Vikan - 09.07.1981, Qupperneq 34
(
Fimm mínútur meö Willy Breinholst Þýð.: Anna {wj
Þögli maðurinn
Helga elskaði manninn sinn og
hann elskaði hana. Eða það
vonaði hún að minnsta kosti.
En hún gat ekki verið viss um
það nema hún spyrði hann
beint og það gerði hún ekki þvi
maðurinn hennar, hann Árni,
hafði verið undarlega þögull og
lokaður lengi. Ef til vill var það
eitt og annað sem var honum
andstætt í þessum stóra fjöl-
þjóðlega auðhring sem hann
var í forsæti fyrir. Hann var
maður sem átti við flókið
viðskiptavandamál að etja,
maður sem varð að berjast
daglega lýjandi baráttu við
skammsýna og atvinnulífs-
fjandsamlega pólitík sem fram-
fylgt er í þessu landi. Það er
ekki hægt að þreyta mann af
þessu tagi með smásmugu-
legum spurningum eins og:
Elskar þú mig enn, Árni?
Maður sem talinn er gróða-
braskari, verkalýðshatari,
afturhaldsseggur, já, blóðsuga
hinna vinnandi stétta, svoleiðis
maður á einmitt að vera þögull
og lokaður ef honum hentar
það. Og maður reynir að gera
honum lífið ögn léttara með þvi
að sjá til þess að hann fái hina
lítilvægustu ósk sina uppfyllta
á stundinni. Inniskórnir á
sínum stað þegar hann kemur
heim, lestrargleraugun tilbúin
þegar hann þarf þeirra með,
magasárstöflurnar og svo gætir
maður þess fyrst og síðast að
hann fái fullan nætursvefn. En
það er augljóst mál að góð og
umhyggjusöm eiginkona veltir
vöngum yfir því hvað valdi
því nú að eiginmaðurinn er
svona þögull?
Hvers vegna talar hann alls
ekki við hana? Ekki eitt einasta
orð, ekki smá „takk, elskan
mín, góða nótt”, ekki einu
sinni góðan dag, yfirhöfuð
ekki eitt einasta orð. Hann
situr bara kvöld eftir kvöld og
starir áhyggjufullur út í bláinn
með glasið sitt.
— Get ég nokkuð gert fyrir
þig, Árni?
Hann hristir höfuðið
þegjandi.
— Fer vel um þig?
Hann kinkar kolli.
— Viltu meira í glasið?
Hann hristir höfuðið.
— Ég er að hugsa um að fara
að sofa, vinur minn. Hefur þú
nokkuð á móti því?
Hann hristir höfuðið enn
einu sinni. En segir ekki orð.
Svona lagað getur nú tekið á
taugarnar hjá eiginkonum.
Helga á erfitt með svefn. Hafði
hún gert eitthvað rangt? Hafði
hún sært hann? Var hann búinn
að finna sér aðra. Hafði hin
konan svikið hann? Grunaði
hann hana um að standa í
ástarsambandi við bílstjórann?
Hafði hann aðhafst eitthvað
glæpsamlegt? Hún gat legið
tímunum saman og hugsað á
þessa leið. Hún var farin að
taka inn töflur. Að lokum trúði
hún móður sinni fyrir vanda-
málinu. — Mér líður hræðilega,
Stjörnuspá
llrulurinn 2l.m:irs 20.
Reyndu aðeins að
hemja skapvonskuna og
nöldursemina áður en
þér tekst að gera alla í
kringum þig vitlausa.
Fólk hefur allt of lengi
reynt að sýna þér
umburðarlyndi og er nú
komið að þér að sýna lit
á móti.
Leiðinda fjármála
vafstur og þvi um likt
setur svip sinn á vikuna
og gerir þér lifið leitt.
Hafðu í huga að þetta
verður að gerast og
gengur senn yfir og þá
er rétt að gera sér
dagamun.
YiuliA 21.’ipril 2l.m;ií
Eitthvað hefur nýlega
valdið þér mikium
vonbrigðum. En þegar
öllu er á botninn hvolft
er ekki svo víst að málið
verði þér til ills.
Sennilega hefur þú gert
þér rangar hugmyndir
um ákveðna manneskju.",
SporAtlrcKinn 24.okt. 'l.liim.
Ýmislegt óvænt og
skemmtilegt drífur á
daga þína. Gamall
kunningi skýtur upp
kollinum og lífgar upp á
tilveru þína. Hafðu
samt fullar gætur á
fjármálunum. Mikil
eyðsla kann að koma
þér i koll síðar.
1 \ihurarnir 22.m;ii 2l.júni
Farðu sérlega varlega í
orðum og gerðum þessa
vikuna. Orð sem fjúka í
bræði getur verið erfitt
að taka aftur. Ýmsar
lagfæringar og endur-
bætur heima fyrir veita
sköpunarþörfinni útrás.
Ho^maúurinn 24.no\. 2l.dcs
Þú hugsar mikið og stift
þessa dagana og ættir
að láta aðra njóta góðs
af hugmyndum
þínum fejartsýni og
áræði hjálpa þér við
að koma fyrirætlunum í
framkvæmd og tryggir
frekar stuðning annarra.
kr;'hhinn 22.jiini JA. juli
Rasaðu ekki um ráð
fram í sambandi við
skipulagningu á
umfangsmiklu máli. Það
borgar sig ævinlega að
flýta sér hægt í mikil-
vægum málum.
Fjármálin eru i dálitlum
ólestri þessa stundina.
SlcintJcilin 22.dcs. 20. jan.
Skoðaðu hug þinn
gaumgæfilega áður en
þú tekur ákvörðun i
máli sem kann að hafa
víðtæk áhrif á framtið
þina og annarra. Ef þú
ert þess fullviss að hafa
velt málinu fyrir þér frá
öllum hliðum er þér
óhætt aðsýna ákveðni.
I.jonid 24. júli 24. ii*ú«l
Gættu þess að særa
ekki aðra með orðum og
duttlungum þínum. Þú
skiptir oft um skoðun
en ekki er jafnvist að
þeir sem þú umgengst
átti sig alltaf á þér.
\alnshcrinr. 2l.jan. lú.fchi.
Allar áætlanir fara úr
böndunum og það
kemur til með að reyna
á taugarnar. Leitaðu
samvinnu annarra við
að koma málum i samt
lag og taktu það ekki
nærri þér þótt eitthvað
verði að láta undan.
Mc\ jan 24.áiíúsl 2.\.scpl
Óvænt hjálp berst inn-
an skamms. Þér ætti
að vera óhætt að varpa
af þér áhyggjum um
stund og njóta lífsins i
kringum þig. Það hefur
ýmislegt farið fram hjá
þér síðustu vikurnar en
nú er tækifæri að bæta
úr þvi.
Fiskarnir 20.fchr. 20.mars
Það er mjög mikið að
gera og verkefnin
krefjast þess að þú
leggir þig fram og gerir
þitt besta. Samviskusemi
og nákvæmni mun
borga sig þótt síðar
verði. Láttu hverjum
degi nægja sína
þjáningu.
34 Vlkan 28. tbl.