Vikan - 09.07.1981, Qupperneq 31
Opnuplakat
.........
Knattspyrnufélag
Reykjavíkur
L íklega eru engir eindregnari stuðnings-
menn eigin íþróttafélags í landinu en
KR-ingar. Á hinn veginn er annað
félag varla litið eins mikið hornauga og
KR. Það er því engin lognmolla
kringum félagið og hefur aldrei verið.
Liðsmenn þess hafa verið þekktir í gegn-
um tíðina fyrir að vera einstaklega
harðir í horn að taka og þess vegna þykir
engum verra að bera sigurorð af Vestur-
bæjarliðinu. KR. hefur löngum státað
af miklum knattspyrnuköppum svo sem
Bjarna Felixsyni, Þórólfi Beck, Ellert
Schram og fjöldamörgum öðrum. Þegar
þessir kappar voru upp á sitt besta var
KR stórveldi í knattspyrnunni, það
veldi er nú ekki sem áður, and-
stæðingunum til ánægju, en KR-ingar
sjálfir telja það bara tímabilsástand og
lofa nýjum afrekum, jafnvel strax í
sumar.
James B. Ferguson hét skoskur maður
sem hingað kom til starfa hjá ísafoldar-
prentsmiðju árið 1895. Var hann sagður
hinn mesti iþróttamaður og tók þegar að
kenna strákguttum i Reykjavík fimleika,
hlaup og að sparka bolta. Flann stofnaði
síðan úrvalsflokk manna sem tók til við
reglulegar knattspyrnuæfingar suður á
Melum, þar á óruddu svæði. Undir
aldamótin voru svo margir latinuskóla-
piltar farnir að æfa knattspyrnu undir
stjórn Ólafs Rósinkranz sem hér
innleiddi enskar knattspyrnureglur.
KR var stofnað í marsmánuði 1899.
Þá komu nokkrir menn saman í búð
Guðmundar Olsens í Aðalstræti og
sameinuðust um að kaupa knött. Lagði
hver maður fram 25 aura til kaupanna
en þó það dygði ekki fékkst hann rneð
afborgunum. Þar með var félagsskapur
inn „Fótboltafélag Reykjavikur"
stofnaður. Þar sem „fótbolti" þótti verri
íslenska en „knattspyrna” var nafni
félagsins breytt árið 1915 í
„Knattspyrnufélag Reykjavikur" sem i
daglegu tali er aðeins kallað KR.
Siðan 1912 hafa KR-ingar orðið
íslandsmeistarar alls 20 sinnum eða
oftar en nokkurt annað félag. Siðasta
áratug hefur þeim þó aldrei tekist að
hreppa hinn eftirsótta titil og 1977 féll
liðið í 2. deild. Viðkoman þar var þó stutt
eins og búast mátti við, strax næsta ár
varð KR Reykjavikurmeistari og 2.
deildin var sömuleiðis gjörunnin. Niu
stig skildu KR og næsta lið!
KR-ingar hafa nokkrum sinnum tekið
þátt i Evrópukeppni i
knattspyrnu, síðast 1969 í Evrópukeppni
meistaraliða. Liðið keppti þá tvívegis við
Feyjenoord og tapaði samanlagt með 16
mörkum gegn 4. Fyrri leikurinn fór 2-
12, honum vilja KR ingar vafalaust
gleyma! Raunar verður að segja þá
sorgarsögu að öllum þessum Evrópu
leikjum hafa KR-ingar tapaðogsumum
stórt en þeir' eru ekki einir um
það hjá islenskum knattspyrnuliðum.
En þrátt fyrir misjafnt gengi hafa
KR ingar alltaf ált góðum leikmönnum
á að skipa sem boðlegir hafa þótt í
íslenskt landslið. Ekki síst á það við
gamla stórveldistímann áðurnefnda en
liðið sem nú hleypur um völlinn er ungt
og frískt, reynslan safnast sarnan og
árangurinn batnar. Þá þarf heldur ekki
aðefast um aðæfleiri KR ingar klæðasl
landsliðspeysunni á næstu árum.
KR er nú 82ja ára. í 80 ára afmælis-
blaði félagsins ritar formaður þess.
Sveinn Jónsson: „Efst i huga allra KR
inga er þakklæti og virðing fyrir stofn-
endum félagsins, frumherjum og
fjölmörgum öðrum félögum. látnum og
lifandi, sem með fórnfúsu starfi, brenn-
andi áhuga og trú á félaginu hal'a
stuðlað að því að skapa svo sterka félags-
lega samheldni. að KR-andinn og
baráttuhugurinn er öllum íþróttaáhuga
mönnum vel kunnur."
28. tbl. Vikan 31