Vikan


Vikan - 04.12.1980, Page 17

Vikan - 04.12.1980, Page 17
Framhaldssaga Ég hef [xi fundið þann sem þú hittir í hliðarganginum. Hún hrökk við. — Það var veran sem hræddi mig mest — eftir á datt mér í hug að það gæti verið sú sama og réðst á mig. — Þar held ég að þú hafir á röngu að standa, sagði Ríkarður þurrlega. — Hvað var það sem ég sá — sem ég hitti? — Spegill. — Þú meinar að ég hafi hitt sjálfa mig? — Einmitt, það hangir stór spegill við enda gangsins. Hún starði á hann. — Ég er vist ansi einföld annaðslagið. — Það var ekki auðvelt að sjá hann í myrkrinu. sagði hann hughreyslandi. — En hvað með hinar tvær.. . ? — Það er dálítið sem ég þarf að sýna þér, hvislaði hún. — En það má enginn annarsjá það. —Allt i lagi, sagði hann. — Við skulum fara inn í herbergiðmilt. Það var jafnkalt þar og í hennar her- bergi. Þar að auki var trekkur. Hún gerði sér grein fyrir að hennar herbergi bar af hvað þægindi snerti. Hún tók bréfið úr vasanum. — Ég gat ekki minnst á það i gærkvöldi, sagði hún lágmælt. — Fyrsta veran sem hljóp framhjá mér rétti mér þetta. Ég átti ekki að sýna það neinum en ég vil ekki leyna þig neinu. — Það kemur fyrir að þú hugsar skynsamlega, sagði hann. Leyfðu mér að sjá, hvað er þetta? Bréf til Eysteins Kruse konsúls, Vindeiði. Það segir okkur ekki mikið. Eigum við að opna það? — Það er ekki til okkar, sagði Jennifer óákveðin. — Ég held að það hafi verið ætlunin aðéggeymdi það. Hann kinkaði kolli. — Þú hefur á réttu að standa. Viðkomandi gefur sig fram fyrr eða síðar. Þetta er liklega eitt hvað sem hann eða hún er hrædd um að falli í rangar hendur. Nei, þú skall geyma það og við sjáum hvað gerist! Ef ekkert fleira gerist látum við konsúlinn hafa það um leið og við komum til Vind- eiðis. — Hver ætli hafi lálið mig hafa bréfið? sagði Jennifer hugsandi. — Við getum útilokað þig og Lovisu þvi þið voruðsaman þarna uppi. — Nei, við vorum aldeilis ekki saman! Hún hljóp hvað eftir annað i burtu frá mér. Hún var á barmi tauga áfalls. Hún getur vel hafa náð því að rétta þér bréfið — eða reynt að kyrkja þig ef þvi væri að skipta. Það eru svo margir gangar og aðrir afkimar þarna uppi og þar að auki svartamyrkur.. . —Hún sagðist hafa heyrt eitthvað þarna uppi og farið þangað þess vegna. Trúirðu henni? — Ég hef alla vega ekki komist að neinu sem mælir gegn því. — Hvar var það sem þú fannst hana? — Það var í einhvers konar geymslu. Þar voru sængurföt, hreinlætisvörur og þess háttar. Lovísa var alveg búin að tapa sér. Hún hljóðaði upp yfir sig hvað eftir annað og var búin að velta um nokkrum flöskum. Það voru flöskubrot út um allt svo hún hefði auðveldlega getaðskoriðsig. — Ég held að hún hafi séð eitthvað, sagði Jennifer hugsi. Ellef u dagar i SNJÓ — Ekki vera með svona vitleysu. Henni líður mun betur i dag, en hún er mjög tekin til augnanna. — Hún grætur örugglega mikið. Ég held aðhúnséóhamingjusöm. — Það held ég að sé rétt hjá þér. Ástandiðer ekki nógu gott hér. Jennifer. Einn með taugaáfall. einn látinn. einn horfinn út í bylinn og fjöldi dularfullra atburða gerist. Það er heldur ekki sér- lega einfalt aðeiga við þig! — Það skiptir engu máli, sagði hún áhyggjulaust. — Ef ég get verið hjá þér er allt eins og það á að vera. Ég vildi óska þess að við gætum verið saman að eilífu! Rikarður lyfti augabrúnunum undr- andi. — Á ég að taka þetta sem bónorð? — B. . . bón. . . hún gapti. — Nei, hvers vegna þarftu aðsnúa út úr öllu? — Snúa úl úr? Þvert á móti, mér þætti þaðeinfalda máliðtil muna. — Þaðvarekki þaðsemégátti við. — Nei, ég veit það. Hann lagði höndina á höfuð hennar. Farðu nú að vaxa upp úr barnæskunni. Ég get ekki umgengist þig