Vikan - 09.07.1981, Qupperneq 44
kalt úti en eini hitinn kom frá gömlum
olíuofni, eina Ijósið frá tveim Ijóskerum
á tréborðinu.
Hann gekk að hrörlegum stól og sett-
ist. Von Haazstóðenn á miðju gólfinu.
„Sem betur fer er slikur tímamunur í
Genf og Bandarikjunum að fréttirnar
komast í fjölmiðla um leið og friðarráð-
■ stefnan hefst,” sagði Zurotov og kveikti
sér í sígarettu. „Þá setja Sovétríkin fram
úrslitakosti sína. Varanlegur friður með
skilmálum Rússa eða gjöreyðilegging.”
Hann hikaði en tautaði svo: „Þetta er
glæsileg áætlun! En svo er það...”
Maðurinn I horninu hóstaði og Zuro-
tov þagnaði. Hann leit á Nogronsky og
vissi að hann hafði verið of málglaður.
Hannstóðupp.
„Tvennt verð ég að segja að lokum,
von Haaz,” sagði hann og leit á Þjóð-
verjann. „Þú mátt ekki bregðast okkur.”
Von Haaz hristi höfuðið eins og hann
væri að blása reyk út um skorsteininn.
„Vonandi skilurðu að hættan er
mikil. C.I.A.-mennirnir eru engin fífl.
Allt hefur verið gert til þess að þér takist
að komast á áfangastað en það eru likur
á því að þeim takist að drepa þig áður en
svo verður. Skilurðu það?"
Von Haaz kinkaði aftur kolli. Hanr
var hinn rólegasti. Það leit næstum úi
fyrir að honum leiddist.
„Ég óska þér góðs gengis,” sagði
Zurotov og gekk aftur til sætis.
„Langar þig til að segja eitthvað?"
spurði Zurotov Nogronsky.
Sergei Nogronsky stóð á fætur. Risa-
vaxinn líkami hans virtist fylla lítið her-
bergið og höfuð hans nam við loftið.
Hann gekk hægt í áttina til von Haaz og
augnaráð hans var flöktandi. Skyndilega
breyttist andrúmsloftið.
„Þú mátt ekkert gera fyrr en ég læt til
mín heyra en þá áttu að bregðast fljótt
við.”
„Auðvitað,” svaraði Þjóðverjinn.
„Það hefur verið ákveðið að þú farir
gangandi. Það verða kannski nokkrir
bílar á götunni en þú gengur. Þeir bíða
eftir þér Bandaríkjamegin við landa-
mærin. Þeir vita að þú ert gangandi.”
Sergei Nogronsky varð litið á Zurotov
en síðan á von Haaz.„Ég er sammála
Zurotov. Ég held að það hafi ekki
komist upp um okkur. Láttu mig um
C.I.A. ef til þess kemur. Þú mátt ekki
reyna að verja þig því að þeir myndu
aðeins myrða þig. Farðu bara yfir brúna
og láttu mig svo um hitt. Skilið?” spurði
Nogronsky hörkulega.
„Ég get ekki séð hvernig ég ætti að
verja mig óvopnaður,” svaraði von
Haaz.
„Gott,” tautaði Nogronsky. „Þá er
þaðekki fleira.”
„Það var nú eitt eftir,” greip von
Haaz fram í fyrir Nogronsky og sá svíns-
leg augu hans herpast saman. Hann sá
að hann studdi hlemmslegum höndun-
um á mjaðmirnar um leið og hann laut
fram.
„Var það eitthvað annað?” spurði
Nogronsky.
„Hvað um stúlkuna?”
Nogronsky leit hörkulega á von Haaz.
„Hvað um hana?”
„Hún hélt að við gætum gifst þegar
þessu væri lokið. Hún heldur að ég sé að
stinga af til Amerikananna.” Von Haaz
var þreyttur á framkomu Nogronskys.
Það var hann sem átti að hefjast handa,
ekki Nogronsky. Honum fannst hann
eiga rétt á að vita allt um stúlkuna.
„Hún kemst aldrei til Bandaríkj-
anna,” svaraði Nogronsky kuldalega.
„Nú!” hvíslaði von Haaz.
„Einhver mótmæli?” spurði
Nogronsky og virti hann vandlega fyrir
sér.
„Nei!” svaraði von Haaz ákveðinn.
Honum létti á sinn hátt. Hann henti síg-
arettunni á gólfið og steig á hana.
Klukkan var sex þegar Karl von Haaz
fór út. Klukkan sex á nýársmorgni og
það var haglél.
Stúlkan opnaði útidyrnar og gekk eftir
stignum. Hana sveið í andlitið af gustin-
um og henni var ískalt. Heimskauta-
vindurinn blés að leggjum hennar eins
og hann vildi sjúga fötin að líkama
hennar.
Hún krosslagði hendurnar um brjóst
sér en það var til einskis. Það fór hrollur
um hana. Hún leit niður veginn I dimmu
desemberkvöldsins. Svo fór hún aftur
inn í húsið.
Gleraugun döggvuðust um leið og
hún kom inn í forstofuna. Hún tók vasa-
klút úr erminni á olífugrænu peysunni
sinni og þerraði af þeim. Hún leit í spegil. i
— Hún var hörundsfríð. Karl hafði sagt
það. Hún minntist þess þegar hann sá
hana I fyrsta skipti nakta. Þá stóð hann
við rúmið hennar í París og starði á hana
— bara starði og augu hans virtust
drekka nektina I sig. Hún leit á hann og
bjóst við einhverjum viðbrögðum. Þessi
Veggsamstæður í miklu úrvali
KM húsgögn
Langholtsvegi 111, Reykjavík,
símar 37010 — 37144.
44 Vllum M. tbl.