magnússon og Jóhann Guðmundsson afgreifla Flugleiða-
farþega A ísafjarflarflugvelli.
Ió.tbl. Vikan27