Vikan


Vikan - 09.07.1981, Side 62

Vikan - 09.07.1981, Side 62
Pcnnaiinlr Arna Ívarsdóttir, Bröttuhlið 3, 600 Akureyri og Helga M. Sigurjónsdóttir, Birkilundi 6, 600 Akureyri, vilja skrifast á við stelpur og stráka á aldrinum 13-15 ára. Áhugamál þeirra eru skíði, fimleikar, iþróttir og margt fleira. Mynd fylgi fyrsta bréfi ef hægt er. Svara öllum bréfum. Guðrún Bjarnadóttir, Logalandi 8, 108 Reykjavík, óskar eftir pennavinum á aldrinum 10-13 ára, er sjálf 11. Áhugamál: frímerki, dýr og fleira. Mahendra P. Patel, 120 Mukhi Street, Gamdi, Anand-388122, Gujarat, India, er 28 ára læknir, karlmaður, Áhugamál: lestur, tónlist, póstkort, frímerki og íþróttir. Pennavina- klúbbur Nýlega barst okkur beiðni frá alþjóðlegum pennavinaklúbbi á Hawaii sem er sem kunnugt er eitt af ríkjum Bandaríkjanna. Þeir sem áhuga hafa á að SOS-ást í neyð Komdu nú aldeilis margblessaður og sæll, kœri Póstur! Ja, sko, nú kemur vandamál sem er erfitt viðureignar og það er sko ekkert víst að þú getir gefið mér ráð, en ég sé sko enga lausn, en ég vona að þú getir hjálpað mér. Þú mátt trúa því að þetta bréf kostar mikið átak bœði vegna þess að ég á erfitt með að skrifa bréf og ég hef alltaf haft vissa fordóma gagnvart Póstinum því mér finnst að fólk eigi að leysa sín vandamál sjálft og ekki trúa hverjum sem er fyrir þeim. En ég er alveg ráðþrota svo að Pósturinn varð þrautalendingin. Þannig er mál með vexti að í vetur kynntist ég strák sem ég er mjög hrifin af. Hann heitir A. Ég sá hann fyrst á balli með Bubba og ég er viss um að ég hef eldroðnað (ég veit ekki af hverju hann hafði svona mikil áhrif á mig, ég hef oft séð sætari stráka) og mér datt strax í hug „þennan strák skal ég ná I”. Honum leist greinilega ekkert illa á mig því hann stoppaði og talaði við mig þónokkra stund þar sem ég var í miðasölunni. Seinna bað hann mig að lána sér miða, sem ég gerði. Hann sagðist þá verða að kyssa mig fyrir það og við kysstumst gegnum gatið á glerinu. (Það var ekki svo vitlaust.) Hann kom nokkrum sinnum ograbbaði við mig meðan ég var að selja og mér leist alveg þrumuvel á hann. Við virtumst passa svo vel saman. Þegar ég var að labba eftir ganginum með vinkonu minni, /., mættum viðA. og nokkrum strákum (sem hann var I skóla með). Við litum varla hvort á annað en þegar við mættumst tókumst við I hendur (ég var að tala við I.), eiginlega alveg ósjálfrátt. Ég fór út af ballinu með honum og við fúðum inn í bíl vegna kulda og röbbuðum saman um allt og hvað sem er. Við eigum mjög margt sameiginlegt og sérstaklega í einu og því er ég fegin. Það er eins og kjaftasögur séu ómissandi liður í öllum samtölum, (þekkirðu þennan, veistu hvað hann var að gera þarna og svo framvegis) en það birtist hvorki trantur né trýni á svoleiðis löguðu I öllum okkar blaðurgangi. Hann man ekki nöfn stundinni lengur og ég man ekki andlit og gleymi öllum sögum jafnóðum. Þegar ballið var búið komu strákarnir sem A. var með og við fórum að rúnta. Einn þeirra, B., sat hjá okkur og var alltaf að fárast yfir því hvernig við nenntum að kyssast svona mikið, hann væri kominn með harðsperrur I tunguna. Ég gat ekki sleppt tækifærinu, sagði að hann væri ekki I æfingu og svona leiddi eitt af öðru. Ég veit eiginlega ekki hvað gerðist en við fórum að kyssast, og dúdda mía hvað ég sá strax eftir þessu. Aumingja A. þurfti að horfa upp á mig kyssa B. Ég vildi að það væri hægt að stroka þennan atburð burt. Þó við A. værum svona stutt saman (ég þurfti að fara heim kl. 4 og pabbi og mamma hefðu ekki tekið í mál að hann fengi að sofa hjá mér) þá var mér alveg Ijóst að við værum ótrúlega líkar persónur. Ég vildi gefa ansi margt til að við gætum kynnst 'betur og verið meira saman því mér þykir virkilega vœnt um hann. Ég hringdi til hans fimmtudaginn fyrir árshátíðina og mér varð Ijóst eftir að hafa talað við hann að ég meira en elska hann, ég er ástfangin upp fyrir haus. Hann er allt öðruvísi en aðrir strákar. Svo einn daginn spurði ég stelpu sem var í sama skóla og hann hvort hún þekkti hann. Jú, hún kannast við hann og fer að spyrja hvort ég sé að spá í hann. Ég jánka því en þá segir hún: „ Veistu ekki að hann er með ' stelpu. ” Ég fékk sko sjokk! Hann var að vísu búinn að segja mér það en ég trúði því ekki, hélt bara að hann væri að stríða mér eða að hann myndi segja henni upp, en nú verð ég að gjöra svo vel að sætta mig við að það er til fleira kvenfólk í heiminum en ég. Þá fór ég á veiðar . . . og þær gengu betur en ég hafði búist við. Mig langaði svo mikið að finna strák sem gæti komið I staðinn fyrir A. Mig langaði svo að gleyma honum. Árangurinn varð sá að ég er á föstu með strák sem heitir D. og ég hef engan áhuga á. Fyrst var ég svolítið skotin I honum en þegarfrá leið höfðaði hann ekki til mín en þá var hann orðinn óaftur- kaUanlega hrifinn af mér. Hann hefur aldrei áður verið með stelpu. Hann er ári yngri en ég og ég er fremur þroskuð eftir aldri en hann ekki þannig að mérflinnst hann barnalegur og það er alltaf að verða meira áberandi. Hvað get ég gert með D? Hann er eitthvað svo saklaus og ósnertur eins og hann hafl aldrei kynnst neinni óhamingju — og svo þurfti strákgreyið að lenda í mér. Ég ætti auðvitað að segja honum upp en ég get ómögulega látið fyrstu reynslu hans af ástinni enda þannig. Ég er alveg í öngum mínum. Síðan hef ég líka verið með algjörum kvennabósa sem var að reyna við mig. Hann heitir E. Hann þykist alltaf geta náð I hvaða stelpu sem er og ég vildi ekki að hann gæti náð I mig fyrirhafnarlaust. . . en að lokum lét ég undan. Síðan hefur hann minnst á það nokkrum sinnum að hann væri hrifinn af mér en ég hlusta ekki á hann. Um 62 Vlkan 28. tbl.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.