Vikan - 04.12.1980, Síða 10
Höfundur: Matthías Jochumsson
Fullvel man ég fimmtíu’ ára sól,
fullvel meir en hálfrar aldar jól,
man það fyrst, er sviptur allri sút
sat ég barn með rauðan vasaklút.
Kertin brunnu bjart í lágum snúð.
bræður fjórir áttu Ijósin prúð,
mamma settist sjálf við okkar borð;
sjáið, enn þá man ég hennar orð:
„Þessa hátíð gefur okkur Guð,
Guð, hann skapar allan lifsfögnuð,
án hans gæzku aldrei sprytti rós,
án hans náðar dæi sérhvert Ijós.
Þessi Ijós, sem gleðja ykkar geð,
Guð hefir kveikt, svo dýrð hans gætuð séð;
jólagleðin ljúfa lausnarans
leiðir okkur nú að jötu hans.“
Síðan hóf hún heilög sagnamál,
himnesk birta skein í okkar sál;
aldrei skyn né skilningskraftur minn
skildi betur jólaboðskapinn.
Margan boðskap hef ég hálfa öld
heyrt og numið fram á þetta kvöld.
sem mér kveikti ljós við Ijós í sál, —
ljós, sem oftast hurfu þó sem tál.
Hvað er jafnvel höndum tekið hnoss?
Hismi, bóla, ský, sem gabbar oss;
þóttú vinnir gjörvallt heimsins glys,
grípur þú þó aldrei nema fis!
IO Vikan 49. tbl.