Vikan


Vikan - 04.12.1980, Side 64

Vikan - 04.12.1980, Side 64
Viða eru kapellur i stað kirkna, þar sem áður hafa verið kirkjur. Þessi altaristafla er i kapellu að Sólheimum i Vestur-Skaftafellssýslu og var byggð eftjr að kirkjulaust hafði verið þar frá aldamótum. Enn var kirkjugarðurinn notaður svo að ráði varð að reisa kapellu. Altaris- taflan er eftir konu úr sveitinni, Margróti Ásgeirsdóttur, Framnesi I Mýrdal. Kapellan var vigð 1960. Ljósm. Hörður Óskarsson. KIRKJU LIST Úr (safjarðarkirkju. Stflhreint altari þar sem stytta Thorvaldsens er í öndvegi. Þetta er sama styttan og er við Fossvogskapellu. Altaris- dúkurinn vekur athygli manns og setur mikinn svip á heildarmyndina. Krossinn og kaleikurinn með harða ngurssaumi. Ljósm.: Hörður Óskarsson. Hér sjáum við sóra Kára Valsson messa i Hriseyjarkirkju. i baksýn er altanstaflan með góbeSnvefnaðinum. Sjá má litabrigði ofarlega á töflunni. Efsti hlutinn er ekki hluti vefnaðarins heldur málaði Hörður Jónmundsson á Akureyri framlengingu ó tró. Fyrir 14 órum, þegar sára Kári hóf prestskap i Hrísey, var varla nokkurn mun að sjá á vefnaðinum og þvi sem málað var á tré. En siðan hefur vefnaðurinn upplitast öðruvisi en efsta röndin. Taflan var keypt af iistmunasala i Reykjavik um 1953 og gaf Gústaf A. Ágústsson hana i minningu móður sinnar, Rósu Ágústsdóttur frá Ysta- Bæ. Þessi tafla mun vera eina sinnar gerðar á öllu landinu og er flutt inn fró Þýskalandi. Ljósm. Guðjón Björnsson. Úr Lágafellskirkju f Mosfellssveit. Altarisklæöið er eftir Unni Ólafsdóttur, sem hefur saumað ótal marga fallega kirkjugripi. Altaris- taflan er gamalkunn, eftirmynd af altaristóflu Dómkirkjunnar i Reykja- vik og eru svona eftirmyndir í allnokkrum kirkjum. Ljósm.: H. Ó. Altarið í Sæbólskirkju á Ingjalds- sandi, Vestur-ísafjarðarsýslu. Oft er kross i stað altaristöflu. Fallegt verk er ó altarisdúknum og þar er krossinn enn þungamiðjan. Hann hefur Kristin Jónsdóttir frá Ástúni, Ingjaldssandi heklað. Útskurður ó grótunum er eftir Jón Jónsson bónda á Sæbóli, sem var sóknarnefndarformaöur er kirkjan var vigð, 1929. Þar hafði áður verið kirkja, en hún fauk, eins og margar kirkjur hafa gert. Ljósm.: Hörður Óskarsson. Svona má útbúa falega kapeHu i einu litlu skoti i skóla. Þetta altari er i skólanum i Hnifsdal og er hluti af einni skólastofunni. Lokað er svo fyrir þegar kennsla fer fram i skólanum. 64 Vikan 49. tbl.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.