Vikan


Vikan - 09.07.1981, Blaðsíða 25

Vikan - 09.07.1981, Blaðsíða 25
Hvað er Orobronze? Segja má að hugmyndin að gerð Orobronze hafi fæðst þegar menn virtu fyrir sér hinn ^allega húðlit sem mynd- aðist á börnum sem borðað höfðu um nokkurt skeið gul- rótarmauk. Almennt vissu menn að karótínefni gaf góðan lit en úrvinnsla var lengi vel vandkvæðum bundin. Menn gáfust samt ekki við svo búið upp og héldu áfram þar til lausn fannst, þ.e.a.s.Canthaxanthin sem er tilbúið karótín- efni. Karótínefni sem hefur ekki þann eiginleika að fram- leiða A-vítamín (í lifur mannsins) heldur er algjörlega hreinn litur án aukaefna. Þannig varð úr einfaldri hug- mynd myndað Orobronze, en ,,Oro” þýðir á latínu gull og Orobronze inniheldur efnið sem auðveldar fólki að öðlast gylltan og hraustlegan hörundslit. Hylkið utan um Orobronze er framleitt úr gelatíni (matarlími) og í því er efnið Canthaxanthin sem er fyrrnefnt karótínefni sem gefur gulrótum, grænmeti og físki lit. í stuttu máli sagt inniheldur Orobronze eðlilegan litargjafa. Hvemig vinnur Orobronze? Það sem gerist við inntöku Orobronze er að í fitulag húðarinnar sest litarefnið, sem gerir það að verkum að menn verða ekki brúnir á hörund, heldur undir hörund- inu. Orobronze vinnur best með sólbaði af og til og án sólbaða mun árangur líklega ekki koma í ljós fyrr en á 10. —15. degi. Það er eðlilegt að enginn árangur sjáist fyrstu dag- ana. Yfirleitt koma litabreytingar fyrst í ljós á andliti og höndum. Eftir 20 daga er sjáanlegur fallegur gylltur litur. Auðvitað fer liturinn meira eða minna eftir hörundslit hvers og eins. Ef hætt er við inntöku Orobronze mun liturinn fljótlega hverfa, eða á u.þ.b. tveimur vikum, nema stunduð hafi verið sólböð og fengist hafi sólbrúnka. Það fer eftir líkamsþyngd hvers og eins hve mörg hylki af Orobronze skulu tekin inn á hverjum degi. Hvenær á að taka inn Orobronze? Á hvaða árstíma sem er. Orobronze fyrir og eftir sólarlandaferð, fyrir og eftir sólar- lampann, með sundlaugarferðum, skíðaferðum og svo Orobronze eitt sér. Fyrir sumarfrí t.d. á sólarströnd er æskilegt að hefja inn- töku tuttugu dögum áður. Þannig verður einstaklingur brúnn áður en ferðalag hefst og vekur ekki eftirtekt fyrir hvítan hörundslit. Eftir orlofsdvöl nægir að taka 1—2 Orobronze á dag til að viðhalda gylltum hörundslit. Með áframhaldandi inntöku heldur andlitið sínum lit og and- litsfarði verður (fyrir konur) að mestu óþarfur. Húðin helst frísk. Orobronze geymir alltaf sólargeisla, sem er sérstaklega hentugt þegar sól fer að lækka á lofti. Hver er tilgangurinn með Orobronze? Tilgangurinn er eðlilega sá að öðlast hraust útlit. Og Oro- bronze gefur hraust og fallegt útlit. Sólgylltan lit frá toppi til táar, án þess að þurfa að liggja klukkustund eftir klukkustund í sólinni. Og blessuð sólin virðist oft hafa annað að gera en skína á okkur íslendingana. Þar fyrir utan vinna flestir hér á landi meira en góðu hófí gegnir og hafa þess vegna engan tíma aflögu fyrir sólböð., Tilgangurinn þjónar líka þeirri tísku sem nú er í hávegum höfð því það þykir aðalsmerki fína fólksins að vera gylltur á hörund. Áður fyrr þótti t.d. fínt að vera fölur. Karlar jafnt sem konur púðruðu andlit sín með hvítu andlits- dufti. Nú er öldin önnur og með tilliti til þessarar hugar- farsbreytingar er tækifærið hér og nú með tilkomu Oro- bronze á íslandi. Hvar fæst Orobronze? í flestum snyrtivöruverslunum og apótekum um land allt. Ástæðan fyrir því að Orobronze er eingöngu se’lt í apótek- um og snyrtivöruverslunum er sú að þá geta viðskiptavinir leitað til séfræðinga með kunnáttu óski þeir upplýsinga um gerð og notkun Orobronze. Er Orobronze öruggt? Framleiðendur Orobronze segja að engar aukaverkanir hafí sést í ítrekuðum tilraunum og engar kvartanir borist um Orobronze. Heilbrigðismálaráðuneytið á íslandi, Eiturefnanefnd, yfír- læknir húðsjúkdómadeildar Landspítala íslands, heil- brigðismálaráðuneyti Svíþjóðar, Frakklands, Kanada, Ástralíu og fleiri landa, hafa lýst yfir skaðleysi efnisins, þar að auki, WHO (alþjóðlega heilbrigðisstofnun Samein- uðu þjóðanna) og FAO (matvælastofnun Sameinuðu þjóð- anna) mæla sérstaklega með Canthaxanthin litarefni í mat vegna skaðleysis. Og Canthaxapthin er uppistaðan í Oro- bronze. Möguleg eitrun af neyslu Orobronze er talin geta orðið ef einstaklingur sem vegur u.þ.b. 60 kg neytir á einum degi 20.000 (tuttugu þúsund) falds dagskammts síns í einu, eða fimmtugfalds dagskammts síns í nokkra mánuði, scm þýðir að nokkurn veginn ómögulegt er að skaðast af Orobronze. Orobronze framleiðir ekki A-vítamín (í lifur) ólíkt því sem ,,BETA-karótín” gulrótnanna gerir og er því alveg skað- laust. Brúni hörundsliturinn sem kemur af notkun Oro- bronze ver húðina ekki gegn geislum sólar, því ber að nota sömu varkárni í sólböðum og áður. Allar upplýsingar um notkun Orobronze eru í bæklingi sem fylgir hverri Orobronze pakkningu. Ber öllum að fylgja leiðbeiningum um notkun Orobronze. Þannig er Orobronze öruggt. Viltu verða brún(n)? Þitt er valið. situr fyrir svörum og lætur. gull sitt skína: Hugmynd & framkvæmd hf
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.