Vikan - 09.07.1981, Blaðsíða 63
Pósturinn
komast í klúbbinn skulu skrifa
bréf á ensku með upplýsingum
um nafn, heimilisfang, aldur,
kyn og áhugamál og það kostar
ekkert.
International Pen-Friends,
P.O.Box 1000,
Kealakekua,
Hawaii, 96750
USA
síðustu helgi fórum við D. á ball og þar var E. Hann hefur
ekki reynt við aðra stelpu og var alltaf að reyna að láta
atburði kvöldsins áður endurtaka sig. Ekkert gekk því ég vil
ekki vera með honum. Ég skal ekki láta hann vinna mig
eins og allar hinar þó það sé fyrirgefanlegt að skemmta sér
með honum eitt kvöld . . . Nei annars, það þýðir ekkert að
Ijúga að sjálfum sér. Ég hef skömm á sjálfri mér og er búin
að missa alla sjálfsvirðingu. Það ganga kjaftasögur um mig.
Ég er Itka búin að vera með einum algjörum aumingja sem
grobbar af því að hafa klessukeyrt kaggann hans pabba síns
og svo framvegis. Ég skammast mín svo og sjálfsálitið týnt
og tröllum gefið. Ég vildi óska að ég vœri ófríðari og ætti
ekki jafnauðvelt með að ná í stráka. En fyrirgefðu, Póstur,
ég gleymdi alveg að útskýra af hverju ég er með öllum
þessum strákum sem ég hef engan áhuga á. Ég er eins
konar alkóhólisti á stráka, égget ekki neitað mér um þá! Ég
reyni næstum því við hvaða strák sem er. Mér hefur
stundum dottið í hug að það sé af minnimáttarkennd vegna
þess hve ég var ófríð og illa vaxin, en það hefur lagast á
stuttum tíma og mér fmnst alltaf gaman þegar horft er á
mig með aðdáun.
En aðalvandamálið er í sambandi við A., minn heitt-
elskaða. Eftir að ég hafði reynt að gleyma honum í dálítinn
tíma gafst ég upp. Ég bjóst við að fara á staðinn þar sem A.
var í skóla um hvítasunnuna svo ég notaði fyrsta tækifæri
til að hringja í hann og vita við hverju ég gæti búist frá
honum. Kannski væri hann búinn að segja stelpunni upp
og biði eftir tækifæri til að hitta mig, eða hvort hann væri
búinn að gleyma mér. Jú, jú, ég hringdi og það svaraði lítil
stelpa sem sagði að A. væri farinn heim til sín, það erfyrir
sunnan, og að hún vissi ekkert hvar hann ætti heima eða
símanúmerið hans. Ja sko!
Hér sit ég með sárt ennið og það eina sem ég veit er að
hann heitir A. ogá heima í bæ nokkrum fyrir sunnan . . .
VÁ!
Elsku Póstur, hvernig í ósköpunum á ég að finna hann?
Ég hef aldrei komið í þennan bæ og fer kannski aldrei.
Hvernig get ég komist í samband við hann? Ég sé hann
kannski aldrei aftur. Aldrei er hræðilegt orð. Hvað get ég
gert??
SOS . . . Maydav . . . Hjálp
NAG
P.S. Þú skalt ekki dirfast að minnast hálfu orði á feiri fiska
í sjónum því ég er búin að fá nóg af þessum þorskum. Þú
mátt stytta bréfið ef þú vilt.
Pósturinn notfærði sér að hluta heimildina til að stytta bréfið
með endursögn en treysti sér þó ekki til að sleppa neinu alveg
úr.
Ástin er eilift vandamál en hér verður að gera eitthvað i
málunum. Það fyrsta sem þú verður að gera er að hætta að
vera með D. Hér er um að ræða þitt líf og maður er ekki með
öðrum bara af tómri góðmennsku. Fyrr eða síðar áttar D. sig
á því að þú ert ekki hrifin af honum og þá getur honum
sárnað miklu meir þvi honum finnst þá ef til vill að þú hafir
verið að spila með hann. Segðu honum upp, ósköp varlega en
þó ákveðið. Það verður auðvitað óþægilegt en þú hefur sjálf
komið þér í þessa klípu og verður að losa þig úr henni. D. er
ungur og jafnar sig áreiðanlega fljótt. En því fyrr því betra ef
ekki eiga að verða tóm leiðindi út af öllu saman.
Kjaftasögurnar skaltu ekki taka nærri þér. Það eru allir
alltaf hreint að gera einhvern skrattann af sér og hver getur
kastað steinum? En þar sem þér sjálfri er farið að þykja nóg
um eigin framkomu er best að hægja dálítið á sér. Það er ekki
nema eðlilegt að þú leitir fyrir þér og sért með mörgum
strákum. En farðu varlega, notfærðu þér ekki aðra og láttu
aðra ekki notfæra sér þig. Vertu ekki með strákum nema þig
langi raunverulega til þess.
En ástin mikla, hann A. Þú verður eiginlega að reyna að
hafa uppi á honum. Hvernig væri að hringja eða skrifa á
bæjarstjórnarskrifstofuna í bænum þar sem hann á lögheimili
og vita hvort fólkið þar getur ekki grafið upp heimilisfangið,
finna síðan simanúmerið og hringja svo í hann eða skrifa
honum? Aldrei að segja aldrei er stundum sagt. Ef hann vill
eitthvað með þig hafa þá svarar hann þér. Síðan gætirðu ef til
vill skellt þér suður eða hann komið til þín. Annað eins hefur
nú gerst. En ef hann hefur ekki áhuga ... þá verður aldrei víst
að þýða aldrei. Pósturinn veit að þú ert nógu þroskuð til að
sætta þig við mótlætið, þó ekki sé fyrr en í fulla hnefana.
Ástarsorgin er ósköp leiðinleg en það er nú einu sinni svo að
maður getur ekki alltaf fengið allt og þá er að taka þvi eins og
manneskja. En vertu vongóð.
28. tbl. Vikan 63