Vikan - 04.12.1980, Side 23
i
Viðtal Vikunnar
GUNNARÞÓRÐARSON
tónlistarmaður.
„Ég þekki Hauk ekki mikið. en hef
ekkert nema gott um manninn að segja.
Þetta er ljúfmenni, og það er einstakt
afrek að hafa staðið svona lengi i þessu
og hafa staðið upp úr i öll þessi ár.”
JÓNAS R. JÓNSSON
hljóðupptnkumaður.
„Haukur Morthens? Hann er síungur
söngvari, kannski meiri og betri atvinnu-
maður en margir af yngri mönnunum.
Og hann er heiðursmaður að vinna með.
Gamaldags? Kannski finnst ungling-
um alltaf þeir eldri dálítið gamaldags, en
það hefur alltaf verið borin virðing fyrir
Hauki i þessum þransa.
Úreltur? Sko, sumt er tiska og verður
úrelt, en ekki Haukur Morthens."
Þetta er allt svo mikið
augnablik.
— Er það þá stíllinn núna?
— Sé eitthvað vel gert, þá gengur það,
sama hver stíllinn er. Við sjáum til
dæmis. hvernig þessi lög eru, sem
komast lengst í söngvakeppnum
erlendis, þetta eru bara fallegar og
skemmtilegar melódiur. Sjáðu árangur
Björgvins, sem kemst i 4. sæti i alþjóð-
legri keppni með fallegt lag og góðan
flutning, en engan sérstakan stil, hvorki
pönk eða rokk, bara fallega melódíu.
— Margir tónlistarmenn virðast telja
það keppikefli að koma sér á framfæri
erlendis. Hefur það aldrei verið neitt
takmark hjá þér?
— Ég hef unnið talsvert erlendis,
einkum á Norðurlöndunum. og ég gat
komist á samning þar. En — ég veit ekki
— það kostar ekki lítið að komast á
toppinn, og þetta er allt svo mikið
augnablik. Er það bara þess virði?
— Hefurðu lært að syngja?
— Já, já, ég hef lært að syngja hjá
ýmsum góðum mönnum, en við skulum
ekkert vera að bendla þá við þetta, þeini
er víst enginn greiði gerður með þvi,
segir Haukur og kimir. — Þó vil ég
nefna einn, Sigurð Skagfield. Hann var
49. tbl. Vikan 23