Vikan


Vikan - 04.12.1980, Blaðsíða 62

Vikan - 04.12.1980, Blaðsíða 62
Texti: Anna Oft hefur verið haft á orði að kirkjur landsins séu harla fábrotnar og snauðar ef þær eru bornar saman við eriendar kirkjur. Og vist er um þaó að viða er mikill iburður i kirkjum utanlands. Þxr eru margar hverjar hin mestu stórhýsi og skrautgyllingar og giæsilegar myndir þekja þær að miklu leyti. Skyldi þá eftir engu að slægjast i islenskum kirkjum ef litið er á veraldlega muni? Flestum mun vlst Ijóst að 'það er alrangt. Til eru allt of mörg og þekkt dæmi sem afsanna það. Ekki þarf annað en aö iita á Kópavogskirkju til að sjá dæmi um vel heppnaða kirkjulist, þar er bygginga|istin sjálf sönnunargagnið og margt er fleira aö sjá fallegt: steindir gluggar cftir Gerði Helgadóttur vekja athygli margta. Altaristafla af Íslandi hefur gist heimssýninguna í París árið 1900. Sú er frá Skarði á Skarðsströnd í Dölum. Hún þykir hin mesta gersemi, öll útskorin og máluð. eins og gert var fyrr við allar helgimyndir sem voru útskornar eða mótaðar. Kirkjan sem á þessa gersemi er þó snauð af veraldarfé. Jóhanna Björnsdóttir húsmóðir í Kópavogi hefur komið í langflestar kirkjur landsins og á myndir af þeim öllumaðutan og mörgum að innan. Það er forvitnilegt að vita hvernig það atvikaðist að hún tók upp á þessari söfnun upp á eigin spýtur: „Ég byrjaði á því að taka þessar myndir fyrir finnska vinkonu mína.” segir hún. „Þessi kona. Margit Jalo, var hagfræðingur og kom hingað fyrst á hagfræðingaþing. Hún varð mjög heilluð af íslandi, gekk meira að segja berfætt á Esju." Mikið eigum við Margit Jalo að þakka því hún bað Jóhönnu um að senda sér myndir af íslenskum kirkjum ef hún kæmi á kírkju- staði. Einhverju sinni er Jóhanna var að líta í skúffur rakst hún á filmurnar með kirkjunum og datt í hug að láta kópera myndir af þeim handa sjálfri sér. Það hafði hún ekki gert fyrr. Áhuginn vaknaði og hún fór að hafa gaman af að bera saman þessar eldri myndir og kirkjurnar eins og þær voru orðnar, oft LITAST UM i KIRKJUM LANDSINS - þar er margt að finna í þessari Viku veröur iesendum boðið í smáhringferð um kirkjur landsins í máli og myndum. í þetta sinn var ekki verið að skoða það lifandi starf sem unnið er í kirkjum heldur litið á ytra byrðið, kirkjumuni og þá einkum altaris- töflur. Á Biskupsstofu var málaleitan okkar vel tekið og fjölmargar ábendingar gefnar um gott fólk sem vissi mikiö um einstakar kirkjur. Tími gafst þó ekki til að sinna því sem skyldi. Drýgri varð sá fróðleikur sem séra Bernharður Guðmundsson og samstarfsfólk hans veitti okkur. Því þó gaman sé að eyða góðum tíma í að tala um einstakar kirkjur var það tyrst og fremst yfirsýn sem okkur langaði að gefa lesendum að þessu sinni. En heppni Vikunnar að þessu sinni var alveg einstök. Við komumst í samband við konu sem hefur markvisst skoðað allar kirkjur á landinu, myndað þær og náð saman margháttuðum fróðleik um þær. Úr hennar sjóði er mikið efni fengið og raunar stærstur híuti þessarar greinar. Vikan kann Jóhönnu Björnsdóttur og öðrum sem liðsinntu okkur hinar bestu þakkir. Víðar var leitað og alls staðar var