Vikan


Vikan - 04.12.1980, Side 10

Vikan - 04.12.1980, Side 10
Höfundur: Matthías Jochumsson Fullvel man ég fimmtíu’ ára sól, fullvel meir en hálfrar aldar jól, man það fyrst, er sviptur allri sút sat ég barn með rauðan vasaklút. Kertin brunnu bjart í lágum snúð. bræður fjórir áttu Ijósin prúð, mamma settist sjálf við okkar borð; sjáið, enn þá man ég hennar orð: „Þessa hátíð gefur okkur Guð, Guð, hann skapar allan lifsfögnuð, án hans gæzku aldrei sprytti rós, án hans náðar dæi sérhvert Ijós. Þessi Ijós, sem gleðja ykkar geð, Guð hefir kveikt, svo dýrð hans gætuð séð; jólagleðin ljúfa lausnarans leiðir okkur nú að jötu hans.“ Síðan hóf hún heilög sagnamál, himnesk birta skein í okkar sál; aldrei skyn né skilningskraftur minn skildi betur jólaboðskapinn. Margan boðskap hef ég hálfa öld heyrt og numið fram á þetta kvöld. sem mér kveikti ljós við Ijós í sál, — ljós, sem oftast hurfu þó sem tál. Hvað er jafnvel höndum tekið hnoss? Hismi, bóla, ský, sem gabbar oss; þóttú vinnir gjörvallt heimsins glys, grípur þú þó aldrei nema fis! IO Vikan 49. tbl.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.