eins og þú ert núna! Það var alvarlegur svipur á andliti hennar. — Ég er hrædd. Lif fullorðinna er eins og stór svartur skápur. Hann varpar skugga sínum yfir mig annað slagið, Rikarður. Ég þori ekki að fara inn i hann. Ég vil heldur vera úti á slétt- unni og leika mér. — Skilurðu ekki að leikur getur verið alveg jafnhættulegur? Hann getur dregið þig inn í aðra myrkraveröld. — Þú meinar hugarheiminn, er það ekki? Ég veit það en það er engin hætta á þvi, ég held jafnvæginu. — Vertuekki of örugg um það. Þau þögðu um sturtd, eins og þau vissu ekki hvernig þau ættu að halda samtalinu áfram. Jennifer tók eftir að Rikarður ætlaði að fara að spyrja nýrra spurninga svo hún flýtti sér að verða fyrri til: — Ertu ánægður með lífið i lögregl unni? Hann dró hendumar til sín. — Já, það er ég. Reyndar eru fyrri vonir mínar um starfið orðnar að engu. Annað slagið fyllist ég vonleysi. Viðhorf almennings til lögreglunnar hefur breyst. Lögreglan er ekki lengur sá aðili sem maður leitar til þegar maður þarf á aðstoð að halda. Hún er orðin „óvinurinn”. Ég er heldur ekki sérstaklega ánægður með hugsunarhátt margra af starfsfélögum minum. Lögreglustarfið hefur alltaf dregið til sin manngerðir sem hugsa eitt- hvað í þessa áttina: Ef þeir sýna ein- hverja mótstöðu lemjið þið þá bara niður. Ef þeir eru ekki þegar farnir að sýna mótstöðu þá ætla þeir sér að gera það og þá er betra að verða fyrri til að slá. Það eru ekki margir af þessari gerð inni en þeir finnast. Hvað með þig, Jennifer? Þú varst eitthvað að tala urn skólagöngu. Hvað hefur þú eiginlega gert í öll þessi ár? — Ég hef því miður ekki gert sérstak- lega mikið. sagði hún. — Foreldrar ntínir vildu aðég færi í arkitektaskóla og til að reyna að nálgast þau gerði ég það. Þau fylltust áhuga, Ríkarður! Ég var orðin eins og félagi. Þau töluðu við mig og spurðu mig ráða. Það var indæll tími en stóð stutt. Ég gat ekki hugsað mér að verða arkítekt! Mér gekk illa í skólan um, einfaldlega vegna þess að ég hafði ekki áhuga á náminu. og þess vegna hljópst ég á brott. Foreldrar minir misstu fljótlega áhugann á mér og nú geri ég ekkert. — Hvaðlangarþigtilaðgera? — Ég veit þaðekki, sagði hún niður- lút. — Er það ekki hræðilegt að þurfa að ákveða framtíðarstarfið einmitt á þeim árum þegar maður er hvað óöruggastur? Ég held að ég sé ekki ein um að hugsa svona. Helst vildi ég verða rithöfundur en foreldrar mínir segja að það sé ekki starf heldur fristundagaman. Guð sé oss næstur! tautaði Ríkarður. — Ég ræddi við rithöfund fyrir nokkru og hann sagði að hann hefði mikla innri þörf fyrir að skrifa. Það væri eins og hann væri þvingaður til þess. — Það er einmitt þannig sem mér liður, sagði Jennifer ákveðin. — Ef þú vissir hvað ég er búin að skrifa margar stílabækur fullar. Ég gel skrifað heilu næturnar marga sólarhringa í röð! Rikarður brosti vingiarnlega. Leyfðu mér einhvern tima að lesa eitthvað af því sem þú hefur skrifað. Þú finnur örugglega út úr því hvað þú ætlar að gera, þú þarft ekki að vera hraxld unt það. Kannski verðurðu rithöfundur. Lifið blasir við þér. Dásamlegt líf. í augum hennar brá fyrir sama d.iúpa ráðleysinu og hann hafði séð daginn áður, þegar hann talaði af sér. Hún sneri sér undan, stóð upp og horfði út i snjó drifuna. Hún fann kuldann læsasl um sig. — Förum i stofuna, þar er heitt. sagði hún. Rikarður hikaði lítiðeitt áður en hann fylgdi henni. Hann var sokkinn i djúpar hugsanir. Hvað hafði orðið um Jennifer? Lillu. óstýrilátu og glöðu Jennifer? Á einhvern undarlegan hátt. fannst honum sent sökin væri hans. Framh. í næsta blaði. 49. tbl. Vikan 17

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.