hin mesta hjálpfýsi á vegi okkar þó erfiðlega gengi að fá að geta allra heimilda. Það er von okkar að sem allra flestir hafi eitthvert gagn og gleði af og menn sjái kirkjurnar sínar og aðrar kirkjur í nýju og jafnvel skemmtilegra Ijósi. Vel að merkja: Ýmsir eiga eftir að komast að því að kirkjunnar þeirra er ekki getið. Og það er sannarlega ekki vegna þess að kirkjan þeirra sé ekki nógu merkileg. Heildarmynd og að nokkru leyti hending ræður því hvaða kirkna er getið og hverra ekki. Hins vegar hefur Vikan ekki nú í eitt skipti fyrir öll afgreitt kirkjur landsins. Svo ef einhver lumar á fróðleiksbrotum um sína kirkju þá er vissulega vel gert og þarft verk að senda okkur línu. Fróðleikur getur glatast sé hann hvergi skráður. breyttar. Nú hefur Jóhanna fyrir löngu hafið skipulega söfnun á kirkjumyndum. Hún hefur tekið fjöldann allan af Ijósmyndum, fyrst allt í svarthvítu en seinni árin meira á skyggnur. Sonur hennar, Hörður Óskarsson, hefur einnig tekið fyrir hana litmyndir og það eru fyrst og fremst hans myndir sem birtast að þessu sinni. Ekki er laust við að ýmislegt markvert hafi gerst á þessum ferðum og ef einhver heldur að söfnun af þessu tagi sé fyrir- • hafnarlaus þá er það mesti mis skilningur. • Með orgel um sleipan moldarslóða Ábæjarkirkja í Austurdal i Skagafirði er litil steinkirkja og messað einu sinni á ári. Þar var áður torfkirkja en sú sem nú stendur varð hálfrar aldar gömul 1972. Þá voru sóknarbörn aðeins 9 af tveim bæjunt. 160 manns mættu við afmælis- ! messu i þessa 30-40 manna kirkju. Má nærri geta að þröng var á þingi. Eitt sinn var Jóhanna þar við guðsþjónustu ásarnt fjölskyldu sinni. Séra Ágúst Sigurðsson á Mælifelli predikaði og báru þeir séra Ágúst og Óskar maður Jóhönnu orgelið til kirkju. Séra Ágúst kom með það i bíl sinum. Nokkur spölur var til kirkjunnar og lá leiðin um sleipan moldarslóða, þvi þetta var í vætutið, og þaðan yfir litla göngubrú til kirkju. 1 bakaleið fékkst liðsstyrkur og fjórir menn og presturinn báru orgelið þá leiðina. En svo þröngt var kirkjan setin að eins gott var að allir stóðu upp i einu, annað hefði vart verið mögulegt undir messunni. Og presturinn varð að skrýða sig úti undir kirkjuveggnum í rigningunni. Gengið í 2 daga og sjóleiðin til Gmnnavíkur Langar gönguferðir og sjóróðrar eru að baki sumra myndanna. Tveggja daga gönguferð úr Borgarfirði eystra i Loðmundarfjörð er að baki myndar- innar af Klyppsstaðarkirkju. Hornstrandaferð er ein þeirra ferða sent Jóhanna hefur farið til að mynda kirkjur. Hún segist hafa haft slæma samvisku af þvi að láta bátinn lóna úti á , Grunnavik meðan hún skrapp i land til að taka mynd. Báturinn gat ekki lagst að vegna veðurs, „það var vægast sagt and- styggilegt." segir Jóhanna. 1 Grunnavik var Maria Maack, en þar var hún í sumarleyfum sínum. Hún hirti ntjög vel um kirkjuna og lét ekki kirkju- lykilinn af hendi fýrr en hún var búin að sjá hver vildi skoða kirkjuna. Jóhanna lætur ekki mikið yfir þessum ævintýrum og segist hafa mikla ánægju af þessari söfnun. Hún er lika útilífs- 62 VlKan 49. tbl.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.